Fréttablaðið - 03.10.2012, Síða 31

Fréttablaðið - 03.10.2012, Síða 31
MIÐVIKUDAGUR 3. október 2012 27 ASKJA · Krókhálsi 11 · 110 Reykjavík · Sími 590 2100 · askja.is Viðurkenndur sölu- og þjónustuaðili KIA á Íslandi. www.kia.isÞú finnur „Kia Motors Ísland“ á Facebook Bækur ★★★★ ★ Jesúsa Elena Ponitowska. María Rán Guðjónsdóttir þýddi JPV-útgáfa „Ég er ekki ástrík, mér líkar ekki við fólk. Ég hef alltaf verið þurr á manninn, hef aldrei orðið náin neinum. Ég er mikill pilsvargur og tala mjög hátt.“ Þannig lýsir Jesúsa Pal- ancares, söguhetjan í bók Elenu Poniatowska, sjálfri sér. Sagan er stílfærð ævisaga hennar byggð á við- tölum sem Poniatowska tók við hana á efri árum. Rödd Jesúsu er sú eina sem heyrist í bókinni, hún er öll í beinni ræðu og vaðið úr einu í annað eins og fólk gerir í munn- legri frásögn. Lífið hefur vissulega hert hana og gert hana bitra en í gegn skín ótrúleg þrautseigja, einurð og baráttuvilji sem hrífur lesandann með sér og kveikir ást hans á þessari 150 sentímetra háu indíánakonu úr annarri heimsálfu. Jesúsa er fædd árið 1900 og saga hennar er um leið saga tutt- ugustu aldarinnar í Mexíkó. Tíu ára gömul er hún farin að fylgja föður sínum sem er hermaður í mexíkósku byltingunni, giftist síðan öðrum hermanni og heldur áfram að fylgja herdeild hans þar til hún verður ekkja, átján ára gömul. Hún hefur engan skilning á því um hvað þessi bylting snerist enda fullyrðir hún að sama rass- gatið hafi verið undir öllum for- kólfum hennar og að hermennirnir hafi skipt um lið um leið og þeirra lið fór að láta í minni pokann. Eftir að eiginmaðurinn deyr er Jesúsa ein á báti og óháð, vinnur fyrir sér með hverri skítavinnunni af annarri, drekkur og dansar og böðlast áfram. Þegar hún kynnist andatrú og fer að trúa því að hún sé miðill hættir hún drykkju og dansi en lífsbaráttan minnkar ekk- ert og hún vinnur erfiðisvinnu til 85 ára aldurs. Annað er ekki í boði. Heimur Jesúsu er ansi ólíkur þeim vestræna velferðarheimi sem við þekkjum, en hún á þó sam- eigin legt með íslenskum kjarna- konum fyrri tíma að gefast aldrei upp, bogna stundum en brotna aldrei. Ferðalagið í gegnum líf hennar er engin lystireisa, en engu að síður verður lesandinn heltek- inn af þessum heimi og þessari konu og kvíðir því einu að sagan taki enda. Þessi gallharði töff- ari sem vílar ekki fyrir sér að slást við karla jafnt sem konur með hnúum og hnefum, orðum og öskrum er karakter sem enginn ætti að missa af að kynnast. Þýðing Maríu Ránar Guðjóns- dóttur rennur lipurlega og án þess að hafa tök á að bera hana saman við spænskan frumtextann finnst manni að nákvæmlega svona hljóti rödd Jesúsu að hljóma. Friðrika Benónýsdóttir Niðurstaða: Stórkostleg ævisaga konu sem endurspeglar það versta og besta í okkur öllum. Mannbætandi lestur. Alein með sálinni sinni í hörðum heimi HVAÐ? HVENÆR? HVAR? Miðvikudagur 03. október 2012 ➜ Hátíðir 15.15 Reykjavík International Film Festival er fullu fjöri í Reykjavík. Dagskrá má nálgast á heimasíðunni http://riff. is/schedule. ➜ Dans 20.30 Gömlu dansarnir verða dans- aðir hjá Þjóðdansafélagi Reykjavíkur, Álfabakka 14 A. Allir velkomnir. ➜ Handverkskaffi 20.00 Handverkskaffi í Gerðubergi. Ólöf Einarsdóttir myndlistarkona kynnir hið forna handverk spjaldvefnað. Stiklað verður á sögulegum þáttum spjaldvefn- aðar og kynntar nokkrar aðferðir. Gestum gefst tækifæri á að prófa að vefa. Ókeypis aðgangur. ➜ Tónlist 12.30 Tómas R. Einarsson kontra- bassaleikari og Ómar Guðjónsson gítarleikari spila latínu og sveiflu á Háskólatorgi. Um er að ræða fyrstu Háskólatónleika skólaársins. Enginn aðgangseyrir og allir velkomnir. 20.00 Damo Suzuki heldur kvikmynda- tónleika í Gamla bíói. Tónleikarnir eru hluti af dagskrá Reykjavík International Film Festival. 21.00 Hljómsveitin Tvöföld vandræði heldur Stevie Ray Vaughan „tribute”- tónleika á Café Rosenberg. Upplýsingar um viðburði sendist á hvar@frettabladid.is. Ljósmyndasafn Reykjavíkur hefur tilnefnt Hrafnkel Sigurðs- son til alþjóðlegu ljósmyndaverð- launanna Deutsche Börse í ár fyrir sýninguna Hafnarborgin sem stóð yfir í Hafnarborg í vor. Hafnarborg Hrafnkels saman- stóð af ljósmyndum af slipp- svæðinu í Reykjavík, mynd- bands uppsetningu og vegg- og textíl verkum þar sem hann notaði meðal annars vinnutuskur sem hann dró upp úr drullunni í slippnum og saumaði saman. Deutsche Börse-verð launin voru fyrst veitt árið 1996 í London í þeim tilgangi að kynna það besta sem væri að gerast í alþjóðlegri samtímaljós myndun hverju sinni. Deutsche Börse hefur verið helsti bakhjarl verð- launanna síðan 2005. Hrafnkell til- nefndur til verðlauna ÚR HAFNARBORG Ljósmyndir Hrafnkels af skipsskrokkum minna á málverk Marks Rothko.

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.