Fréttablaðið - 03.10.2012, Side 1

Fréttablaðið - 03.10.2012, Side 1
veðrið í dag SKIPULAGSMÁL Dagsektir eru nú lagðar á sex hús í Reykjavík sam- kvæmt yfirliti sem byggingar- fulltrúinn í Reykjavík gerði fyrir skipulagsráð borgarinnar og var kynnt ráðinu á fundi á mánudag. Ákvörðun hefur verið tekin um beitingu dagsekta vegna þriggja húsa til viðbótar. Dagsektirnar nema í dag tæp- lega 32 milljónum króna, sam- kvæmt útreikningi Fréttablaðsins miðað við upplýsingar úr yfirliti byggingarfulltrúans. Páll Hjaltason, formaður skipu- lagsráðs Reykjavíkur, segir dag- sektafyrirkomulagið hafa skilað tilætluðum árangri, þrátt fyrir að borgaryfirvöld hafi ekki gengið hart fram við innheimtu skulda. Hann tekur undir það að tölurnar séu háar og heildar talan hafi komið á óvart. Það sé hins vegar einfaldlega vegna þess að ástandið sé verra en það hefur löngum verið. Páll segir að umburðarlyndi gagnvart húseignum í niðurníðslu hafi verið ríkjandi eftir hrun, eðli- lega. Hin hliðin á peningnum séu almannahagsmunir; niðurnídd hús skemmi út frá sér og geti einfald- lega verið hættuleg, eins og dæmin sanni. Eitt húsanna sem um ræðir er gamla borgarbókasafnið, Esjuberg, sem stendur við Þingholtsstræti 29a. Félagið Inn fjárfesting, sem er í eigu Ingunnar Wernersdóttur, á húsið og lóðina. Framkvæmdir þar hafa legið niðri í nokkur ár og var því ákveðið að leggja á dag- sektir sem nú nema rúmum átta milljónum króna. Ingunn, lögfræð- ingur hennar og byggingarstjóri framkvæmdanna funduðu í ágúst síðastliðnum með byggingarfull- trúa borgarinnar og kom þar fram að framkvæmdir ættu að hefjast á ný á næstunni. Lögð verður fram tímaáætlun um framkvæmdirnar og verða dagsektirnar látnar falla niður þegar framkvæmdum lýkur. Næstmestu sektirnar hafa verið lagðar á húsið við Skólavörðu- stíg 40, tæpar sjö milljónir króna. Framkvæmdir eru hins vegar hafnar þar og hefur húsið verið rifið, en til stendur að byggja þar nýtt og stærra hús. Sektir voru lagðar á tvær lóðir við Langholtsveg í vor þar sem byggingarframkvæmdir hafa ekki verið kláraðar, en í báðum tilvikum var framkvæmdum hætt í október 2008. Samtals nema sektirnar nú 6,5 milljónum króna. Þá eru dag- sektir á fjölbýlishúsi við Lindarvað vegna frágangs 1,4 milljónir króna. Þá eru dagsektir á húsi við Ból- staðarhlíð rúmar 8,8 milljónir króna, en það er vegna óleyfðra breytinga sem gerðar voru. - þeb / shá MEST LESNA DAGBLAÐ Á ÍSLANDI* Sími: 512 5000 *Samkvæmt prentmiðlakönnun Capacent Gallup janúar - mars 2012 Miðvikudagur skoðun 12 SÉRBLAÐ í Fréttablaðinu Fólk 3. október 2012 232. tölublað 12. árgangur ÓDÝRARI BISNESS-MATURMáltíðir bisness-manna í New York hafa breyst mikið frá hruni. Engu að síður eru hádegisverðir þeirra einn mesti drifkrafturinn í rekstri fínna veitingahúsa í borginni. Á hugi Guðna á hellum kviknaði um níu ára aldur í Vestmannaeyjum. Þar leitaði hann eftir hellum og sprungum til að skríða ofan í og fljótlega breyttist áhuginn yfir í ástríðu. „Í fyrstu var það spennan sem dró mig áfram. Það var heillandi að fara ofan í jörðina og sjá aðra veröld sem var ný og öðruvísi. Þegar ég var ellefu ára fékk ég bókina Hraunhellar á Íslandi eftir Björn Hróarsson sem breytti mjög miklu. Ég las bókina, skoðaði myndirnar og varð alveg heltekinn. Síðan þá hefur áhuginn verið til staðar og aldrei dvínað, hann hefur þróast frá spennunni yfir í fræðilega þekkingu og áhuga á könnun og verndun hella. Í dag er ég svo að læra jarðfræði í HÍ sem er nú partur af þessari bakteríu,“ segir Guðni hlæjandi.Eitt af mörgum hlutverkum Hellarann-sóknafélagsins er að varðveita þá hella sem eru á Íslandi. „Þegar ágangur verður mikill þá skemmast hellar oft, drop-steinar og aðrar hraunmyndanir eiga það til að brotna og hverfa úr hellunum, en þær myndast bara einu sinni og koma ekki aftur. Oft er það óviljandi þar sem fólk er með lélega lýsingu. Svo vill safn-ast rusl í þá, troðningur verður mikill og þess háttar. En það er mjög mikilvægt að ganga vel um náttúruna.“ Annað hlut-verk félagsins er að skrá niður og kort-leggja þá hella sem vitað er um og leita nýrra. „Við förum reglulega í ferðir þar sem einn hellir er fullkannaður og í leið-inni er leitað nýrra hella á svæðinu. Við skoðum stundum loftmyndir af svæðinu áður en við förum og vitum því nákvæm-lega hvar við ætlum að leita.“Guðni segir að íslenskir hellar séu ein-stakir á heimsvísu. „Á Íslandi er mikillfjöldi hraunhell dæmis Raufarhólshellir í Þrengslunum sem er að jafnaði með um 10 metra loft- hæð og um kílómetri á lengd og ótrúlega heillandi.“ HELLAÁSTRÍÐA Á HÁU STIGI Í IÐRUM JARÐAR Guðni Gunnarsson er formaður Hellarannsóknafélags Ís-lands. Ungur að árum heillaðist hann af spennunni sem fylgdi því að kanna hraunhella og þeirri töfrandi veröld sem er að finna djúpt í iðrum jarðar. TÖFRAVERÖLDÁ Íslandi er mikinnfjöld Vertu vinurGóð þjónusta - fagleg ráðgjöf.www.mistyskor.is Vandaðir þýskir herraskór úr leðri í úrvali Til dæmis: Teg: 305302/241 - Litur: svart - Stærðir: 40 - 47 Verð: 15.885.- Sími 551 2070Opið mán.-fös. 10-18.Laugardag 10-14. Suðurlandsbraut 50 • Bláu húsin v/FaxafenSími 553 7355 • www.selena.is TILBOÐ-TILBOÐ-TILBOÐAÐHALDSSAMFELLUR Verð nú 9.900 kr. skálastærðir: B-C-D-DD-E-Flitir: svart og húðlitur. DALVEGI 16c · 201 KÓPAVOGISÍMI 568 6411 W Taka 12 Kg · HljóðlátStórt op > auðvelt að hlaðaSparneytin amerísk tæki.<Þvottvélin tekur heitt og kalt vatn Afkastamikill þurrkari > Þvottavél Þurrkari12 kg Amerískgæðavara TÆKIFÆRISGJAFIR Laugaveg i 178 - S ím i : 568 9955 www.tk.is - mikið af frábærum boðumtil %10 afsláttur Það er hefð fyrir því að sektin er látin falla niður ef fólk bregst við. PÁLL HJALTASON FORMAÐUR SKIPULAGSRÁÐS Tugmilljóna sektir vegna trassaskapar Dagsektir vegna sex húsa í borginni eru komnar upp í tæpar 32 milljónir króna. Oft samið um að fella niður sektir ef framkvæmdir fara af stað. Framkvæmdum er lofað á næstunni við gamla borgarbókasafnið við Þingholtsstræti 29a. Meðan þú sprettir úr spori þá sprettur svitinn fram. Taktu hressilega á því án þess að hafa áhyggjur. Maður verður að ná andanum. Skelltu þér í áskrift! 568 8000 | borgarleikhus.is NÝ KILJA Bíðum þess að fá kallið Heimildarmynd verður gerð um handaágræðslu Guðmundar Felix Grétarssonar. fólk 34 TÓNLIST „Ég hef alltaf staðið í því að yrkja, þetta er ekkert nýtt,“ segir Einar Georg Einarsson íslenskukennari sem komist hefur í sviðsljósið undanfarið vegna texta- gerðar á plötum sona sinna, nýstirnisins Ásgeirs Trausta og Þorsteins í Hjálmum. Fyrsta plata þess fyrrnefnda hefur slegið rækilega í gegn. Spurður hvort synirnir hafi tónlistargáfuna frá pabba sínum telur Einar Georg aldrei gott að segja hvaðan fólk hafi hæfileika. „Ég hef auðvitað sungið eigið efni þegar ég hef verið veislu- stjóri og samið nokkur lög fyrir kóra, þannig að kannski á ég ein- hvern þátt í því hvaða braut þeir fetuðu.“ - fsb / sjá síðu 34 Yrkir inn á metsöluplötur: Semur texta fyrir synina EINAR GEORG EINARSSON Dúndurstuð á Októberfest Nokkrir starfsmenn Garðabæjar lentu í skemmtilegri uppákomu þegar þeir tóku sér frístund í Stuttgart og fóru á Októberfest. Vill betri hag dýra Árni Stefán Árnason segir mörgu ábótavant í meðferð dýra hér á landi. tímamót 18 HÉÐINSREITIR Ekki hafa verið lagðar dagsektir á lóðina við Vesturgötu 64 og Seljaveg 2 vegna þess að úrbótum var lofað á fundi í vor. Eigandi Seljavegar hefur staðið við framkvæmdir en ekki eigandi Vesturgötu, og stendur því til að setja dagsektarferli í gang. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI Tíu ár í verðlaunasæti Freyr Bjarnason átti stóran þátt í Íslandsmeistaratitli FH-inga í sumar. sport 30 ÚRKOMUSAMT N-TIL Í dag verða norðan 8-15 m/s hvassast NV-til. Úrkoma N-til en bjart syðra. Hiti 3-10 stig. VEÐUR 4 3 5 7 5 3 DANMÖRK Útlit er fyrir að rottu- plága muni ríða yfir Danmörku þetta haustið, en blaðið metroX- press hefur eftir meindýraeyðum að ástandið sé sérstaklega slæmt miðað við venjulegt árferði. Formaður landssambands meindýraeyða segir dýrin þegar vera farin að láta á sér kræla, en hámarkið komi með næturkulinu þegar dýrin fari að leita inn í hús. Veðrið er sagt eiga þátt í fjölg- uninni í haust, enda hafi ekki verið mikill þurrkur, sem þýði að rotturnar hafi nóg að éta. Íbúar stærstu borga eru hvattir til að setja rottu- lása í klóak rör til að halda rottunum utandyra. - þj Váleg tíðindi frá Danmörku: Segja rottufár í uppsiglingu

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.