Fréttablaðið - 04.09.2012, Blaðsíða 30

Fréttablaðið - 04.09.2012, Blaðsíða 30
4. september 2012 ÞRIÐJUDAGUR26 timamot@frettabladid.is 36 Við þökkum innilega samúð og vinarhug við andlát og útför móður okkar, tengdamóður, ömmu, langömmu og langalangömmu, MARÍU GUÐMUNDSDÓTTUR áður til heimilis að Hlaðbæ 14, Reykjavík. Sérstakar þakkir til allra á Dvalarheimilinu Fellaskjóli í Grundarfirði fyrir hlýju og góða umönnun. Anna Margrét Marísdóttir Þorbergur Eysteinsson Kristín Marísdóttir Guðmundur Marísson Guðrún Marísdóttir Daði Sveinbjörnsson Ólöf Hulda Marísdóttir Kári Marísson Hrafnhildur Kristjánsdóttir Katrín Marísdóttir barnabörn, langömmubörn og langalangömmubörn. Ástkær eiginmaður minn, faðir, tengdafaðir, bróðir og afi, ARNÓR ÞÓRHALLSSON verkfræðingur, Reynihlíð 5, Reykjavík, lést á Landspítalanum við Hringbraut sunnudaginn 26. ágúst. Útför hans fer fram frá Háteigskirkju miðvikudaginn 5. september kl 13.00. Blóm og kransar eru vinsamlegast afþakkaðir en þeim sem vilja minnast hans er bent á krabbameinsdeild 11E á Landspítalanum. Ingibjörg Hrund Björnsdóttir Lilja Birna Arnórsdóttir Guðjón Karl Reynisson Þórhallur Arnórsson Sigríður Sunna Ebenesersdóttir Björn Lárus Arnórsson Arnheiður Leifsdóttir Birgir Már Arnórsson Áslaug Bennie Þórhallsdóttir Þórhildur Þórhallsdóttir Ingibjörg Erla Birgisdóttir Magnús Birgisson og barnabörn. Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, stjúpmóðir, amma og langamma, GUÐFINNA JÓNA HANNESDÓTTIR frá Melbreið í Fljótum, Arnarheiði 8, Hveragerði, lést 24. ágúst síðastliðinn. Útförin hefur farið fram í kyrrþey að ósk hinnar látnu. Fyrir hönd fjölskyldna okkar, Alda Sigurðardóttir Berglind Sigurðardóttir Hrefna Sigurðardóttir Sigfríður Ingibjörg Sigurðardóttir Kjartan Reynir Sigurðsson Miðhraun 22 b, 210 Garðabæ, Sími 571 0400 granit@granit.is Hjartans þakkir til þeirra fjölmörgu sem sýndu okkur samúð, hlýhug og vináttu við andlát og útför okkar ástkæra eiginmanns, föður, sonar, bróður, mágs, svila, tengdasonar og barnabarns, JÓNASAR EGILSSONAR skipstjóra, Dúfnahólum 2. Brynhildur Hall Sigrún Hall Sylvía Hall Egill Jónasson Aðalheiður Hannesdóttir Hannes Ingi Jónsson Signý Knútsdóttir Borgþór Egilsson Arna Ásmundardóttir Garðar Hall Rannvá Kristina Hall Sigrún Jónsdóttir Hulda Þórhallsdóttir Ástkær eiginmaður minn og faðir okkar, MARTIN LEONARD GRABOWSKI læknir, lést á Helsingborgs Lasarett, Svíþjóð, 22. júlí sl. Útför hans verður gerð frá Garðakirkju á Álftanesi miðvikudaginn 5. september kl. 15.00. Þeim sem vildu minnast hans er bent á krabbameinsdeild Landspítala, Heimahlynningu og Parkinsonsamtökin eða önnur líknarfélög. Guðrún Rósa Sigurðardóttir Eydís Anna Martinsdóttir Hafdís María Martinsdóttir Eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir og afi, MAGNÚS BJARNFREÐSSON fréttamaður, Logasölum 5, Kópavogi, lést á líknardeild Landspítalans í Kópavogi 30. ágúst. Útförin fer fram frá Kópavogskirkju föstudaginn 7. september kl. 13.00. Guðrún Árnadóttir Guðjón Magnússon og Sigrid Hálfdánardóttir Árni Magnússon og Berglind Bragadóttir Páll Magnússon og Aðalheiður Sigursveinsdóttir Ingibjörg Magnúsdóttir og Skúli Geir Jensson og barnabörn. Umhverfis Íslands er heiti bókar Pjeturs Sigurðssonar, ljósmyndara Fréttablaðsins, sem er nýkomin úr prentun. Bókin er gefin út til styrktar Davíð Erni Arnarssyni og fjölskyldu hans en Davíð Örn glímir við krabba- mein og hefur þess vegna verið frá vinnu í nokkur ár. „Bókin varð þannig til að ég fór í útsýnisflug með Landhelgisgæslunni síðastliðið vor. Ég átti von á stuttri flugferð hér yfir Suðvestur horninu en raunin varð sú að við fórum í kring- um landið og flugið tók um sjö klukku- tíma. Allan tímann var ég með mynda- vélina á lofti og afrakstur ferðarinnar var því ansi mikill. Nokkrar mynd- anna birtust svo í Fréttablaðinu og á Vísi og vöktu mikla athygli. Sjónar- hornið er kannski nokkuð óvenjulegt, á myndunum má sjá strandlengju Íslands nokkurn veginn eins og hún leggur sig, firði og fjöll og það sem fyrir augu bar án þess að því væri rit- stýrt sérstaklega,“ segir Pjetur sem fékk frábært útsýni á hringförinni enda varla ský á himni þegar hann fór í ferðina. „Ég myndaði í 3.500 feta hæð og sýnin yfir fjöllin og lands lagið var PJETUR SIGURÐSSON: ÁGÓÐI NÝRRAR BÓKAR RENNUR TIL DAVÍÐS ARNAR Umhverfis Ísland í 83 myndum PJETUR SIGURÐSSON Útsýnisflug með Landhelgisgæslunni varð að bók sem Pjetur selur til styrktar Davíð Erni Arnarssyni sem glímir við krabbamein. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN ÚTGÁFUHÓF MUGISON, ÖRN ELÍAS GUÐMUNDSSON á afmæli í dag. „Besta leiðin til að segja takk er að spila tónlist.“ Útgáfu- og styrktarhóf vegna bókar Pjeturs Sigurðssonar, Umhverfis Ísland, verður haldið á Gullöldinni í Grafarvogi á fimmtudagskvöld. Þar verður hægt að kaupa bókina, sem kostar 3.500 krónur. Allur ágóði bókarinnar rennur til Davíðs Arnar Arnarssonar og fjöl- skyldu hans. Einnig er hægt að hafa samband beint við Pjetur í netfangið pjetur@365.is til að tryggja sér eintak af bókinni sem gefin er út í takmörkuðu upplagi. stórbrotin. Ferðin var farin um mán- aðamótin apríl-maí og víða var snjóföl yfir landinu sem skerpir allar línur í landinu. Þá var ekki farið að grænka og fyrir utan hvítan snjóinn eru brún- leitir tónar mest áberandi í lands- laginu.“ Eftir að myndirnar birtust kviknaði sú hugmynd að gefa þær út á bók. „Í fyrstu kom til greina að gefa þær út hjá bókaforlagi en þegar sú hugmynd datt upp fyrir ákvað ég að ráðast í málið sjálfur og gefa út bók til styrktar góðu málefni,“ segir Pjetur, sem fljót- lega afréð að styrkja Davíð Örn og fjölskyldu. „Davíð Örn var stuðnings- kennari í bekk fósturdóttur minnar, Elfu, hann býr hér í Grafar vogi eins og ég og er mikill stuðningsmaður Fjölnis. Davíð Örn hefur ekki getið unnið um langt skeið vegna krabba- meins sem hann glímir við og sömu- leiðis hefur kona hans verið mikið frá vinnu. Þau hafa verið að glíma við að koma sér þaki yfir höfuðið fyrir sig og börnin sín tvö og ágóðinn af sölu bók- arinnar rennur allur til þeirra.“ sigridur@frettabladid.is Töðugjöld verða í Viðey næsta laugardag, 8. september. Þá verður uppskeru sum- arsins fagnað að hætti Viðeyinga með þakkargjörð, tilsögn í prúðmannlegri framkomu, fróðleik um kartöflur, haust- réttum í pottum og ljósmyndasýningu. Mikil ánægja hefur verið á meðal gesta sem sótt hafa eyjuna heim í sumar, nánast allir segjast myndu mæla með ferð þangað að því er fram kemur í könnunum sem lagðar voru fyrir úrtak gesta í júní og júlí. Vel yfir fjórtán þúsund gestir komu í Viðey fyrstu sjö mánuði ársins og voru Íslendingar fjölmennastir eða tæplega fjörutíu af hundraði. Mikið hefur verið lagt upp úr að auka þjónustu við gesti í Viðey með vegvísum með fróðleik um eyjuna. Tekið er á móti skólabörnum þar á vorin, flestar helgar sumarsins er eitthvað að gerast og veitingahúsið í Við eyjar stofu hefur verið opið alla daga vikunnar. Skemmti- og fróðleiksgöngur á þriðjudagskvöldum hafa verið vinsælar og fullt út úr dyrum á tónleikum . Stefnt er að því að halda tónleika einn fimmtudag í mánuði fram eftir vetri. Viðeyjarferjan siglir alla daga vikunnar út í eyju allan september, eftir það mun hún sigla um helgar. Viðey er viðkomustaður margra TÖÐUGJÖLD Uppskeru sumarsins verður fagnað í Viðey næsta laugardag, 8. september.

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.