Fréttablaðið - 04.09.2012, Blaðsíða 10

Fréttablaðið - 04.09.2012, Blaðsíða 10
4. september 2012 ÞRIÐJUDAGUR10 VIÐSKIPTI Arion banki segir fráleitt að til sé listi yfir lífvænleg fyrir- tæki sem bankinn hafi ákveðið að taka af eigendum þeirra til að laga ójöfnuð milli nýja bankans og þrotabús gamla Kaupþings. Jón Ásgeir Jóhannesson athafna- maður hélt því fram í innsendri grein í Fréttablaðinu á laugardag að slíkur listi væri til. Áður hafði Víglundur Þorsteinsson, fyrrver- andi eigandi BM Vallár, haldið hinu sama fram. Í svari Haraldar Guðna Eiðs- sonar, upplýsingafulltrúa Arion banka, við fyrirspurn Fréttablaðs- ins um málið segir að eini list- inn, sem til er, sé sá sem útbúinn var við stofnun Arion banka árið 2008 og nær yfir fjörutíu stærstu skuldunauta hans. „Þessi fjörutíu fyrirtækjalán voru allt frá því að vera mjög góð lán, sem innheimtast að fullu, til lána þar sem líkur á endurheimt- um voru takmarkaðar. Hugsan- lega er verið að vísa til þess lista. En þessi fyrirtæki voru í engu meðhöndluð með öðrum hætti en önnur. [ … ]Í einhverjum tilvikum var staða fyrirtækja með þeim hætti að ekki var hjá því komist að bankinn tæki félag yfir eða gengi að sínum veðum. Að baki slík- um ákvörðunum lá ávallt ýtarleg greining á stöðu fyrirtækjanna og lífvænleika þeirra.“ Jón Ásgeir og fjölskylda hans voru einn eigenda 1998 ehf. sem skuldaði Arion banka á sjötta tug milljarða króna í árslok 2010. Eina eign félagsins var 95,7 prósenta eign í smásölurisanum Högum. Arion banki ákvað að ganga ekki að endurskipulagningartilboði Jóns Ásgeirs og fjölskyldu hans heldur ganga að veðum sínum og selja Haga til nýrra eigenda. Félagið var síðan skráð á markað í desember 2011. Ingibjörg Pálmadóttir, eigin- kona Jóns Ásgeirs, er aðaleigandi 365 ehf. sem gefur út Fréttablaðið. - þsj Arion banki hafnar ásökunum Jóns Ásgeirs Jóhannessonar: Fráleitt að til sé „dauðalisti“ ARION BANKI Bæði Jón Ásgeir Jóhannesson og Víglundur Þorsteinsson fullyrða að bankinn hafi útbúið svokallaðan dauðalista. Upplýsingafulltrúi bankans þvertekur fyrir það. FRÉTTABLAÐIÐ/RÓSA HÖFÐI Tvær sýningar eru í húsinu, önnur um byggingu hússins og hin um leiðtogafundinn 1986. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON REYKJAVÍK Stefnt verður að því að hafa Höfða opinn almenningi næsta sumar, líkt og gert var nú í sumar. Höfði var opinn almenningi milli 11 og 16 alla virka daga frá 5. júní og fram í síðustu viku. Hægt var að skoða húsið frítt en tekið hefur verið við frjáls- um framlögum á staðnum. Tvær sýningar eru í húsinu, önnur um leiðtogafundinn 1986 og hin um byggingu Höfða og sögu norskra húsa á Íslandi. Menningar- og ferðamálaráð Reykjavíkurborgar fjallaði um opnun hússins á fundi í síðustu viku og segir opnun hússins hafa gengið afar vel. - þeb Höfði fyrir almenning: Aftur opinn næsta sumar Hrafnistuvín enn í kerfinu Tillaga Sjálfstæðisflokksins, sem borgarráð samþykkti, um breytingu á málsmeðferðarreglum borgarráðs um veitingastaði og gististaði vegna öldrunarheimila er nú til umsagnar hjá lögfræði- og stjórnsýslu skipulags- sviðs og verkefnisstjóra aðalskipulags. Breytingunni er ætlað að gera kleift að heimila vínveitingar á Hrafnistu. SKIPULAGSMÁL NEYTENDUR Netnotkun Íslendinga á ferðalögum erlendis í gegnum farsíma hefur aukist gríðarlega á síðustu misserum. Ódýrari þjónusta og mikil fjölgun snjallsíma eru helstu afl- vakar aukningarinnar en nýverið varð mikil lækkun á verði á net- þjónustu í símum á EES-svæð- inu. Netnotkun í símum íslenskra viðskiptavina Símans á ferða- lögum erlendis hefur ríflega tvöfaldast á tveimur árum. Jókst hún um 36 prósent á milli áranna 2010 og 2011 og svo aftur um 68 prósent á milli 2011 og ársins í ár sé miðað við fyrstu sjö mán- uði ársins. Telja má líklegt að þessi þróun haldi áfram á næstu mánuðum því 1. júlí síðastliðinn tók gildi ný reglugerð Evrópusambands- ins um lækkun á reikiverði fyrir gagnaflutning, símtöl og SMS innan EES-svæðisins. Mest var lækkunin á reiki- verði gagnaflutninga sem nam um fimmtíu prósentum. Danskir fjölmiðlar hafa greint frá því að netnotkun Dana á ferðalögum um EES-svæðið hafi aukist merkjanlega í kjölfar gild- istöku reglugerðarinnar. Ef marka má tölur frá Síman- um og Vodafone á Íslandi hafa íslenskir ferðalangar ekki brugð- ist jafn skjótt við verðbreyt- ingunum þar sem netnotkun í símum Íslendinga á ferðalögum erlendis jókst ekki merkjanlega í mánuðinum miðað við mánuðinn á undan. Langtímaþróunin er þó skýr og hefur netnotkun í símum Íslendinga erlendis einungis einu sinni verið meiri en í júlí og var það í mánuðinum á undan. - mþl Mun ódýrara að nota síma á ferðalögum um Evrópu en áður: Farsímar meira notaðir í útlöndum SNJALLSÍMI Sífellt meiri útbreiðsla snjallsíma er ein helsta ástæða þess að netnotkun í símum Íslendinga hefur aukist mikið á síðustu misserum. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI SUÐUR-AFRÍKA Fjórir námuverkamenn í Suður- Afríku særðust í gær þegar lögregla beitti bæði táragasi og gúmmískotum. Einn þeirra er alvarlega særður. Hinir særðu voru í hópi námuverkamanna, sem reknir höfðu verið úr vinnu, en reyndu að hindra aðra verkamenn í að mæta til starfa. Þetta gerðist við námuna Aurora, sem er að hluta í eigu náskyldra ættingja bæði Jacobs Zuma, forseta landsins, og Nelsons Mandela, fyrrverandi forseta. Óróinn náði hámarki þann 16. ágúst þegar 34 námuverkamenn létust af völdum byssu- skota frá lögreglumönnum við aðra námu skammt frá bænum Marikana. Alls urðu 112 námuverkamenn fyrir skotum lögreglu þann dag. Lögreglan heldur því fram að hún hafi grip- ið til skotvopna í sjálfsvarnarskyni, þar sem námuverkamennirnir hafi fyrst skotið á lög- regluna. Námuverkamennirnir voru vopnaðir sveðjum og bareflum, en lögreglan segir að nokkrar skammbyssur hafi einnig fundist á vettvangi. Hörð viðbrögð urðu fyrir helgi við því að ríkissaksóknari ákvað að ákæra 270 námu- verkamenn fyrir morð í tengslum við lát mannanna 34 sem lögreglan skaut. Um helgina sagðist saksóknarinn hafa fallið frá morðákærum, en tók jafnframt fram að hann teldi ekkert hafa verið óeðlilegt við þá málsmeðferð. Morðákærurnar voru byggðar á lögum frá tímum aðskilnaðarstefnunnar, en fjöldamorð- unum í Marikana hefur verið líkt við fjölda- morðin í Sharpville í Suður-Afríku árið 1960 þegar hvítir lögreglumenn hófu skothríð á þeldökka mótmælendur og 69 þeirra létu lífið. Viðbrögð svarta meirihlutans í landinu urðu hörð, en hvíti minnihlutinn setti í beinu fram- haldi neyðarlög og hélt landinu í heljargreip- um lögregluvalds næstu áratugina. Búist er við því að ólgan í verkamönnum við platínunámur landsins haldi áfram á meðan kjör þeirra breytast ekkert. Þeir búa flestir í afar lélegu húsnæði sem hróflað hefur verið upp í kringum námurnar á meðan eigendur þeirra græða á tá og fingri, enda hefur verð á platínu margfaldast á síðustu árum. Námuverkamennirnir saka bæði sín eigin verkalýðsfélög og Afríska þjóðarráðið, sem fer með völd í landinu, um linkind gagnvart námueigendum. Hinn umdeildi Julius Malema, fyrrverandi leiðtogi ungliðahreyfingar Afríska þjóðaráðs- ins, hefur látið til sín taka í þessum deilum og gagnrýnir fyrrverandi félaga sína harðlega. Hann hefur ávarpað námuverkamenn og hvatt þá til þess að gera platínunámur lands- ins óstarfhæfar þangað til lausn hefur fengist á málum þeirra. gudsteinn@frettabladid.is Fleiri námuverkamenn urðu fyrir skotum lögreglu Ekkert lát er á óróleikanum í námuverkamönnum í Suður-Afríku. Þeir krefjast betri kjara en mæta hörku af hálfu bæði eigenda og lögreglu. Fjórir námuverkamenn særðust í gær við námu, sem er að hluta í eigu náfrænda Zuma, forseta landsins. Frændi Nelsons Mandela er einnig á meðal eigenda námunnar. JULIUS MALEMA Fyrrverandi leiðtogi ungliðahreyfingar Afríska þjóðarráðsins hefur kvatt sér hljóðs í deilunum. NORDICPHOTOS/AFP MEÐ MÁLUÐ ANDLIT Þessir krakkar tóku þátt í mótmælum gegn Pena Nieto, sem dómstóll í Mexíkó hefur nú staðfest að er réttkjörinn forseti. NORDICPHOTOS/AFP

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.