Fréttablaðið - 03.12.2012, Qupperneq 8
3. desember 2012 MÁNUDAGUR| FRÉTTIR | 8
Fyrir andvirði þ essa gjafabréfs á gjofsemgefur.is fá efnalitlir
foreldrar á Íslandi gjafakort í verslun með leikföng, bækur og
föt og geta þeir valið b arni s ínu gjöf eftir þörfum þess o g óskum.
ALLIR FÁ ÞÁ EITTHVAÐ FALLEGT
www.gjofsemgefur.is
11
30
22
11
30
22
11
30
222
30
22
11
30
22
11
30
22
13
02
2
30
2222
11
30
22
11
30
2
13
022
11
30
202
11
3030
2000331111
FRAMKVÆMDIR Lagt er til að bygg-
ing nýs Landspítala við Hring-
braut verði hefðbundin opinber
ríkisframkvæmd og horfið verði
frá svokallaðri leiguleið sem fyr-
irhugað var að fara, að því er
fram kemur í minnisblaði sem
Katrín Júlíusdóttir, fjármála- og
efnahagsráðherra, og Guðbjart-
ur Hannesson velferðarráðherra
lögðu fram á ríkisstjórnarfundi á
föstudag.
Ráðherrarnir leggja til að und-
irbúið verði frumvarp um breyt-
ingar á lögum sem geri opinberu
hlutafélagi um byggingu nýs Land-
spítala (NLSH ohf.) kleift að halda
utan um og annast byggingu nýs
Landspítala sem fjármagnaður
yrði sem opinber framkvæmd að
mestu eða öllu leyti. Frumvarpið
yrði lagt fram í janúar.
Lagt er til að næstu mánuði
muni fjármála- og efnahagsráðu-
neytið í samráði við NLSH ohf.
og Landspítalann fara yfir fram-
kvæmda- og fjárhagsáætlan-
ir vegna verkefnisins. Athugað
verði hvort finna megi svigrúm í
langtímaáætlun um ríkisfjármál
á næstu árum með það að mark-
miði að farið verði í verkefnið eða
stærstu verkþættina sem opinbera
framkvæmd ríkisins. Við þá skoð-
un verði lögð áhersla á að halda
jöfnuði í ríkisfjármálum auk þess
sem tekið verði tillit til hagræð-
ingar og hagrænna áhrifa fram-
kvæmdanna.
Samkvæmt leiguleiðinni átti
einkaaðili að byggja og reka hús-
næðið og leigja það til ríkisins
til langs tíma. Fram hafi komið
veigamiklar efasemdir um hvort
bygging spítalans uppfylli nauð-
synleg frumskilyrði sem þurfa að
vera fyrir hendi þegar leiguleiðin
er farin, að því er segir í minnis-
blaðinu. - shá
Ráðherrar leggja til að horfið verði frá leiguleið:
Nýr Landspítali verði
í ríkisframkvæmd
Á TEIKNIBORÐINU Leiguleiðin er nú ekki talin vænleg. MYND/LSH
EGYPTALAND Hæstiréttur Egypta-
lands sendi í gær frá sér yfir-
lýsingu um að hann væri hættur
störfum þangað til unnt yrði að
úrskurða um mál án utanaðkom-
andi þrýstings.
Yfirlýsingin kom í kjölfar þess
að stuðningsmenn Mohammeds
Morsi forseta fjölmenntu við dóm-
húsið í Kaíró og hindruðu dómar-
ana í að komast inn í húsið til að
dæma um lögmæti nefndar sem
setti saman ný drög að stjórnar-
skrá sem samþykkt var í þinginu
nýverið. Einnig átti rétturinn að
úrskurða hvort efri deild þingsins
hefði verið rétt kjörin.
Í stjórnarskrárdrögunum er
meðal annars kveðið á um að for-
setinn hafi úrslitavald í öllum
málum og að hæstiréttur hafi ekki
vald til að stöðva framkvæmd til-
lagna hans.
Andstæðingar stjórnarskrár-
draganna hafa bent á að með þeim
taki forsetinn sér nánast alræðis-
vald, en stuðningsmenn Morsis
segja stjórnarskrárbreytingarnar
rökrétt skref til þess að tryggja
að sá árangur, sem náðist þegar
Hosni Mubarak var steypt af stóli,
verði ekki að engu.
Þetta sé eina leiðin til að koma í
veg fyrir að ekkert verði úr þeim
breytingum á stjórnskipan lands-
ins, sem unnið hefur verið að síð-
ustu mánuði.
Þjóðaratkvæðagreiðsla um
stjórnarskrána er fyrirhuguð hinn
15. desember. - fsb
Fjölmenn mótmæli urðu í Egyptalandi um helgina þar sem tekist er á um nýja stjórnarskrá:
Hæstiréttur leggur niður störf vegna þrýstings
MÓTMÆLI Mikil ólga ríkir í Kaíró og
stuðningsmenn og andstæðingar Morsi
forseta mótmæla nær daglega.
NORDICPHOTOS/GETTY
1. Hverjir hafa boðið sig fram í for-
mannskjör Samfylkingarinnar?
2. Hver fer með aðalhlutverkið í
Makbeð sem Þjóðleikhúsið ætlar að
setja á svið?
3. Við hvaða lið samdi Selfyssingurinn
Jón Daði Böðvarsson fyrir skömmu?
SVÖR
1. Árni Páll Árnason og Guðbjartur Hann-
esson 2. Björn Thors 3. Víking í Stafangri
➜ Ráðherrarnir gera að
tillögu sinni að nýr spítali
verði fjármagnaður sem
opinber framkvæmd að
mestu eða öllu leyti.