Fréttablaðið - 03.10.2012, Blaðsíða 10
3. október 2012 MIÐVIKUDAGUR10
Láttu hjartað ráða
„Hrískökurnar mínar eru glútenlausar og góðar
með ýmsu áleggi. Þær eru hollar og henta því vel
á milli mála.“
Fæst í verslunum Hagkaups og Bónus · www.lífrænt.is
LANDSDÓMUR Þingmaður kristi-
legra demókrata í Hollandi gagn-
rýnir harðlega dóminn yfir Geir
H. Haarde, fyrrverandi forsætis-
ráðherra, í minnisblaði sem hann
sendi til laganefndar Evrópuráðs-
þingsins í gær.
Þingmaðurinn, Pieter Omtzigt,
segir í minnisblaðinu að tilraun-
in til að láta sakfella Geir fyrir
Landsdómi sé dæmi um þá eitrun
sem verði í andrúmslofti stjórn-
mála þegar pólitískar aðgerðir eru
gerðar að glæpsamlegu athæfi án
þess að hafa réttlætið til hliðsjónar.
Omtzigt er fulltrúi Hollands í
nefndinni og vinnur nú að ítarlegri
skýrslu um nauðsyn þess að halda
pólitískum skyldum stjórnmála-
manna aðskildum frá glæpsam-
legu athæfi. Hann áætlar að skila
skýrslunni á næsta ári.
Þingmaðurinn segir í minnis-
blaði sínu um Landsdóm að málið
hafi greinilega haft slæm áhrif á
íslenska stjórnmálastétt og skilið
eftir „vont eftirbragð“.
Omtzigt kom til Íslands í maí og
ræddi við Geir og verjanda hans,
Andra Árnason. Þá stendur til að
hann fari til Úkraínu á næstunni
til að kynna sér málið gegn Júlíu
Tymoshenko og fleiri í hennar
ríkis stjórn, er fram kemur á vef
Evrópuráðsins. - sv
Þingmaður kristilegra demókrata í Hollandi gagnrýnir Landsdómsmálið:
Málið hafði slæm áhrif á Ísland
LANDSDÓMUR Þingmaður í laganefnd
Evrópuráðsins vinnur nú að skýrslu þar
sem Landsdómsmálið verður tekið fyrir.
FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
STJÓRNSÝSLA Bæjaryfirvöld í
Hafnar firði hafa innleitt nýjar
reglur um birtingu gagna með
fundargerðum til að auka gagnsæi
í stjórnsýslu bæjarins.
Í tilkynningu frá Hafnarfjarðar-
bæ er haft eftir Guðrúnu Ágústu
Guðmundsdóttur bæjarstjóra að
reglunum sé ætlað að tryggja að
birting gagna sé byggð á mál-
efnalegum forsendum í
samræmi við upplýsinga-
lög, stjórnsýslulög og lög
um persónuvernd.
„Nú munu fundar gerðir
bæjarins ekki aðeins
innihalda upplýsingar
um hvaða mál voru á
dagskrá og hvaða
afgreiðslu þau hafa
hlotið, líkt og lög
kveða á um að þær
geri, heldur munu
þær innihalda
greiða leið fyrir
bæjarbúa og aðra að þeim upp-
lýsingum sem lagðar eru form-
lega fram á fundum og skýrt geta
ákvarðanir viðkomandi nefnda og
ráða í einstökum málum,“ segir í
tilkynningunni.
„Birting gagna með fundar-
gerðum er í samræmi við stefnu
Hafnarfjarðarbæjar í upplýsingar-
málum þar sem áhersla er lögð á
að bæjarbúar, starfsmenn, fyrir-
tæki og fjölmiðlar séu almennt
upplýstir um málefni og starf-
semi bæjarfélagsins. Einnig að
upplýsingar séu aðgengilegar
og settar fram með skýrum og
einföldum hætti.“ - gar
Aukið gegnsæi í stjórnsýslu Hafnarfjarðar:
Birta gögn af fundum
GUÐRÚN ÁGÚSTA GUÐ-
MUNDSDÓTTIR Bæjar-
stjórinn í Hafnarfirði
segir nýjum reglum
ætlað að tryggja birt-
ingu gagna á málefna-
legum forsendum.
1. Hvað heitir utanríkisráðherra
Sýrlands?
2. Hver er eigandi veitingahússins
Sjávarbarinn?
3. Hvað heitir byggðamálastjóri
Evrópusambandsins?
SVÖR
PRÓFKJÖR Björk Vilhelmsdóttir
borgarfulltrúi og félagsráðgjafi
ætlar að gefa kost á sér í 3. til 4.
sæti í væntanlegu prófkjöri Sam-
fylkingarinnar í Reykjavík vegna
alþingiskosninga.
Björk hefur setið í borgarstjórn
í tíu ár og verið í forsvari velferð-
armála stærstan hluta þess tíma.
Björk segist ekki sætta sig við
að ungt fólk sé án vinnu og utan
skóla. Hún ætlar að beita sér
fyrir breyttri félagsmálalöggjöf.
Hún vill beita sér fyrir breyttum
húsnæðismarkaði, umhverfis-
málum og nýrri stjórnarskrá. - þeb
Borgarfulltrúi vill á þing:
Björk gefur kost
á sér í prófkjöri
1. Walid al Moallem. 2. Magnús Ingi
Magnússon, veitingamaður. 3. Johannes
Hahn
VEISTU SVARIÐ?