Fréttablaðið - 03.10.2012, Page 2
3. október 2012 MIÐVIKUDAGUR2
VEÐUR Síðasti mánuður var úrkomusamasti september víða
á Norðurlandi síðan mælingar hófust. Fádæma úrkomu-
samt var víða um landið norðanvert og úrkoma var vel
ofan meðallags á flestum stöðvum, er fram kemur í sam-
antekt Veðurstofu Íslands á tíðarfari septembermánaðar.
Á Akureyri var meira en þreföld meðalúrkoma, en
meira hefur einungis mælst einu sinni í september og var
það árið 1946.
Óvenjumikið hríðarveður og fannfergi gerði á Norður-
landi dagana 9. til 11. september. Raflínur slitnuðu, þús-
undir fjár týndust í snjónum og rafmagn fór af í fleiri
sólarhringa á sumum svæðum. Enginn bóndi í Þing-
eyjasýslum sem Fréttablaðið hefur rætt við man eftir
slíku tíðarfari áður. Mikil ísing fylgdi veðrinu sem gerði
aðstæður óvenjuslæmar.
Úrkoma í Reykjavík var rúmlega helmingi meiri en í
meðalári, en hún mældist síðast meiri árið 2008.
Fyrstu níu mánuðir ársins voru einnig óvenjuhlýir. Í
Reykjavík hefur meðalhiti tímabilsins aðeins sex sinnum
verið hærri en í ár. Þá hefur einungis tvisvar sinnum
orðið hlýrra í Stykkishólmi frá 1845 og var það 2003 og
2010. Á Akureyri hefur fimm sinnum orðið hlýrra, síðast
2004. - sv
Óvenju öfgafullt tíðarfar hefur verið á landinu með miklum hita og hríðum:
Fádæma úrkomusöm haustbyrjun
MIKIÐ TJÓN Rafmagnslínur á Norðurlandi slitnuðu í sept-
ember vegna ísingar og rafmagn fór af í kjölfarið á stóru
svæði. FRÉTTABLAÐIÐ/EGILL AÐALSTEINSSON
SVÍÞJÓÐ Hætta er á alvarlegu
kjarnorkuslysi í Svíþjóð. Þetta
kemur fram í nýrri skýrslu græn-
friðunga sem segja öryggis-
vandamálin í sænskum kjarn-
orkuverum svo alvarleg að hætta
ætti rekstri þeirra allra.
Á vef Kristilega dagblaðsins
í Danmörku er greint frá því að
grænfriðungar hafi beðið alþjóð-
lega vísindaráðgjafa að greina
próf á sænskum kjarnorkuverum
sem Evrópusambandið fyrirskip-
aði í kjölfar kjarnorkuslyssins í
Fukushima í Japan 2011.
Sænsku kjarnorkuverin voru
byggð á áttunda og níunda áratug
síðustu aldar. - ibs
Ný skýrsla grænfriðunga:
Kjarnorkuslys
ógnar Svíþjóð
EGYPTALAND, AP Mannréttinda-
samtökin Amnesty International
skora á Mohammed Morsi, forseta
Egyptalands, að láta rannsaka það
ofbeldi sem öryggissveitir landsins
beittu almenn-
ing, einkum þó
mótmælendur,
eftir að Hosni
Mubarak var
steypt af stóli
snemma síðasta
árs.
Sam tökin
gagnrýna
Morsi fyrir að
hafa ekki tekið
þennan vanda nógu alvarlegum
tökum og skora á hann að draga
her landsins til ábyrgðar fyrir
morð, pyntingar og kynferðisbrot
sem framin voru þá 18 mánuði sem
bráðabirgðastjórn hersins var við
völd. - gb
Amnesty skorar á Morsi:
Misþyrmingar
verði kannaðar
MOHAMMED
MORSI
FJÁRMÁL Það er alltaf dýrt að vera
í vanskilum, segir tollstjóri, sem
ráðleggur engum að gera sam-
komulag um greiðsluáætlun við
embættið ef hann getur á annað
borð staðið skil á skattgreiðslum –
sérstaklega vörslusköttum.
Fréttablaðið sagði frá því í síð-
ustu viku að DV hefði í sumar
skuldað 76 milljónir í vörsluskatta
en hefði gert samkomulag við toll-
stjóra um greiðsluáætlun fram
undir áramót. Þetta hefur vakið
upp spurningar um það hvernig
farið sé með þessi mál hjá toll-
stjóra og hvort allir skuldarar njóti
þar jafnræðis.
Snorri Olsen tollstjóri segir
greiðsluáætlanirnar fyrst og
fremst hafa þau áhrif að fresta
fjárnámi. Það eina sem vaki hins
vegar fyrir embættinu sé að fá
kröfu sína greidda að eins miklu
leyti og unnt er. „Okkar mark-
mið er ekki að selja eignir eða
að vörslusvipta bíla. Ef viðkom-
andi sýnir greiðsluvilja og krafan
lækkar þá erum við þokkalega
róleg á meðan,“ segir hann.
Greiðsluáætlun hjálpar einnig
tollstjóraembættinu að því leyti að
með því rofnar fresturinn fram að
fyrningu kröfunnar. „Þar með er
skuldarinn að viðurkenna kröfuna
og við þurfum ekki að fara í
aðgerðir til að rjúfa fyrningu.“
Þetta úrræði stendur öllum jafnt
til boða að sögn Snorra og yfir sex
þúsund einstaklingar og fyrir-
tæki nýta sér það á ári. Greiðslu-
áætlun af þessu tagi standa aðeins
til boða í sex mánuði í senn og að
þeim tíma loknum taka við nýjar
viðræður um framhald.
„Yfirleitt þarftu að borga mán-
aðarlega þannig að það líður ekki
mjög langur tími þangað til það
kemur í ljós hvort þú getur staðið
við þetta,“ segir Snorri. Þá komi
aftur til skoðunar að gera fjár-
Dýrt að skulda skatt
Tollstjóri segir öllum standa til boða að gera greiðsluáætlun um skattaskuldir.
Hann ráðleggur hins vegar engum að gera það sem á annað borð geta borgað.
Fyrir embættinu vaki aðeins að innheimta sem stærstan hluta krafna sinna.
Skafti Harðarson, formaður félags sem kall-
ast Samtök skattgreiðenda, hefur kært DV til
sérstaks saksóknara fyrir að standa ekki skil
á vörsluskatti. Þetta kom fram í Morgun-
blaðinu í gær. Haft var eftir Jóni Trausta
Reynissyni, framkvæmdastjóra DV ehf., að honum þætti einkennilegt að
kæra DV frekar en önnur fyrirtæki í sömu sporum.
Kærir DV til sérstaks saksóknara
TOLLSTJÓRI Markmiðið er að innheimta sem mest af kröfum, ekki að selja ofan af
fólki eða fyrirtækjum. FRÉTTABLAÐIÐ/PJETUR
nám hjá viðkomandi, hvort sem
það yrði árangurslaust eða bæri
árangur.
Lengi vel voru ekki gerðar
greiðsluáætlanir fyrir vörslu-
skattaskuldir á borð við þær sem
hvíla á DV nema til örfárra mán-
aða í senn. Í kjölfar hrunsins voru
teknar upp aðrar vinnureglur og
hætt að setja fyrirtæki á svokall-
aðan lokunarlista, sem getur leitt
til tímabundinnar vinnustöðvunar.
Áður fóru mörg hundruð fyrir-
tæki á slíkan lista árlega, þótt
sárafáum væri á endanum lokað,
en árin 2009 til 2011 var ekki eitt
einasta sett á listann. „Við erum
farin að herða þessa innheimtu
aftur,“ segir Snorri.
Hann bendir á að það sé mjög
dýrt að trassa að skila vörslu-
sköttum, jafnvel þótt gerð sé
greiðsluáætlun. Þá leggist á
dráttar vextir og tíu prósenta álag
að auki fyrstu tíu dagana. „Svo
að sá sem getur borgað er alltaf
betur settur,“ segir Snorri Olsen
tollstjóri. stigur@frettabladid.is
BORGARMÁL Borgarstjórn hefur
ákveðið að upplýsingar um allar
kostnaðargreiðslur borgarinnar
verði gerðar almenningi tiltækar
með rafrænum hætti á Netinu.
Þetta var samþykkt einróma á
borgarstjórnarfundi í gær. Starfs-
hópur verður settur í málið og á hann
að skila tillögum um hvernig staðið
verði að þessu fyrir 15. mars næst-
komandi.
Tillaga um þetta er komin frá
Sjálfstæðisflokknum, sem segir í
greinargerð að skattgreiðendur eigi
rétt á því að vita hvernig fé þeirra
er ráðstafað.
„Við erum mjög ánægð með að
það hafi náðst svona góð samstaða
í borgar stjórn um þetta mál,“ segir
Hanna Birna Kristjánsdóttir, borg-
arfulltrúi Sjálfstæðisflokksins.
Erlendis hafa upplýsingagáttir af
þessu tagi víða verið settar upp fyrir
borgir og sveitarfélög, jafnvel heilu
ríkin. Hanna Birna segir misjafnt
hve langt sé gengið. Sums staðar geti
íbúar til dæmis flett upp í færslum
einstakra skóla og jafnvel skoðað
nótur fyrir hverja færslu.
„Það á eftir að koma í ljós hvað
henta þykir best hér, en þetta verður
mjög öflugt tæki fyrir almenning
sem með auknum upplýsingum getur
haft aukin áhrif á hvernig farið er
með fjármuni borgarinnar.“ - gb
Borgarstjórn samþykkir tillögu Sjálfstæðisflokksins um gagnsæisgátt:
Meðferð fjár verði gerð opinber
HANNA BIRNA KRISTJÁNSDÓTTIR
Segist ánægð með hve vel borgarstjórn
tók í hugmyndina. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
SKOÐANAKÖNNUN Ríkisstjórnar-
flokkarnir tapa fylgi samkvæmt
nýjum Þjóðarpúlsi Gallup en Sjálf-
stæðisflokkurinn bætir við sig og
mælist stærsti flokkurinn. Enginn
flokkanna sem bjóða fram í fyrsta
skipti ná manni inn á þing en lítið
vantar upp á hjá Bjartri framtíð.
Þetta kemur fram í Þjóðarpúlsi
Gallup sem RÚV sagði frá í gær.
Sjálfstæðisflokkurinn mælist
með 37,1 prósents fylgi og bætir
við sig frá síðustu könnun. Ríkis-
stjórnarflokkarnir tapa hins vegar
fylgi, Samfylkingin mælist með
19,4 prósent en Vinstri grænir með
12,4 prósent. Framsóknarflokkur-
inn mælist nú með 14,2 prósenta
fylgi.
Könnunin var gerð dagana 30.
ágúst til 27. september. 5.591 var í
úrtakinu en svarhlutfallið var rétt
rúm sextíu prósent. - jhh
Sjálfstæðisflokkur með 37%:
Stjórnarflokk-
arnir tapa fylgi
STJÓRNMÁL Íslenskir stjórnmála-
flokkar hafa tekið sig á í skilum
ársreikninga sinna til Ríkisend-
urskoðunar. Í gær sendi Ríkis-
endurskoðun frá sér tilkynn-
ingu um að tíu stjórnmálasamtök
hefðu skilað ársreikningum fyrir
árið 2011 áður en skilafrestur
rann út nú um mánaðamótin.
Þetta eru Borgarahreyfingin,
Framsóknarflokkurinn, Hreyf-
ingin, Hægri grænir, Samfylk-
ingin, Samtök fullveldissinna,
Sjálfstæðisflokkurinn, Vinstri-
hreyfingin – grænt framboð,
Þinghópur Hreyfingarinnar
og Þinglistinn, sem er framboð
óháðra í Norðurþingi.
Þetta er mun betri frammi-
staða en undanfarin ár. Á síð-
asta ári áttu sex flokkar eftir
að skila reikningum ársins 2010
þegar fresturinn rann út þann
1. október 2011. Trassarnir þá
voru Samfylkingin, Samtök full-
veldissinna, Besti flokkurinn,
Sjálfstæðisflokkurinn, Fram-
sóknarflokkurinn og Íslands-
hreyfingin. - gb
Ársreikningar flokkanna:
Tíu skiluðu á
réttum tíma
SPURNING DAGSINS
Sölvi, lætur þú sölumenn-
ina alltaf plata þig upp úr
skónum?
„Nei, það geri ég ekki. Níutíu
prósent af skónum sem ég hef
keypt voru með afslætti.“
Sölvi Tryggvason, sjónvarpsmaður með
meiru, kveðst vera skófíkill og eiga fimm-
tíu pör af skóm.
DÓMSMÁL Ríkissaksóknari hefur
ákært 34 ára Hafnfirðing fyrir
brot gegn valdstjórninni. Honum
er gefið að sök að hafa veist að
lögreglumönnum sem voru að
handtaka hann á heimili hans.
Samkvæmt ákærunni greip
hann í fingur annars þeirra, hélt
fast og rykkti hendinni ítrekað
til með þeim afleiðingum að lög-
regluþjónninn tognaði. Þá er
hann sagður hafa hótað honum
líkamsmeiðingum með orðunum:
„Ég ætla að kæra þig, svo ætla ég
að berja þig.“ - sh
Ákærður fyrir árás og hótun:
Teygði á fingri
lögreglumanns