Fréttablaðið - 03.10.2012, Síða 13

Fréttablaðið - 03.10.2012, Síða 13
MIÐVIKUDAGUR 3. október 2012 13 Óskin er faðir hugsunarinnar. Mér datt þess forni vísdómur í hug þegar ég las viðbrögð Björns Bjarnasonar (Fréttablaðið 1. okt. sl.) við stuttri athugasemd sem áður hafði birst í sama blaði. BB segir þar að þótt evran hafi vissu- lega haldið gildi sínu, hafi hún engu að síður fallið á prófinu. Hann færir engin rök fyrir þessu prófdómara- mati sínu önnur en tíðar fundaset- ur evrulandaráðherra í Brussel. Þá getur hann þess, að nú eigi að bæta galla Maastricht-sáttmálans, sem hann réttilega segir að illa hafi verið staðið að á sínum tíma, með ríkisfjármálasamningi. Þetta á að sanna að evran hafi falllið á prófinu. Þetta er í besta falli vandræðaleg málsvörn fyrir slæmum málstað. Vandi Evrópu er þrískiptur; skuldavandi, bankakreppa og hag- sveifluvandi. Gengi og staða evr- unnar er óhaggað þrátt fyrir þessa utanaðkomandi erfiðleika. Frá árinu 2002, þegar evran var sett á flot, hefur saga hennar verið sigurganga. Hún hefur fært saman sundurleita markaði og fólk á landsvæðum með landamærum þar sem skipta þurfti í viðkomandi þjóðargjaldmynt. Við- skipti hafa stóraukist á sameiginlega markaðin- um. Jafnframt hafa utan- ríkisviðskipti bæði orðið ódýrari, auðveldari og ábatasamari vegna sam- eiginlegs, stöðugs alþjóð- legs gjaldmiðils. Þá hefur afkoma almennings farið batnandi, þótt hagvöxtur hafi ekki alls staðar verið til fyrirmyndar. Stöðug- leiki verðlags og lágir vextir í kjölfar evrunnar hafa leitt af sér betri og stöðugri samfélög. Sá tími þegar öll Suð- ur-Evrópulöndin voru í eins konar kapphlaupi um að fella gengi gjald- miðla sinna til að ná tímabundnu samkeppnisforskoti á nágranna sína er liðinn. Hagspeki þeirra var sömu ættar og okkar, að velta mistökum hagstjórnarinnar yfir á almenning. Það er vegna þessa mikla árangurs evrunnar, sem löndin hafa tekið þátt í um tíu ára skeið, sem er ástæða þess að enginn vill fara út úr evru- samstarfinu, ekki grunnhyggin glefsa Björns í bitnu gjafahöndina. Gengi gjaldmiðils er afleiðing af stöðu ríkisfjármála, hagstjórnar og markaðsspámennsku. Þótt skuldavandi nokk- urra evrulanda sé skelfi- legur, og alltof margir bankar á svæðinu þurfi á aðstoð að halda, er ekki gjaldmiðlinum um að kenna. Skuldir Banda- ríkjanna eru hærri en evrulandanna. Þeir eiga eftir að bíta úr nálinni með þær. Það er held- ur ekki dollaranum um að kenna, heldur þessu vestræna skuldasukki sem þjóðþingin hafa lagt blessun yfir um langan aldur. Evran knýr stjórn- málamenn í Evrópu til að haga sér öðruvísi. Þeir verða að tileinka sér ráðdeild og aðhald í ríkisrekstri. Munum: Aðeins skuldlítil þjóð er sjálfstæð. Ef BB vill láta taka sig alvarlega, út fyrir Nei-hirðir Ásmundar Daða- sonar og Jóns Bjarnasonar, þá verð- ur hann að gera betur. Ritstjóri Fréttablaðsins fagn-ar tillögu sjálfstæðismanna til breytinga á lögum um ramma- áætlun. Leggst hann þar á árar með þeim sem fullyrða að vegna þrýstings frá Vinstri grænum hafi verið vikið í „veigamiklum atriðum“ frá þeirri forgangsröð- un sem verkefnisstjórn lagði til. Það er ljóst af leiðara ritstjórans að honum er ekki ferlið kunnugt né heldur tekur hann afstöðu til veigamikilla breytinga sem lagð- ar eru til í frumvarpi sjálfstæðis- manna. Sjálfstæðismenn samþykktu verklag rammaáætlunar án and- stöðu á síðasta ári. Undanfarið hefur flokkurinn hins vegar leit- ast við að þyrla upp moldviðri, kynda undir tortryggni og haft uppi hótanir um að öllu ferlinu verði varpað fyrir róða komist flokkurinn til valda. Breytingarnar sem við ráð- herrarnir gerðum voru faglegar, byggðar á lögformlegu umsagn- arferli og eru kirfilega rökstudd- ar í þingsályktunartillögunni. Þær snúast um upplýsingaöflun og nánari skoðun í ljósi gagna og alvarlegra athugasemda. Hinn svokallaði „sáttafarvegur“ Sjálf- stæðisflokksins snýst um að hverfa frá þessu verklagi. Í fyrsta lagi leggur Sjálfstæð- isflokkurinn til að fellt sé brott ákvæði um að þau svæði sem njóti verndar falli utan rammaáætlun- arinnar. Það þýðir að sjálfstæðis- menn vilja að landsvæði sem núna njóta friðlýsingar, friðlýst svæði og svæði innan þjóðgarða, komi öll til álita sem virkjunarsvæði! Í öðru lagi er gert ráð fyrir að ákafar megi ganga á svæði í bið- flokki í rannsóknarskyni og enn fremur að víðtækar rannsóknir megi stunda á svæðum sem ekki hafa verið tekin til faglegrar umfjöllunar innan rammaáætlun- ar – en slík svæði falla samkvæmt gildandi lögum undir sömu reglur og biðflokkur. Loks gerir flokkurinn tillögu um að verkefnisstjórn ramma- áætlunar skili endanlegri flokkun virkjanakostanna, bæði án mikil- vægrar aðkomu almennings í opnu umsagnarferli og án þess að ráð- herra taki ábyrgð á jafn afdrifa- ríku máli og rammaáætlun er í reynd. Sú ábyrgð hvílir að sjálf- sögðu á lýðræðislegu umboði og faglegum grunni. Allar breytingarnar í frum- varpi sjálfstæðismanna eru lagðar á vogarskálar nýtingar á kostnað náttúruverndar og á vogarskál- ar þröngra ráðagerða á kostnað gagnsæis og samráðs við almenn- ing. Það veldur vonbrigðum að ritstjóri Fréttablaðsins, sem oft hefur sýnt á sér betri hliðar, legg- ist á þá sveif. Náttúruverndarsjónarmið virð- ast ekki eiga sér málsvara meðal kjörinna fulltrúa Sjálfstæðis- flokksins. Þingflokkurinn er herskár og afturhaldssinnaður í málaflokknum. Samkvæmt minni reynslu endurspeglar þetta alls ekki kjósendur flokksins. Leiðara- höfundur skipar sér í þrönga sveit með félögum sínum á þingi þegar nær væri að kynna fyrir lesendum vönduð og lýðræðisleg vinnubrögð um rammaáætlun. Evran knýr stjórn- málamenn í Evrópu til að haga sér öðruvísi. Þeir verða að tileinka sér ráðdeild … Náttúruverndar- sjónarmið virðast ekki eiga sér málsvara meðal kjörinna fulltrúa Sjálfstæðisflokksins. g agnúsdóttir Reynir Björnsson o Dóra M eru ánægð í Boðaþinginu. Í þágu nýtingar og þröngra ráðagerða Rammaáætlun Svandís Svavarsdóttir umhverfisráðherra Af Evru-horni BB. Taka tvö Gjaldmiðlar Þröstur Ólafsson hagfræðingur AF NETINU Hvað er verið að selja? Ekki hefur verið upplýst hverjir verði væntanlega stærstu hlut- hafar bankanna, þó talið sé að stórir vogunarsjóðir séu í þeim hópi. Enginn veit hvað þeir hafa hugsað sér um framtíð bankanna sem þeir munu formlega eignast að loknum nauðasamningum á næsta ári. Samt er ætlunin að selja eignarhlut ríkisins. Setjum okkur í spor þeirra sem ætla að kaupa. Vilja þeir ekki fá svör við þessum spurningum? Vilja þeir ekki að minnsta kosti fá að vita hvað þeir eru í rauninni að kaupa? Mun það því ekki hafa áhrif á söluverðmæti bréfanna? http://www.ekg.is/ Einar K. Guðfi nnsson

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.