Fréttablaðið - 04.09.2012, Síða 16
16 4. september 2012 ÞRIÐJUDAGUR
FRÉTTABLAÐIÐ Skaftahlíð 24, 105 Reykjavík SÍMI: 512 5000, ritstjorn@frettabladid.is FRÉTTASTJÓRAR: Arndís Þorgeirsdóttir arndis@frettabladid.is, Kristján Hjálmarsson, kristjan@frettabladid.is og Trausti Hafliðason trausti@frettabladid.is
HELGAREFNI: Sigríður Björg Tómasdóttir, ritstjórnarfulltrúi, sigridur@frettabladid.is MENNING: Bergsteinn Sigurðsson bergsteinn@frettabladid.is DÆGURMÁL: Kjartan Guðmundsson kjartan@frettabladid.is FÓLK OG SÉRBLÖÐ: Elín Albertsdóttir elin@365.is og Vera Einarsdóttir vera@365.is
ÍÞRÓTTIR: Sigurður Elvar Þórólfsson seth@frettabladid.is LJÓSMYNDIR: Pjetur Sigurðsson pjetur@frettabladid.is FRAMLEIÐSLUSTJÓRI: Kolbrún Ingibergsdóttir kolbrun@frettabladid.is
ÚTGÁFUFÉLAG: 365 miðlar ehf. STJÓRNARFORMAÐUR: Ingibjörg S. Pálmadóttir FORSTJÓRI OG ÚTGÁFUSTJÓRI: Ari Edwald
RITSTJÓRI: Ólafur Þ. Stephensen olafur@frettabladid.is AÐSTOÐARRITSTJÓRI: Steinunn Stefánsdóttir steinunn@frettabladid.is
Fréttablaðið kemur út í 90.000 eintökum og er dreift ókeypis á heimili á höfuðborgarsvæðinu og Akureyri. Einnig er hægt að
fá blaðið í völdum verslunum á landsbyggðinni. Fréttablaðið áskilur sér rétt til að birta allt efni blaðsins í stafrænu formi og í
gagnabönkum án endurgjalds. Issn 1670-3871
greinar@frettabladid.is
FRÁ DEGI TIL DAGS
HALLDÓR
Víða erlendis taka foreldrar grunn-skólabarna mun virkari þátt í ráðn-
ingarferli skólastjóra en tíðkast á Íslandi.
Talið er æskilegt að foreldrar, skatt-
greiðendur, hafi þannig beina aðkomu að
þeirri lykilákvörðun, sem ráðning skóla-
stjóra vissulega er fyrir skólann og við-
komandi íbúahverfi.
Fulltrúar Sjálfstæðisflokksins í skóla-
og frístundaráði Reykjavíkur vilja að
virkt samráð verði tekið upp við foreldra-
félög í borginni við nýráðningar skóla-
stjóra og hafa lagt fram tillögu þar að
lútandi.
Slíkt samráð feli í sér að í skóla, þar
sem ráðning skólastjóra stendur fyrir
dyrum, skuli gefa stjórn viðkomandi for-
eldrafélags kost á að kynna sér helstu
upplýsingar um umsækjendur og hitta þá
að máli til að kynnast sýn þeirra á starfið.
Ef því verður við komið, verði stjórn for-
eldrafélags heimilt að efna til fundar, sem
opinn verði öllum foreldrum viðkomandi
skóla, þar sem umsækjendum, sem full-
nægja kröfum til starfsins, verði gefinn
kostur á að kynna sig og stefnumál sín.
Í framhaldi af slíkum fundi sé stjórn
foreldrafélags heimilt að skila umsögn
til skóla- og frístundaráðs með áliti um
hver sé hæfastur til að gegna viðkom-
andi starfi. Stjórn foreldrafélagsins verði
einnig heimilt að skila umsögn til ráðs-
ins án þess að mælt sé með ákveðnum
umsækjanda en með ábendingum um
hvaða atriði sé æskilegt að leggja áherslu
á þegar ráðið verður í stöðuna með tilliti
til vilja foreldra og aðstæðna í umrædd-
um skóla.
Með samþykkt tillögunnar yrði brotið
blað varðandi aðkomu foreldra að skóla-
starfi í Reykjavík. Foreldrafélög fái
þannig í raun rétt til umfjöllunar og
umsagnar áður en nýr skólastjóri er ráð-
inn. Það væri síðan hverju foreldrafélagi
í sjálfsvald sett hvort slík heimild yrði
nýtt og með hvaða hætti.
Þannig væri tryggt að rödd foreldra
myndi heyrast í ráðningarferlinu en eftir
sem áður myndi skóla- og frístundaráð
Reykjavíkur annast sjálfa ráðninguna og
bera ábyrgð á henni eins og kveðið er á
um í samþykktum ráðsins.
Foreldrar komi að ráðningum
skólastjóra grunnskólanna
Menntamál
Kjartan
Magnússon
borgarfulltrúi
S
ú tímabæra breyting tók gildi um mánaðamótin að nýtt
atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneyti tók til starfa. Hin
gamla skipan mála var orðin löngu úrelt. Þar áttu fornir
undirstöðuatvinnuvegir, sjávarútvegur og landbúnaður,
auk iðnaðarins „sín“ ráðuneyti og aðrar atvinnugreinar
fengu takmarkaða eða handahófskennda athygli.
Rökin fyrir því að leggja niður lítil ráðuneyti sem pössuðu upp á
sérhagsmuni og setja á fót stórt ráðuneyti sem horfir á hagsmuni
og starfsumhverfi atvinnulífsins almennt eru augljós, enda hafa
allir stóru flokkarnir ályktað um
málið, þótt sumir hafi eitthvað
lítið viljað kannast við það nú í
aðdraganda þessarar breytingar.
Steingrímur J. Sigfússon,
atvinnuvega- og nýsköpunarráð-
herra, sagði réttilega hér í blaðinu
í síðustu viku að með þessari
breytingu skapaðist meira jafn-
ræði með atvinnugreinunum. „Við getum tekið einhverja mestu
vaxtargrein íslensks atvinnulífs undanfarin ár og áratugi, ferða-
þjónustuna. Það hefur aldrei verið til ráðuneyti ferðamála, þó þeim
hafi alltaf verið sinnt í þeim ráðuneytum sem með þau hafa farið
á hverjum tíma,“ sagði Steingrímur. „Þá er verslunin mjög mikil-
væg atvinnugrein, en hefur ekki kannski beinlínis verið sett upp
sem slík í skipulagi stjórnarráðsins. Hinar skapandi greinar munu
einnig eiga sinn fulltrúa í þessu nýja skipulagi.“
Ein mikilvægasta breytingin er sú að sameinað ráðuneyti ætti að
hafa bolmagn til sjálfstæðrar stefnumótunar í stað þess að ganga
erinda öflugra hagsmunasamtaka atvinnugreinanna, eins og oft
hefur brugðið við. Einkum og sér í lagi í landbúnaðarráðuneytinu
á meðan það var og hét, en líka að einhverju leyti í sjávarútvegs-
og iðnaðarráðuneytunum, var stundum erfitt að átta sig á því hvar
stjórnsýslan endaði og hagsmunasamtökin tóku við.
Breytingin setur hins vegar ráðherra atvinnu- og nýsköpunar-
mála í nýja stöðu. Hann getur ekki lengur verið hagsmunagæzlu-
maður og talsmaður „sinnar“ atvinnugreinar á kostnað annarra.
Um þetta skrifuðu forystumenn Samtaka verzlunar og þjónustu,
Margrét Kristmannsdóttir og Andrés Magnússon, í grein í helgar-
blaði Fréttablaðsins: „Atvinnuvega- og nýsköpunarráðherra mun
hafa heildarsýn yfir atvinnulífið í landinu og SVÞ leggja áherslu
á að sá ráðherra sem fer með þennan málaflokk nú og í framtíð-
inni tryggi að jafnvægis verði gætt á milli allra atvinnugreina, að
heildarhagsmunir verði hafðir að leiðarljósi og að þröngir sérhags-
munir ráði aldrei för.“
Þetta eru vafalaust væntingar, sem fleiri gera til nýs ráðuneytis
og ráðherra þess. Þá vakna spurningar eins og þessi: Hvað gerir
Steingrímur J. Sigfússon til dæmis ef enn einu sinni slær í brýnu
með landbúnaðinum, sem vill hafa sem allra hæsta tolla á mat sem
er fluttur inn til landsins, og innflytjendum og smásölum á mat-
vörumarkaði, sem ásamt neytendum eiga skýra hagsmuni af því
að tollar séu sem lægstir og samkeppnin sem virkust? Hvar telur
hann að almannahagsmunirnir liggi?
Það getur orðið vandlifað í hinum nýja sameinaða ráðherrastól
og mun reyna á ráðherrann.
Nýtt ráðuneyti á að horfa til heildarhagsmuna:
Reynir á
ráðherrann
Ólafur Þ.
Stephensen
olafur@frettabladid.is
SKOÐUN
Sýnd í Odda 101
Í dag kl. 17:00
Skuggagaldrar
Allir velkomnir,
aðgangur ókeypis
Konfúsíusarstofnunin Norðurljós sýnir kvikmyndina
Eru kvikmyndir ógn við hefðina?
Pilsfaldakapítalisminn
Einn af hornsteinum stefnu Sjálf-
stæðisflokksins er að nýta eigi krafta
einstaklingsins með sem minnstum
afskiptum hins opinbera. Markaður-
inn á helst að ráða. Nú ber svo við
að fyrirtæki austur á fjörðum hefur
keypt fyrirtæki í Vestmannaeyjum á
þessum sama markaði. Bæjarstjórnin
í Vestmannaeyjum, sem Sjálfstæðis-
menn skipa, hyggst hins vegar koma í
veg fyrir að markaðurinn ráði og stíga
inn í þau kaup. Pilsfalda kapítalismi
hét þetta einu sinni
og á að heita enn,
óháð því hvort
gjörningurinn sé
réttur eður ei.
Fórnarlambavæðingin
Orð hafa ábyrgð og það skilja þeir
sem tjá sig og rita á opinberum vett-
vangi. Undanfarið hafa nokkur dæmi
sést af því að menn úr viðskiptalífinu
tala um sig sem fórnarlömb vegna
þess hvernig fyrir þeim er komið.
Með því reyna þeir að nýta sér þá
samúð sem orðinu fylgir. Vel má
vera að einhverjir þeirra telji
sig svikna í viðskiptum, en
er ekki ábyrgara að skýla sér
ekki á bak við fórnarlambs-
stimpil?
Sama skrifstofan
Mörður Árnason, þingmaður Sam-
fylkingarinnar, fagnar nýju ráðuneyti
umhverfis- og auðlindamála. Hann
segir í pistli á heimasíðu sinni að
planið hafi verið að lagt yrði á ráðin
um allar auðlindir hafs og lands
á einum stað í stjórnarráðinu, í
umræddu ráðuneyti. Þess vegna sé
það miður að ekki hafi orðið af
þessu, eina breytingin sé nýtt heiti
á skrifstofunum við Skuggasund.
Eina stofnunin sem flust hafi
undir ráðuneytið sé Veiðimála-
stofnun. Þurfa ekki oddvitar
ríkisstjórnarinnar að svara
fyrir þessa gagnrýni?
kolbeinn@frettabladid.is