Fréttablaðið - 04.09.2012, Blaðsíða 32

Fréttablaðið - 04.09.2012, Blaðsíða 32
4. september 2012 ÞRIÐJUDAGUR28 Júlían Jóhann Karl Jóhannsson hlaut gullverðlaun í réttstöðulyftu í yfir- þungavigt á Heimsmeistaramóti ung- linga sem haldið var í Póllandi um helgina og setti Íslandsmet unglinga í bekkpressu. Júlían lyfti 325 kílóum í réttstöðulyftu sem tryggði honum heimsmeistaratitilinn. „Mér líður rosa- lega vel. Ég bjóst eiginlega ekki við þessu því ég tognaði í mjóbaki á mikil- vægum tíma í undirbúningnum fyrir leikana. En ég stefndi á að ná góðum árangri,“ sagði Júlían, sem var á flug- velli í London á leið heim til Íslands þegar Fréttablaðið sló á þráðinn. Júlían er 19 ára gamall og hefur æft kraftlyftingar í fjögur ár hjá kraftlyft- ingadeild Ármanns. „Ég var í körfu- bolta áður fyrr en ákvað að prófa kraftlyftingar, man nú eiginlega ekki af hverju það var. En ég fann mig mjög vel um leið og ég byrjaði að æfa. Held að það sé út af því að maður er alltaf að byggja sig upp og finnur og sér árang- urinn jafn óðum.“ Júlían keppti í yfirþungavigt sem er flokkur þeirra sem eru þyngri en 120 kíló. „Ég byrjaði auðvitað í léttari flokkum en er nú kominn í minn rétta flokk,“ segir Júlían sem æfir sjö sinnum í viku að meðaltali, stundum minna og stundum meira. „Mér gengur bara mjög vel að sameina æfingarnar náminu en ég er á síðasta ári í MH en þar legg ég stund á nám á félagsfræði- braut.“ Spurður hvort hann viti um fleiri nema í MH sem séu í kraftlyft- ingum kveður hann nei við. „Ég held ég sé eini nemandinn í skólanum í þessu. En félagar mínir eru flestir í kraftlyft- ingum,“ segir Júlían að lokum. sigridur@frettabladid.is Ástkær eiginmaður minn, faðir, tengdafaðir, afi og langafi, GUNNAR HELGASON húsgagnabólstrari, Lautasmára 1, áður Laugateigi 8, Reykjavík, lést á Dvalarheimilinu Skjóli, laugardaginn 1. september. Útförin auglýst síðar. Guðbjörg Þórarinsdóttir Helgi Gunnarsson Linda Ósk Sigurðardóttir barnabörn og barnabarnabarn. Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir, amma, langamma og langalangamma, SIGRÍÐUR ÞORBJÖRNSDÓTTIR áður til heimilis að Mörk í Garði, lést á Hjúkrunarheimilinu Hlévangi, Faxabraut 13, Keflavík, þriðjudaginn 28. ágúst. Útför hennar fer fram frá Útskálakirkju, fimmtudaginn 6. september kl. 13.00. Sérstakar þakkir fær starfsfólk Hlévangs fyrir góða og kærleiksríka umönnun sem verður seint þakkað. Fyrir hönd aðstandenda, Ægir Guðlaugsson HULDA SVEINSSON læknir lést á Hjúkrunarheimilinu Sóltúni sunnudaginn 19. ágúst. Útförin hefur farið fram í kyrrþey að ósk hinnar látnu. Aðstandendur. Ástkær systir okkar, amma og frænka, SÓLVEIG GÍSLADÓTTIR frá Helluvaði í Mývatnssveit, er látin. Útförin hefur farið fram í kyrrþey að ósk hinnar látnu. Sérstakar þakkir til starfsfólksins á deild B-2 á Landspítalanum í Fossvogi. Fyrir hönd aðstandenda, Auður Gísladóttir Okkar ástkæri eiginmaður, faðir, tengdafaðir, afi og langafi, ÞRÁINN KRISTINSSON fyrrverandi skipstjóri, Fagrahjalla 3, Kópavogi, lést fimmtudaginn 30. ágúst. Útförin fer fram frá Fríkirkjunni í Hafnarfirði fimmtudaginn 6. september kl. 15.00. Björg Helgadóttir Þorbjörg Þráinsdóttir Magnús Ásgeirsson Geir Þráinsson Kristín Sigurðardóttir Halldór Þráinsson Steinunn Þ. Júlíusdóttir barnabörn og barnabarnabörn. Elskulegur eiginmaður, faðir, afi og langafi, SVEINBJÖRN JAKOBSSON Móabarði 30, lést á Landspítalanum sunnudaginn 2. september. Jarðarförin verður auglýst síðar. Nanna Jakobsdóttir Hildur Sveinbjörnsdóttir Sindri Sveinbjörnsson Hjörleifur Sveinbjörnsson og fjölskyldur. Elskulegur eiginmaður minn, faðir, tengdafaðir, afi og langafi, KRISTJÁN BERNHARD THOMPSON Næfurási 10, Reykjavík, lést föstudaginn 31. ágúst á Landspítalanum við Hringbraut, deild 11. Valdís Helgadóttir Helena Vigdís Kristjánsdóttir Óskar Jónsson Hrönn Jónsdóttir Stefán Ingi Óskarsson afa- og langafabörn. GUÐMUNDUR PÁLL ÓLAFSSON rithöfundur og náttúrufræðingur, Neskinn 1, Stykkishólmi, verður jarðsunginn frá Dómkirkjunni í Reykjavík, fimmtudaginn 6. september kl. 15. Blóm og kransar vinsamlega afþakkaðir. Þeim sem vilja minnast GPÓ er bent á Auðlind Náttúrusjóð, bankareikningur 0325-13-301930, kennitala: 580408-0440. Nánari upplýsingar um sjóðinn er að finna á audlind.org. Ingunn K. Jakobsdóttir Blær Guðmundsdóttir Finni Jóhannsson Ingibjörg S. Guðmundsdóttir Ragnar B. Jóhannsson Halla B. Guðmundsdóttir Mads Thygesen Rökkvi Steinn, Salka og Þórkatla Atli Þór Sveinbjarnarson hreppti silfurverðlaun á Ólymp- íuleikum framhaldsskólanema í eðlisfræði sem fram fóru í sumar og er það í fyrsta sinn sem Íslendingur fær silfur verðlaun á leikunum. Atli og félagar hans í liði Íslands náðu besta árangri sem Íslendingar hafa náð hingað til og hlutu tvær viðurkenningar, eitt brons og silfurverðlaunin. Auk Atla Þórs voru í liði Íslands Freyr Sverrisson, Hólmfríður Hannesdóttir, Pétur Rafn Bryde og Stefán Alexis Sigurðsson. Stefán og Pétur fengu viðurkenn- ingar og Hólmfríður bronsverðlaun fyrir þátttöku sína. Þau hafa öll stundað nám í Menntaskólanum í Reykjavík nema Pétur sem er úr Borgarholtsskóla. Farar stjórar voru eðlisfræðingarnir Ingibjörg Haraldsdóttir, for- maður landskeppninnar í eðlisfræði og Martin Swift, þjálfari liðsins. Ísland tók nú þátt í Ólympíuleikunum í eðlisfræði í 29. sinn. Ólympíuleikar sumarsins eru þeir 43. í röðinni og voru þeir haldnir í borgunum Tallin og Tartu í Eistlandi. Þess má geta að Íslendingar og Finnar stóðu sig best liða frá Norðurlöndum og mun betur en keppendur frá hinum löndunum. Silfurverðlaun í eðlisfræði ÁNÆGÐ MEÐ ÁRANGURINN Keppendur og aðstandendur voru heiðr- aðir af Katrínu Jakobsdóttur mennta- og menningarmálaráðherra fyrir árangur sinn á Ólympíuleikunum í eðlisfræði. Samanlagður árangur Júlíans Jóhanns Karls Jóhannssonar var 880 kíló. Það er nálægt hans besta árangri sem er 882,5 kíló. Það skilaði honum fimmta sæti í samanlögðum árangri þátt- takenda. Júlían lyfti 320 kílóum í hnébeygju sem var undir væntingum, 245 í bekkpressu sem er nýtt Íslandsmet unglinga og svo 315 kílóum í réttstöðulyftu þar sem hann vann gullverðlaun sem fyrr segir. Sigurvegari í samanlagðri yfirþungavigt varð Arron Gonzales frá Bandaríkj- unum en hann lyfti 977,5 kílóum. Þess má geta að aldursflokkurinn sem Júlían keppti í eru 19 til 23 ár og var hann því með þeim yngri í sínum flokki enda bara 19 ára gamall. LYFTI 880 KÍLÓUM JÚLÍAN JÓHANN KARL JÓHANNSSON: HEIMSMEISTARI Í RÉTTSTÖÐULYFTU Óttaðist að bakmeiðsl kæmu í veg fyrir góðan árangur HEIMSMEISTARI UNGLINGA Á VERÐLAUNAPALLI Júlían Jóhann Karl Jóhannsson fagnar heimsmeistaratitli í réttstöðulyftu á Heimsmeistaramóti unglinga sem haldið var í Póllandi. Merkisatburðir 476 Rómúlus Ágústus, síðasti keisari Vestrómverska ríkisins, rekinn í útlegð. 1882 New York-borg raflýst fyrst allra borga í heiminum að til- stuðlan uppfinningamannsins Edisons. 1888 Jón Árnason, brautryðjandi á sviði söfnunar og skráningar íslenskra þjóðsagna, lést 69 ára gamall. 1943 Íslandsklukkan eftir Halldór Kiljan Laxness kemur út og hlýtur mjög góðar viðtökur. 1969 Björgvin Halldórsson 18 ára kosinn poppstjarna ársins á popphátíð í Laugardalshöll í Reykjavík. 1973 Menntamálaráðherra ákveður að fella brott bókstafinn z úr opinberu íslensku ritmáli. 1998 Google stofnað af Larry Page og Sergey Brin, nemendum við Stanford-háskóla.

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.