Fréttablaðið - 04.09.2012, Blaðsíða 42
4. september 2012 ÞRIÐJUDAGUR38
sport@frettabladid.is
WILLUM ÞÓR ÞÓRSSON var í gær rekinn sem þjálfari 1. deildarliðs Leiknis. Willum tók við Leiknisliðinu
fyrir sumarið og var mikils vænst af hans störfum enda Willum afar sigursæll þjálfari. Leiknisliðinu hefur þó ekki
gengið vel undir hans stjórn og er í fallsæti eftir 19 leiki og fimm stigum frá öruggu sæti í deildinni.
1-0 Atli Guðnason (70.), 2-0 Magnús Þór
Magnússon, sjm (75.), 3-0 Viktor Örn Guð-
mundsson (88.).
Skot (á mark): 13-5 (6-1)
Varin skot: Gunnleifur 1 - Ómar 2.
FH (4-3-3): Gunnleifur Gunnleifsson 6 - Guðjón
Árni Antoníusson 6, Guðmann Þórisson 7, Freyr
Bjarnason 7, Danny Justin Thomas 6 (65., Viktor
Örn Guðmundsson 8*) - Bjarki Bergmann Gunn-
laugsson 5, Einar Karl Ingvarsson 6 (65., Kristján
Gauti Emilsson 6), Björn Daníel Sverrisson 6
- Hólmar Örn Rúnarsson 5, Atli Guðnason 7,
Albert Brynjar Ingason 4 (86., Kristján Flóki Finn-
bogason -).
KEFLAVÍK (4-5-1): Kefl avík (4-5-1): Ómar Jó-
hannsson 5 - Sigurbergur Elísson 4 (86., Bojan
Stefán Ljubicic -), Magnús Þór Magnússon 5,
Haraldur Freyr Guðmundsson 4, Jóhann Ragnar
Benediktsson 5 - Einar Orri Einarsson 6, Denis
Selimovic 4, Magnús Sverrir Þorsteinsson 3 (79.,
Rafn Markús Vilbergsson -), Frans Elvarsson 6,
Jóhann Birnir Guðmundsson 4 - Guðmundur
Steinarsson 5 (46., Hörður Sveinsson 3).
* MAÐUR LEIKSINS
Kaplakrikav., áhorf.: 1.030 Vilhjálmur A. Þórarins. (6)
3-0
0-1 Arnar Már Björgvinsson (11.), 0-2 Krist-
inn Jónsson (25.), 0-3 Tómas Óli Garðarsson
(32.), 0-4 Rafn Andri Haraldsson (34.), 1-4
Óli Baldur Bjarnason (56.), 2-4 Hafþór Ægir
Vilhjálmsson (90.)
Skot (á mark): 8-14 (2-8)
Varin skot: Óskar 4 - Ingvar 0.
GRINDAVÍK (4-4-2): Óskar Pétursson 5 - Ray Ant-
hony Jónsson 3, Loic Mbang Ondo 3, Ólafur Örn
Bjarnason 4, Matthías Örn Friðriksson 3 - Scott
Mckenna Ramsay 4 (73. Hafþór Ægir Vilhjálmsson
6), Marki Valdimar Stefánsson 4, Iain James Willi-
amsson 5, Óli Baldur Bjarnason 5 (73. Magnús
Björgvinsson 5) - Pape Mamadou Faye 4(87.
Daníel Leó Grétarsson -), Tomi Ameobi 4.
BREIÐABLIK (4-5-1): Ingvar Þór Kale 6 - Gísli Páll
Helgason 6, Sverrir Ingi Ingason 6, Renee Troost
6, Kristinn Jónsson 8* - Andri Rafn Yeoman 7 (70.
Sindri Snær Magnússon 5), Finnur Orri Margeirs-
son 7, Rafn Andri Haraldsson 8 - Tómas Óli
Garðarsson 7 (62. Haukur Baldvinsson 5), Arnar
Már Björgvinsson 7(85. Adam Örn Arnarson -),
Nicklas Rohde 7
* MAÐUR LEIKSINS
Grindavíkurv., áhorf.: 243 Valgeir Valgeirsson (7)
2-4
1-0 Kristinn Ingi Halldórsson (45.+1), 2-0
Kristinn Ingi Halldórsson (58.), 3-0 Sam
Tillen (62.), 4-0 Almarr Ormarsson (68.).
Skot (á mark): 9-3 (7-1)
Varin skot: Ögmundur 1 - Bjarni 2.
FRAM (4-3-3): Ögmundur Kristinsson 7 - Alan
Lowing 6, Kristján Hauksson 7, Hlynur Atli Magn-
ússon 6, Daði Guðmundsson 7 (83. Hólmbert
Aron Friðjónsson-) - Ásgeir Gunnar Ásgeirsson 5
(62. Jón Gunnar Eysteinsson 5), Halldór Hermann
Jónsson 6, Samuel Hewson 6 - Almarr Ormarsson
7 (69. Sveinbjörn Jónasson 5), Sam Tillen 5, Krist-
inn Ingi Halldórsson 8*.
FYLKIR (4-3-3): B Bjarni Þórður Halldórsson 4 -
Magnús Þórir Matthíasson 5 (69. Emil Ásmunds-
son 5), David Elebert 4 (76. Þórir Hannesson -),
Davíð Þór Ásbjörnsson 5, Ásgeir Eyþórsson 5 - Ás-
geir Börkur Ásgeirsson 4, Finnur Ólafsson 6, Árni
Freyr Guðnason 6 - Ingimundur Níels Óskarsson
4, Elís Rafn Björnsson 5 - Björgólfur Hideaki Take-
fusa 4 (69. Styrmir Erlendsson 5).
* MAÐUR LEIKSINS
Laugardalsv., áhorf.: 627 Guðmundur Guðmunds. (7)
4-0
STAÐAN:
FH 18 13 2 3 43-17 41
KR 18 9 4 5 32-23 31
Stjarnan 18 7 8 3 37-31 31
ÍBV 18 8 4 6 28-16 28
ÍA 18 8 4 6 27-31 28
Breiðablik 18 7 5 6 22-24 26
Valur 18 8 0 10 28-27 24
Keflavík 18 7 3 8 27-30 24
Fylkir 18 6 5 7 22-34 23
Fram 18 6 2 10 27-29 20
Selfoss 18 5 3 10 25-34 18
Grindavík 18 2 4 12 25-47 10
NÆSTU LEIKIR:
Sun. 16. sep: ÍBV - Grindavík
Sun. 16. sep: ÍA - Valur
Sun. 16. sep: Keflavík - Fram
Sun. 16. sep: Fylkir - Selfoss
Sun. 16. sep: KR - Breiðablik
Sun. 16. sep: Stjarnan - FH
PEPSI-DEILDIN
FÓTBOLTI Landsliðsmaðurinn
Rúrik Gíslason skrifaði í gær
undir fjögurra ára samning við
stærsta félag Danmerkur, FCK.
Hjá félaginu hittir Rúrik fyrir
tvo félaga sína í landsliðinu, þá
Sölva Geir Ottesen og Ragnar
Sigurðsson. Þetta er mikil viður-
kenning fyrir Rúrik enda hefur
þetta félag haft talsverða yfir-
burði í danska boltanum undan-
farin ár.
Aðeins degi fyrir söluna frá OB
bjargaði Rúrik liði OB með stigi
í leik gegn FCK. Hann skoraði þá
lokamark leiksins í 2-2 jafntefli.
Það var hans kveðjugjöf til OB.
„Þetta er rétta skrefið fyrir
minn feril. Ég hef alltaf stefnt
að því að bæta mig á hverju ári.
FCK er félag sem allir vilja spila
fyrir hér í landi. Ég er stoltur og
ánægður með að vera orðinn leik-
maður félagsins,“ segir Rúrik á
heimasíðu FCK.
„Ég er líka þakklátur OB fyrir
að virða mínar óskir og leyfa
mér að komast til FCK. Ég vænti
þess að FCK keppi um alla titla
á hverju ári og ég ætla að leggja
mitt af mörkum til þess að félagið
verði sigursælt.“
Rúrik hélt síðan heim til
Íslands en hann er að sjálf-
sögðu í leikmannahópi Íslands
sem mætir Noregi á föstudag og
Kýpur á þriðjudag.
Það verða fyrstu leikir Íslands
í undankeppni HM 2014 og fyrstu
alvöruleikir liðsins undir stjórn
Svíans Lars Lagerbäck. - hbg
Rúrik söðlaði um í gær:
Keyptur til
stórliðs FCK
RÚRIK Er orðinn leikmaður stærsta
félags Danmerkur. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
FÓTBOLTI FH náði tíu stiga forystu
á toppi Pepsi-deildar karla með 3-0
sigri á Keflavík á heimavelli sínum
í gær. Öll mörkin komu á tuttugu
síðustu mínútunum en Keflavík var
manni færri í rúman hálftíma.
FH fékk mýmörg færi í leiknum
en átti í stökustu vandræðum upp
við markið allt þar til Viktor Örn
Guðmundsson kom inn á þegar 25.
mínútur voru eftir af leiknum.
„Þetta var basl í byrjun en þetta
kom þegar kallinn kom inn á,“
sagði glettinn Viktor Örn í leikslok.
„Heimir sagði mér að koma inn
og breyta gangi leiksins. Ég náði
að leggja upp mark og skora gull-
fallegt mark líka,“ sagði Viktor og
ýkir töluvert því Ómar Jóhannsson
missti boltann undir sig í marki
Viktors. „Hann missti hann bara
enda vel blautt. Það er alltaf gaman
að skora, sérstaklega þegar þú ert
bakvörður.“
FH er komið í mjög vænlega
stöðu á toppi deildarinnar. Liðið er
með tíu stiga forskot á KR þegar
fjórir leikir eru eftir og þurfa
því aðeins einn sigur til að landa
Íslandsmeistaratitlinum.
„Þetta er ekki komið, við megum
ekki segja það, en við erum komn-
ir í mjög góða stöðu með þessum
sigri. Við missum þetta ekki niður.“
„Við höfum átt í erfiðleikum með
að klára færin í sumar en stíflan
brást þegar ég kom inn á,“ sagði
Viktor sposkur.
Þrátt fyrir að það hefði verið
markalaust þegar Jóhann Birn-
ir Guðmundsson fékk sitt annað
gula spjald á 57. mínútu þá hafði
FH haft tögl og hagldir í leiknum
og fengið mörg færi. Einum færri
áttu Keflvíkingar aldrei möguleika
og þá sérstaklega eftir að Heimir
gerði tvöfalda breytingu á liði sínu
og Viktor sendi á kollinn á Atla
Guðnasyni sem skoraði 10. mark
sitt á tímabilinu.
Jóhann Birnir var allt annað en
sáttur við rauða spjaldið og benti
þrálátlega á Guðjón Árna Antoníus-
son sem féll í jörðina þegar fyrrum
félögunum í Keflavík lenti saman.
Jóhann fékk sitt annað gula spjald
fyrir hrindinguna og vildi lítið
segja um atvikið.
„Þú verður að spyrja Guðjón
Árna að því. Þá getur þú séð hvort
hann er jafn óheiðarlegur í svörum
og í atburðum úti á vellinum. Ég
vil ekkert segja um þetta mál. Þið
getið skoðað þetta og séð úr hverju
Guðjón Árni er gerður,“ sagði
reiður Jóhann og var ekki hættur.
„Hann byrjaði á að skalla mig og
ég er greinilega ekki jafn óheiðar-
legur og hann, henda mér niður
eins og einhver pussudúkka. Ég
átta mig engan veginn á þessu.
Ég efast um að ég bjóði honum í
afmælið mitt,“ sagði Jóhann um
fyrrum samherja sinn.
„Þetta var erfiður leikur á móti
góðu liði FH. Við áttum erfitt upp-
dráttar, sérstaklega í fyrri hálfleik
en það var 0-0 og við vorum enn þá
inni í þessu,“ sagði Jóhann.
Útlitið dökkt hjá Grindavík
Fátt annað en fall virðist blasa
við Grindvíkingum eftir stórtap á
heimavelli gegn Blikum í gær. Blik-
ar gerðu út um leikinn á rúmum
hálftíma með fjórum mörkum en
Blikar hafa skorað fæst mörk allra
liða í deildinni.
„Það liggur fyrir eftir þennan
leik að líkurnar á því að Grinda-
vík verði áfram í Pepsi-deildinni
fara minnkandi. Síðustu töp hafa
verið slæm og útlitið er vægast
sagt dökkt,“ sagði Guðjón Þórðar-
son, þjálfari Grindavíkur, þungur
á brún.
„Ef menn hafa ekki trú á því að
þeir geti unnið þá munu þeir ekki
vinna neina leiki. Það er alveg
ljóst.“
- gmi, shf
Bikarinn á leið í Fjörðinn
FH er komið með tíu stiga forskot í Pepsi-deild karla og þarf klúður aldarinnar
til að liðið verði ekki Íslandsmeistari enda aðeins fjórir leikir eftir af deildinni.
Að sama skapi blasir ekkert annað en fall við Grindavík eftir enn eitt tapið.
TILÞRIF FH-ingurinn Björn Daníel og Keflvíkingurinn Einar Orri eru hér í harðri baráttu
í Krikanum í gær. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
FÓTBOLTI Framarar unnu frábær-
an sigur á Fylki, 4-0, á Laugar-
dalsvellinum í Pepsi-deild karla í
gærkvöldi en sigurinn verður að
teljast einn sá allra mikilvægasti
fyrir Safamýrapilta á tímabilinu.
Liðið kom sér úr fallsætinu með
sigrinum. Kristinn Ingi Halldórs-
son fór á kostum í Fram-liðinu og
var maðurinn á bak við sigurinn.
Framarar léku frábærlega í síð-
ari hálfleiknum og áttu sigurinn
svo sannarlega skilið. Fylkismenn
misstu Ásgeir Börk Ásgeirsson út
af með rautt spjald í upphafi síðari
hálfleiksins og það hafði vissulega
mikið að segja. Ásgeir Börkur sló
til Almarrs Ormarssonar og fékk
réttilega beint rautt spjald.
„Ég er gríðarlega ánægður með
spilamennsku liðsins í kvöld,“
sagði Þorvaldur Örlygsson, þjálf-
ari Fram, eftir sigurinn í gær.
„Þetta er þriðji leikurinn í
röð sem við náum að halda góðu
tempói og leikur okkar hefur farið
stigvaxandi að undanförnu. Hlut-
irnir voru að detta með okkur í
kvöld og það gerist ekki á hverj-
um degi. Þetta er hvergi nærri
komið hjá okkur, við þurfum bara
að halda áfram okkar striki og ná í
eins mörg stig og við getum.“
Ásmundur Arnarsson, þjálfari
Fylkis, var daufur. „Ég er miður
mín eftir þennan leik og með það
hvernig mínir menn léku í kvöld,“
sagði Ásmundur. „Við vorum virki-
lega slakir í kvöld og áttum ekk-
ert skilið út úr þessum leik. Liðið
var á eftir Fram í öllum aðgerðum
og frammistaða okkar í kvöld var
hrein hörmung.
Það vantaði alla grimmd í mitt
lið í kvöld og við leyfðum þeim
að spila sinn leik alveg frá fyrstu
mínútu. Núna verðum við að skoða
okkar mál og það blasir bara við
okkur hörð botnbarátta.“
- sáp
Framarar eru komnir úr fallsæti eftir stórsigur á Fylkismönnum á Laugardalsvelli í gær:
Fylkismenn réðu ekkert við Kristin Inga
ERUÐ ÞIÐ EKKI Í SAMA LIÐI? Fylkismenn bítast um boltann í Dalnum í gær.
FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM