Fréttablaðið - 03.10.2012, Qupperneq 8
3. október 2012 MIÐVIKUDAGUR8
DÓMSMÁL Verjandi Gunnars And-
ersen, fyrrverandi forstjóra Fjár-
málaeftirlitsins (FME), krafðist
þess í Héraðsdómi Reykjavíkur í
gær að máli á hendur Gunnari fyrir
brot á þagnarskyldu yrði vísað frá
vegna vanhæfis Helga Magnúsar
Gunnarssonar vararíkissak-
sóknara.
Röksemd Guðjóns Ólafs Jóns-
sonar, verjanda Gunnars, fyrir van-
hæfinu er sú að Helgi Magnús hafi
verið meðal nítján umsækjenda um
forstjórastöðuna hjá FME í febrúar
2009 þegar Gunnar var ráðinn.
Gunnar sætir ákæru, ásamt fyrr-
verandi starfsmanni Landsbank-
ans, fyrir að hafa látið DV í té upp-
lýsingar um fjármál þingmannsins
Guðlaugs Þórs Þórðarsonar.
Í máli Guðjóns Ólafs kom fram
að Helgi Magnús hefði lotið í lægra
haldi fyrir Gunnari í samkeppni
um opinbert embætti og að það
hlyti að hafa verið honum mikið
persónulegt áfall. Af þeim sökum
hlyti hann að teljast vera vanhæfur
sem saksóknari í máli gegn honum.
Guðjón Ólafur sagði að ef Helgi
Magnús væri langrækinn og hefni-
gjarn maður – „sem ég er alls ekki
að segja hann sé,“ skaut hann inn
í – þá væri þetta dómsmál kjörað-
stæður fyrir saksóknarann að ná
sér niður á Gunnari fyrir að hafa
haft hann undir.
Helgi Magnús brosti reglulega
í kampinn undir ræðu Guðjóns
Ólafs, ekki síst þegar talið barst að
því hversu miður sín hann hlyti að
hafa verið eftir tapið fyrir Gunnari
í samkeppninni um starfið.
„Sækjandi biðst afsökunar ef
hann hefur verið of nálægt því að
hlæja undir þessum málflutningi,“
sagði Helgi Magnús þegar hann hóf
ræðu sína.
Hann kvaðst aldrei hafa lýst
neinni skoðun á þeirri niðurstöðu
að Gunnar hefði verið valinn fram
yfir hann eða vanlíðan vegna
hennar. Staðreyndin væri sú að
honum hefði þótt Gunnar „einstak-
lega hæfur til að gegna þessu starfi
eins og dæmin hafa sýnt“.
Helgi benti á að á litla Íslandi
lægju leiðir manna saman og ef
krafan yrði tekin til greina væru
sennilega allir vanhæfir í samfé-
laginu. „Á það að leiða til vanhæfis
að saksóknari hafi spilað fótbolta
með dómaranum fyrir tíu, fimm-
tán árum – og sennilega tapað?“
spurði hann með vísan til sjálfs sín
og Símonar Sigvaldasonar dómara.
Helgi taldi svo ekki vera.
Hann sagði kröfuna tilbún-
ing verjanda til að „þyrla upp
reykskýi“ og lauk ræðu sinni á
þessum orðum: „Að þessu sögðu
held ég að sækjandi nenni ekki að
eyða meiri tíma í þetta.“
stigur@frettabladid.is
Hélt aftur af hlátri
undir vanhæfisræðu
Vararíkissaksóknari brosti að málflutningi verjanda Gunnars Andersen í héraðs-
dómi í gær. Þar var tekist á um hvort saksóknarinn væri vanhæfur í málinu
vegna þess að Gunnar hefði haft hann undir í slagnum um stöðu forstjóra FME.
Í framhjáhlaupi gagnrýndi Guðjón Ólafur, verjandi Gunnars, ákæru ríkissak-
sóknara. Hann kallaði hana „hrákasmíð“ og „bastarð“ og sagði hana bæði
óskýra og óglögga.
Helgi Magnús gaf lítið fyrir þessi ummæli í ræðu sinni, sagði þau „hliðar-
skæting“ settan fram í þeim eina tilgangi að „þjóna lund verjandans“. Ef
dómarinn teldi ákæruna gallaða þá yrði það tekið fyrir við annað tækifæri.
Kallaði ákæruna hrákasmíð og bastarð
GUNNAR Þ.
ANDERSEN
HELGI MAGNÚS
GUNNARSSON
Minningarsjóður
Kjartans B. Kjartanssonar auglýsir
NÁMSSTYRK
Tilgangur sjóðsins er að veita námsstyrki til þeirra, sem leggja í
framhaldsnám vegna geðverndarstarfa eða meðferðar geðsjúkra,
svo sem lækna, hjúkrunarfræðinga, félagsráðgjafa, sálfræðinga
og iðjuþjálfa.
Stjórn sjóðsins auglýsir hér með eftir umsóknum um styrki.
Umsóknum skal skila til Geðverndarfélags Íslands, Hátúni 10,
105 Reykjavík, fyrir 15. janúar 2013.
Úthlutun fer fram á aðalfundi Geðverndarfélags Íslands í
mars 2013
Stjórn Minningarsjóðs Kjartans B. Kjartanssonar
Meðaleyðsla aðeins
3,8 lítrar á hverja 100 km**
www.volkswagen.is
Sparnaðarráð
frá Þýskalandi
Volkswagen Golf BlueMotion
Komdu og reynsluaktu Volkswagen Golf
** Miðað við blandaðan akstur á beinskiptum
Volkswagen Golf BlueMotion 1.6
A
uk
ab
ún
að
ur
á
m
yn
d:
1
8”
á
lfe
lg
ur
Golf k ostar ða eins frá
3.390.000 kr.
Sigurvegari
í sparakstri *
* Volkswagen Golf var sigurvegari í árlegri sparaksturskeppni Atlantsolíu 2012, í flokki dísilbíla 1.4-1.6 cc.
Minningarsjóður
Ólafíu Jónsdóttur
auglýsir
STYRKI TIL RANNSÓKNA
á sviði geðverndar.
Umsóknum skal skila til Geðverndarfélags Íslands,
Hátúni 10, 105 Reykjavík, fyrir 15. janúar 2013.
Úthlutun fer fram á aðalfundi Geðverndarfélags Íslands
í mars 2013.
Stjórn Minningarsjóðs Ólafíu Jónsdóttur
STÖÐUGT NÝJAR
FRÉTTIR
FRÉTTIR VIÐSKIPTI SPORT UMRÆÐAN ÚTVARP LÍFIÐ SJÓNVARP
- oft á dag
SAMFÉLAGSMÁL „Þessi aðgerð ríkis-
stjórnarinnar er mjög jákvætt
skref í rétta átt en við hefðum
viljað sjá enn meiri hækkun,“
segir Elín Björg Jónsdóttir, for-
maður BSRB, um fyrir hugaðar
breytingar á barnabótakerfinu.
Fjármálaráðherra kynnti hækkun
á bótunum og tekjuskerðingar-
mörkum í fyrradag.
„Vissulega er það fagnaðarefni
að verið sé að hækka upphæðir og
draga úr tekjuskerðingu barna-
bóta. Barnabætur og tekjuskerð-
ingarmörk hafa staðið í stað frá
árinu 2009 og BSRB hefur lengi
bent á að mikil
nauðsyn sé á
að styðja betur
við barnafjöl-
skyldur. Mér
sýnist þet ta
koma best við þá
sem eiga mörg
börn og eru
tekjulágir svo
það er jákvætt,“
segir Elín Björg
á heimasíðu
BSRB.
Elín Björg segir einnig að þótt
krónutala barnabóta muni hækka
á næsta ári muni það ekki nægja
til að bæta barnafólki upp kaup-
máttarskerðinguna sem orðið
hefur á bótunum frá árinu 2008.
„Ef við tökum dæmi af sam-
búðar fólki með tvö börn hefur
kaupmáttur barnabóta þeirra
rýrnað um nærri 30 prósent frá
2008 til 2012.
Samkvæmt okkar út reikningum
munu barnabætur eftir þessa
fyrirhuguðu breytingu fyrir árið
2013 samt hafa rýrnað um 7,6
prósent fyrir einstæða foreldra
í sömu stöðu og 2,8 prósent hjá
sambýlisfólki.“ - þeb
Þrátt fyrir hækkanir á næsta ári er kaupmáttur barnabóta enn minni en 2008:
Hækkunin jákvæð en ekki nóg
ELÍN BJÖRG
JÓNSDÓTTIR