Fréttablaðið - 12.11.2012, Page 2
12. nóvember 2012 MÁNUDAGUR2
SPURNING DAGSINS
SKÓLAMÁL Svokallaðir þátttöku-
bekkir fyrir þroskahamlaða sem
menntaráð Reykjavíkurborgar
samþykkti í janúar í fyrra að
komið yrði á fót eru enn ekki
komnir í framkvæmd.
Klettaskóli er valkostur
fyrir börn með sérþarfir. Þátt-
tökubekkir yrðu millistig milli
Klettaskóla og almennra skóla
og í umsjón Klettaskóla.
„Mjög líklega yrði markhópur-
inn börn sem gætu bæði verið í
Klettaskóla og almennum grunn-
skólum,“ segir Ragnar Þorsteins-
son, sviðsstjóri skóla- og frí-
stundasviðs
Reykjavíkur.
Þó stefnt hafi
verið að því að
þátttökubekkir
væru komnir í
gagnið haustið
2013 og að þeir
séu inni í ný
endurskoðaðri
stefnu borgar-
innar um skóla
á n aðgrei n -
ingar bend-
ir Ragnar á að fjárhagsáætlun
borgarinnar fyrir næsta ár verði
ekki ljós fyrr en í næsta mánuði.
Því sé enn óvíst hvort bekkirnir
komist í gagnið á næsta ári.
Þegar endurskoðun stefnunnar
var samþykkt samhljóða í skóla-
og frístundaráði á miðvikudag
sögðu fulltrúar Sjálfstæðis-
flokksins núverandi framkvæmd
stefnunnar umdeilda.
„Meðal annars hefur verið bent
á að foreldrar, sem telja að sér-
skóli henti börnum þeirra betur
en heimaskóli, eigi ekki kost á
raunverulegu vali milli þess-
ara tveggja kosta,“ sagði í bókun
þeirra.
„Þetta gæti verið valkost-
ur fyrir þau,“ svarar Ragnar
aðspurður hvort þátttökubekk-
irnir standi til boða þroska-
hömluðum börnum sem í dag
falla milli skips og bryggju að
því leytinu til að finna sig ekki
í almennum skóla en uppfylla
ekki inntökuskilyrði í Kletta-
skóla.
„Inntökureglur fyrir þessa
þátttökubekki hafa ekki verið
mótaðar enn. Það gætu orðið
önnur inntökuskilyrði en í
Klettaskóla.“ segir sviðsstjór-
inn. - gar
Óljóst um upphaf millistigs almenns skóla og sérskóla fyrir þroskahömluð börn:
Þátttökubekkir ekki komnir á áætlun
RAGNAR
ÞORSTEINSSON
LÖGREGLUMÁL Tveir piltar um tví-
tugt voru handteknir um átta-
leytið í gærmorgun grunaðir um
kynferðisbrot gagnvart sextán
ára stúlku.
Stúlkan, sem hafði verið gest-
komandi í húsi á Skólavörðuholti
aðfaranótt sunnudags, leitaði á
neyðarmóttöku Landspítalans
fyrir þolendur kynferðisofbeldis
og í kjölfarið var lögreglan kölluð
til og piltarnir handteknir.
Kynferðisbrotadeild lögregl-
unnar mun rannsaka málið. - kh
Tveir piltar handteknir í gær:
Grunur um kyn-
ferðisbrot gegn
16 ára stúlku
SVÍÞJÓÐ Lögreglan í Växjö í Sví-
þjóð leitar fimm til sex manna
sem sautján ára drengur segir
hafa nauðgað sér við kirkjugarð á
föstudagskvöld.
Drengurinn var á leið heim
seint á föstudagskvöld þegar
ráðist var á hann, að því er fram
kemur í dagblaðinu Smålands-
posten. Lögregla skoðaði svæðið
þar sem hann sagði árásina hafa
átt sér stað og var stórt svæði
girt af um helgina.
Nokkrir hafa verið yfirheyrðir
vegna málsins, en enginn hand-
tekinn. Lögregla hefur einnig
beðið möguleg vitni um að gefa
sig fram. - þeb
Óhugnaður í Växjö í Svíþjóð:
Dreng nauðgað
af hópi manna
Eldur í klæðningu
Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins
var kallað út að Héðinsgötu um
hádegisbil í gær þar sem eldur logaði
í klæðningu húss. Slökkviliðið náði að
slökkva eldinn áður en hann breiddist
út og eru skemmdir óverulegar. Eldur-
inn kom upp þegar iðnaðarmenn
unnu að viðgerð á húsinu.
BRUNI
NOREGUR Fjöldamorðinginn Anders
Behring Breivik kvartar undan
ýmsu í 27 blaðsíðna bréfi sem birt
var úr í norskum fjölmiðlum um
helgina.
Breivik segist meðal annars fá
of lítið smjör á brauðið sitt, þurfa
að drekka kalt kaffi og fá ekki að
geyma rakakrem í klefa sínum.
Klefinn sé svo mjög fábrotinn og
úr honum sé ekkert útsýni. Þá
segir hann handjárn sem hann
hafi verið með hafi skorið hann á
úlnliðum.
Lögmenn Breiviks hafa sagt að
hann telji aðstæðurnar í Ila-fang-
elsinu brjóta á mannréttindum
hans. Þeir hafa staðfest að bréfið
sem norskir fjölmiðlar hafa birt sé
ósvikið. - þeb
Breivik kvartar undan ýmsu:
Fær ekki nóg
smjör á brauðið
MEIDDU Breivik segir í bréfinu að hand-
járnin hafi valdið skurðum á úlnliðum
hans. NORDICPHOTOS/AFP
LÖGREGLUMÁL Um þrjú kíló af kókaíni
fundust í töskum tveggja íslenskra
stúlkna sem lentu á flugvellinum í
Prag á miðvikudag. Stúlkurnar, sem
eru báðar átján ára hafa neitað sök
í málinu, en voru á föstudag engu
að síður úrskurðaðar í sjö mánaða
gæsluvarðhald.
Stúlkurnar fóru frá Íslandi í
ágúst. Í síðustu viku flugu þær frá
Sao Paulo í Brasilíu áleiðis til Prag
með viðkomu í München í Þýska-
landi. Þrátt fyrir grunsemdir þar
um að stúlkurnar hefðu eitthvað
misjafnt í fórum sínum voru þær
látnar fljúga óáreittar áfram til
Tékklands til að reyna koma yfir-
völdum á spor hugsanlegra sam-
verkamanna en sú áætlun gekk ekki
eftir. Eftir tímafreka leit á flugvell-
inum í Prag fannst síðan efnið sem
talið er vera kókaín.
Samkvæmt heimildum Frétta-
blaðsins hafa stúlkurnar borið
að töskurnar séu gjöf frá Banda-
ríkjamanni sem þær hafi kynnst á
Íslandi. Sá maður var hér á landi
þar til honum var vísað á brott þar
sem dvalarleyfi hans var útrunnið.
„Þegar tvær átján ára stúlkur
lenda í svona ógæfu reynum við
auðvitað að bregðast við eins og
jafnan,“ segir Össur Skarphéðins-
son utanríkisráðherra um aðkomu
ráðuneytisins að máli stúlknanna.
„Bæði höfum við verið í sambandi
við foreldra þeirra og okkar maður
á staðnum hefur hitt þær báðar.
Einnig höfum við tryggt að þær fái
verjendur.“
Stúlkurnar höfðu ætlað frá Tékk-
landi til Kaupmannahafnar með lest
en sitja nú hvor í sínu fangelsinu í
Prag. Talið er að þrír mánuðir hið
minnsta líði þar til dómur geng-
ur í máli þeirra. Verði stúlkurnar
Neita allri vitneskju
um kókaín í töskum
Tvær átján ára íslenskar stúlkur sitja í varðhaldi eftir að hafa flutt um þrjú kíló
af kókaíni til Tékklands frá Brasilíu. Þær neita sök en margra ára fangelsisvist
vofir yfir. Mikil ógæfa og ráðuneytið gerir sitt besta segir utanríkisráðherra.
EKKI ALLT SEM SÝNIST Tollverðir í Prag leituðu lengi vel í töskum íslensku stúlknanna
áður en þeim tókst loks að finna eiturlyfin sem hafði verið komið haganlega fyrir í
samskeytum og milli laga í töskuefninu sjálfu. MYND/TÉKKNEKSKA LÖGREGLAN
DANMÖRK Danska ríkisstjórn-
in hefur ákveðið að afnema skatt
á matvöru sem innheldur mikið
magn af mettaðri fitu en ár er
síðan skatturinn var lagður á.
Mjólkur-og kjötvörur sem og
unnar matvörur féllu undir þenn-
an skattaflokk en yfirvöld segja
skattlagninguna hafi haft neikvæð
áhrif á matarverð og atvinnu.
Skatturinn gerði það að verkum
að Danir ferðuðust í auknum mæli
yfir landamærin og keyptu mat-
vöru í Þýskalandi. - áp
Afnema fituskattinn:
Hafði áhrif á
matarverð
Egill, er uppá ykkur typpið?
„Það stendur ekki á okkur.“
Egill Örn Jóhannsson er framkvæmdar-
stjóri Forlagsins og hefur boðað erótísk
bókajól árið 2013.
TRÚMÁL „Kirkjan verður að umbera þjóðina og þjóð-
in verður að umbera kirkjuna,“ sagði Ögmundur
Jónasson innanríkisráðherra sem flutti ávarp við
setningu Kirkjuþings á laugardag.
Ögmundur vísaði til nýlegrar þjóðaratkvæða-
greiðslu um stjórnarskrármálið. Sagði hann svar
þjóðarinnar varðandi kristinn sið hafa verið afger-
andi. „Þess vegna verður kirkjan enn um sinn
eign þjóðarinnar. Og þjónar kirkjunnar því þjónar
okkar allra og þjóðin og kirkjan munu fylgjast að
í blíðu og stríðu og verða ekki aðskilin,“ sagði ráð-
herrann og bætti við að þjóðin viti að leiðin út úr
vandanum sé „ekki að höggva á rótina til að ganga
inn í nýja veröld sögulaus og allslaus“. Næra þurfi
arfleifð okkar og menningu og það þurfi kirkjan að
gera; óttalaus, staðföst og sterk.
„Það er sú kirkja sem þjóðin ákvað að ætti að
vera með okkur um ókominn tíma. Niðurstaða
þjóðarinnar er áskorun á hendur kirkjunni. Ég
veit að hún mun svara kalli þjóðarinnar; rísa
undir þeirri ábyrgð sem ætlast er til að hún axli
sem þjóðkirkja,“ sagði innanríkisráðherra.
- gar
Innanríkisráðherra segir kirkjuna munu rísa undir ábyrgð og svara kalli:
Kirkjan sé óttalaus, staðföst og sterk
ÖGMUNDUR JÓNASSON „Það er góð regla að taka málið upp
á þúsund ára fresti,“ sagði innanríkisráðherra um umræðu um
kristni í landinu. MYND/KIRKJUÞING 2012
sekar fundnar mun lágmarks refs-
ing hljóða upp á fimm til átta ára
fangelsisvist.
Útlitið er því ekki bjart og staðan
batnar heldur ekki við það að aðbún-
aðurinn í tékkneskum fangelsum er
fremur slæmur. Þá er enginn fram-
salssamningur í gildi milli Íslands
og Tékklands og því ekki um það að
ræða að stúlkurnar fái að afplána
hugsanlega dóma hér heima á
Íslandi.
Össur Skarphéðinsson segir
mál eins og þetta afar erfið fyrir
aðstandendur, ekki síst þegar um
sé að ræða kornungt fólk. „Það auð-
vitað veldur miklu angri. Við erum
boðin og búin að gera það sem í
okkar valdi stendur til að greiða
götu þeirra en því miður getum við
ekki hrifið menn út úr fangelsum
eða varðhaldi eins og þessar stúlk-
ur hafa verið úrskurðar í – en við
gerum okkar besta,“ segir utanrík-
isráðherra.
gar@frettabladid.is