Fréttablaðið - 03.10.2012, Page 4

Fréttablaðið - 03.10.2012, Page 4
3. október 2012 MIÐVIKUDAGUR4 Stígamót taka á móti um það bil 300 nýjum einstaklingum á hverju ári til við- tala og ráðgjafar. Aflið á Akureyri tekur á móti á bilinu 60 til 80. Alls hafa sam- tökin tvö tekið á móti 1.382 einstaklingum í viðtöl á árunum 2008 til 2011. Í ársskýrslu Stígamóta fyrir árið 2011 kemur fram að 278 einstaklingar leituðu til samtakanna í fyrra vegna nýrra mála, þar af voru tæp 12 prósent karlmenn. Þjóðerni brotaþola var í nær öllum tilvikum íslenskt. Um 40 prósent brotanna höfðu ekki verið rædd við neinn fagaðila áður en manneskjan leitaði til Stígamóta. Átta prósent einstaklinganna höfðu leitað til lögreglu. „Í þau 22 ár sem liðin eru frá stofnun Stígamóta hafa 5.946 einstaklingar leitað aðstoðar hjá Stígamótum. Jafnframt er þess að geta að ofbeldismenn- irnir teljast vera 8.526 en eru væntanlega nokkuð færri þar sem einhverjir þeirra hafa beitt fleiri en einn einstakling ofbeldi,“ segir í skýrslunni. Leitað til lögreglu í um 8% tilfella LANDBÚNAÐUR Meirihluti styrkja til landbúnaðar á Íslandi er bund- inn framleiðslumagni og því markaðstruflandi, að mati Efna- hags- og framfarastofnunarinnar (OECD). Í nýlegri skýrslu stofn- unarinnar um stuðning við land- búnað í aðildarríkjunum segir að 70% af landbúnaðarstyrkjum á Íslandi séu af þessum toga, þótt beingreiðslur í sauðfjárbúskap og kvótakerfið í mjólkurframleiðslu séu til bóta. Í skýrslunni segir að íslensk stjórnvöld verði að draga úr stuðningi við landbúnaðinn og jafnframt halda áfram að þróa „skilvirkari og betur samhang- andi stefnu“. Sú stefna ætti að hafa skýr markmið, meðal annars umhverfisvernd, minni truflanir á framleiðslu og viðskiptum og betri varðveislu náttúruauðlinda. Ken Ash, yfirmaður viðskipta- og landbúnaðarmála hjá OECD, segir í skýrslunni að stuðningur við landbúnað eigi að beinast í auknum mæli að því að auka framleiðni og samkeppnishæfni í greininni og fá meira fyrir peninga skattgreiðenda. „Ríkis- stjórnir í fjárþröng, sem eru að skera niður ýmsa þætti fjár- laganna, munu neyðast til að bæta skilvirkni landbúnaðar- stefnunnar,“ segir Ash. - shá Meirihluti landbúnaðarstyrkja á Íslandi er markaðstruflandi, segir OECD: Landbúnaðarstefnan óskilvirk MJÓLKURFRAMLEIÐSLA OECD segir mjólkurkvótakerfið draga úr óskilvirkni. REYKJAVÍK Starfsemi í ný byggðum leikskóla í Norðlingaholti í Reykja vík er hafin en þar eru fimm deildir sem heyra undir leikskólann Rauðhól. Rúmlega 100 börn eru í nýja húsnæðinu, sem nefnist Ævin- týri. Það er samtengt Norðlinga- skóla og er miðað við að töluvert flæði verði milli skólastiganna. Leikskólabörnin munu vinna ýmis verkefni með grunnskóla- börnunum og leikskólinn sam- nýtir mötuneyti grunnskólans. - þj Ævintýri í Norðlingaholti: Flæði á milli skólastiganna GENGIÐ 02.10.2012 GJALDMIÐLAR KAUP SALA HEIMILD: Seðlabanki Íslands 220,7498 GENGISVÍSITALA KRÓNUNNAR 123,3 123,88 199,24 200,2 159,26 160,16 21,361 21,485 21,568 21,696 18,654 18,764 1,5775 1,5867 189,87 191,01 Bandaríkjadalur Sterlingspund Evra Dönsk króna Norsk króna Sænsk króna Japanskt jen SDR AUGLÝSINGADEILDIR FRÉTTABLAÐSINS – AUGLÝSINGASTJÓRI: Jón Laufdal jonl@frettabladid.is ALMENNAR SÍMI 512-5401: Einar Davíðsson einar.davidsson@365.is, Guðmundur Steinsson gudmundurs@365.is, Hjördís Zoëga hjordis@frettabladid.is, Hlynur Þór Steingrímsson hlynur@365.is, Laila Awad laila@365.is, Örn Geirsson orn.geirsson@365.is FÓLK/LÍFIÐ/SÉRBLÖÐ SÍMI 512-5402: Benedikt Freyr Jónsson benediktj@365.is, Elsa Jensdóttir elsaj@365.is, Jóna María Hafsteinsdóttir jmh@365.is, Sigríður Dagný Sigurbjörnsdóttir sigridurdagny@365.is, Sverrir Birgir Sverrisson sverrirbs@365.is RAÐAUGLÝSINGAR /FASTEIGNIR SÍMI 512-5403: Hrannar Helgason hrannar@365.is, Viðar Ingi Pétursson vip@365.is ÞJÓNUSTUAUGLÝSINGAR SÍMI 512-5407: Arna Rut Kristinsdóttir arnarut@365.is, Sigrún Helga Guðmundsdóttir sigrunh@365.is Ferill kynferðisbrotamála TILKYNNT TIL LÖGREGLU 1.374 MÁL NIÐURFELLT 109 MÁL TIL RÍKISSAKSÓKNARA 204 MÁL ÁKÆRT 71 MÁL SÝKNAÐ Í HÉRAÐSDÓMI 7 MÁL SAKFELLT Í HÉRAÐSDÓMI 18 MÁL ÁFRÝJAÐ 30 MÁL SAKFELLT Í HÉRAÐSDÓMI 37 MÁL SÝKNAÐ Í HÉRAÐSDÓMI 29 MÁL RANNSÓKN HÆTT 1.170 MÁL HEIMILD: RÍKISLÖGREGLUSTJÓRI OG RÍKISSAKSÓKNARI DÓMSMÁL Um 75 prósent kynferðis- brotamála sem tilkynnt eru til lög- reglu eru ekki send áfram til Ríkis- saksóknara til meðferðar. Af þeim 204 kynferðisbrota- málum sem embættið hefur fengið á sitt borð síðan árið 2008 hafa 109 verið látin niður falla, eða um helmingur. Fram kemur í óútgefnum tölum frá Ríkislögreglustjóra að 365 kyn- ferðisbrot voru tilkynnt til lögreglu í fyrra. Sama ár fékk Ríkissak- sóknari 65 til sín, en 25 þeirra voru látin niður falla. Samkvæmt upplýsingum frá embætti Ríkislögreglustjóra ber að hafa í huga að þegar tölur emb- ættanna tveggja eru bornar saman getur skipt máli ef gögnin eru ekki tekin út á sama degi og eins er mikil vægt að þau séu tekin út frá sömu forsendum. Einnig ber að taka fram að ef tveir einstak lingar eru grunaðir eða kærðir fyrir sama brot, er það talið sem eitt brot í fjöldatölum frá lögreglu. „Til dæmis er hægt að taka út brot bæði út frá dagsetningu brotsins (það er aðeins brot sem áttu sér stað árið 2011) eða þau sem tilkynnt voru árið 2011 en gátu hafa átt sér stað fyrri ár,“ kemur fram í upplýsingum frá embættinu. Í skýrslu ríkislögreglustjóra um feril kynferðisbrota hjá embættinu árið 2008 kemur fram að í um 40 prósentum nauðgunarmála var ástæða þess að lögregla hætti rann- sókn sú að máli er ekki fylgt eftir af brotaþola eða brotaþoli dregur kæru til baka. Í um 30 prósentum málanna var ætlaður gerandi ekki þekktur og í um fimmtungi mála voru sönnunargögn ekki nægjan- leg svo að lögregla teldi sig geta vísað því til ákvörðunar ríkissak- sóknara. Guðrún Jónsdóttir, talskona Stígamóta, sagði í Fréttablaðinu í síðustu viku að hún hefði skorað á stjórnvöld að stofna embætti sér- staks saksóknara kynferðisbrota- mála til að takast á við þessa þróun í lágu hlutfalli dóma. sunna@frettabladid.is Minna en 3% kynferðisbrota- mála enda með sakfellingu Tæplega 1.400 kynferðisbrot voru tilkynnt til lögreglu á árunum 2008 til 2011. Þar af fóru 204 mál til Ríkis- saksóknara, þar sem 35% enduðu í ákæru. Stígamót og Aflið þjónustuðu 1.382 einstaklinga á tímabilinu. Ranghermt var í umfjöllun um þýðingu Jóns Arnar Marinóssonar á barnabókinni Þytur í laufi að það væri fyrsta íslenska þýðing bókarinnar. Hið rétta er að Björg Árnadóttir þýddi bókina fyrir rúmum þrjátíu árum og las hana í útvarpi undir nafninu Leikur í laufi. Sú þýðing var hins vegar aldrei gefin út. LEIÐRÉTT VEÐUR Liðsmenn Veðurklúbbsins á Dalvík funduðu í síðustu viku til að spá í spilin varðandi veðrið fram undan. Að því er kemur fram á vef Dalvíkurbyggðar var farið yfir tunglkomur og fyllingar og þá staðreynd að nýtt tungl kviknar mánudaginn 15. október. „Mánudagstungl geta vitað á mjög góða tíð og eins slæma þannig að grípa þurfti til annarra veðurteikna til að ráða fram úr veðurhorfum í október. Eftir nokkrar vísbendingar varð niður- staðan sú að spá því að í byrjun mánaðar yrði tíð fremur köld og lítils háttar snjókoma. Eftir stutt kuldakast er reiknað með að dragi til suðlægra átta og að seinni hluti mánaðarins verði mildur og með þægilegu haust- veðri,“ segir á Dalvik.is. - gar Veðurklúbburinn á Dalvík: Fyrst kuldar og svo hlýnar á ný DALVÍK Veðurklúbburinn á elliheimilinu spáir í framtíðina. VEÐURSPÁ Alicante Basel Berlín Billund Frankfurt Friedrichshafen Gautaborg Kaupmannahöfn Las Palmas London Mallorca New York Orlando Ósló París San Francisco Stokkhólmur HEIMURINN Vindhraði er í m/s. Hitastig eru í °C. Gildistími korta er um hádegi. 25° 23° 19° 15° 17° 20° 14° 14° 26° 15° 26° 24° 30° 12° 18° 19° 13° Á MORGUN 5-10 m/s. FÖSTUDAGUR 3-8 m/s. 5 5 5 5 5 8 7 7 0 3 3 8 7 11 15 15 14 8 13 7 7 6 4 6 6 8 10 6 6 8 8 7 LÉTTIR TIL Það dregur úr úrkomu á norðanverðu land- inu á morgun og birtir smám saman til. Á föstudag snýst í suðvestanátt og þykknar aðeins upp vestantil en bjartviðri víða annars staðar. Hitinn breytist ekki mikið. Elísabet Margeirsdóttir veður- fréttamaður

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.