Fréttablaðið - 03.12.2012, Qupperneq 12
3. desember 2012 MÁNUDAGURSKOÐUN
HALLDÓR
FRÉTTABLAÐIÐ Skaftahlíð 24, 105 Reykjavík Sími: 512 5000, ritstjorn@frettabladid.is FRÉTTASTJÓRAR: Arndís Þorgeirsdóttir arndis@frettabladid.is, Kristján Hjálmarsson, kristjan@frettabladid.is og Trausti Hafliðason trausti@frettabladid.is HELGAREFNI: Sigríður Björg Tómasdóttir, ritstjórnarfulltrúi, sigridur@frettabladid.is
MENNING: Bergsteinn Sigurðsson bergsteinn@frettabladid.is DÆGURMÁL: Kjartan Guðmundsson kjartan@frettabladid.is ÍÞRÓTTIR: Sigurður Elvar Þórólfsson seth@frettabladid.is LJÓSMYNDIR: Pjetur Sigurðsson pjetur@frettabladid.is FRAMLEIÐSLUSTJÓRI: Kolbrún Ingibergsdóttir kolbrun@frettabladid.is
FRÁ DEGI
TIL DAGS
ÚTGÁFUFÉLAG: 365 miðlar ehf. STJÓRNARFORMAÐUR: Ingibjörg S. Pálmadóttir FORSTJÓRI OG ÚTGÁFUSTJÓRI: Ari Edwald
RITSTJÓRI: Ólafur Þ. Stephensen olafur@frettabladid.is AÐSTOÐARRITSTJÓRI: Steinunn Stefánsdóttir steinunn@frettabladid.
is Fréttablaðið kemur út í 90.000 eintökum og er dreift ókeypis á heimili á höfuðborgarsvæðinu og Akureyri. Einnig er hægt að
fá blaðið í völdum verslunum á landsbyggðinni. Fréttablaðið áskilur sér rétt til að birta allt efni blaðsins í stafrænu formi og í
gagnabönkum án endurgjalds. Issn 1670-3871
Þórður Snær
Júlíusson
thordur@frettabladid.is
Sú var tíðin hér á landi að fólki var kennt
að bera harm sinn í hljóði. Svipleg, ótíma-
bær dauðsföll voru ekki rædd, dauðinn
var feimnismál. Stundum var eins og það
fólk hefði aldrei verið til sem lést við erf-
iðar aðstæður. Nafn hins látna mátti jafn-
vel ekki nefna upphátt við nokkurn mann.
Fyrir u.þ.b. aldarfjórðungi fór þetta að
breytast hér á landi. Það gerðist ekki af
sjálfu sér frekar en aðrar breytingar á hug-
arfari heillar þjóðar.
Kannski varð það tvennt fremur en annað
sem breytti hugarfarinu. Annars vegar
komu fram ný viðhorf meðal fagfólks. Það
sem menntast hafði erlendis, ekki síst í
Vesturheimi kom til baka með ný viðhorf
til þess hvernig vinna skyldi úr áföllum og
sorg. Heilbrigðisstéttir, sjúkrahúsprestar,
sálfræðingar svo að nokkrir faghópar séu
nefndir, fengu nýja innsýn í það hvernig
styðja skyldi fólk eftir erfiðustu áföll lífs-
ins, t.d. barnsmissi, sjálfsvíg, eða að missa
maka í blóma lífsins. Hins vegar, og ekki
síður var það hreyfing syrgjenda sjálfra
sem breytti hugarfarinu. Einstaklingar sem
höfðu orðið fyrir sárum missi fóru að hitt-
ast í hópum og styðja hver annan í gegn-
um áföllin. Sáu það síðan sem spor á sínum
bataferli að styðja aðra í sömu sporum.
Þessi þróun holdgerðist svo í samtökum
fagfólks og syrgjenda til að vinna með sorg
og áföll. Þau samtök fengu síðar nafnið Ný
dögun en að auki voru stofnuð félög víða
um land í kjölfarið með sama markmið að
leiðarljósi. Núna 8. desember verður þess
einmitt minnst með veglegri dagskrá að
Ný dögun er 25 ára. Þau samtök standa að
fræðslu um hinar ýmsu hliðar sorgar og
sorgarúrvinnslu og bjóða enn fremur upp
á stuðningshópa fyrir syrgjendur sjálfa.
Og verkefnið tekur aldrei enda því
„mennirnir elska, missa, gráta og sakna“
eins og Jóhann Sigurjónsson skáld orðaði
harminn. Og sorgin er hvunndagsleg – öll
verðum við fyrir áföllum, misþungum þó.
Því verður þörfin fyrir stuðning og sam-
líðan með öðrum ávallt fyrir hendi, þörfin
að styðja fólk eftir erfið áföll og sorg. Það
gerir samtök eins og Nýja dögun og önnur
hliðstæð nauðsynleg.
Ný dögun – 25 ára sorgarvinna
Á
R
N
A
S
Y
N
IR
util if. is
LEKI
GÖNGUSTAFIR
9.990 kr.
TRAUSTIR OG VANDAÐIR.
SAMFÉLAGSMÁL
Halldór
Reynisson
formaður Nýrrar
dögunar
➜ Einstaklingar sem höfðu orðið
fyrir sárum missi fóru að hittast
í hópum og styðja hver annan í
gegnum áföllin. Sáu það síðan sem
spor á sínum bataferli að styðja
aðra í sömu sporum.
V
andi Íbúðalánasjóðs er gríðarlega mikill. Ríkið
hefur þurft að leggja sjóðnum til 46 milljarða
króna á tveimur árum og viðbúið er að enn meiri
peningum þarf að fórna í hítina. Svartsýnustu
raddir telja að skuldbindingar hans geti orðið allt
að 200 milljörðum króna meiri en eignir hans. Til að setja
þessa tölu í samhengi þá jafngildir hún því að hver einn og
einasti íbúi landsins þurfi að greiða 625 þúsund krónur til að
gera upp sjóðinn. Slíkt samhengi er mikilvægt vegna þess að
það erum alltaf við, almenningur, sem munum greiða fyrir
viðgerðina. Einu spurningunni sem er ósvarað er hvort við
gerum það sem skattgreiðendur eða lífeyrisþegar.
En af hverju er þetta svona? Á hverra vakt varð þessi
félagslegi banki að peningalegri kjarnorkusprengju? Ljóst er
að margar ákaflega vondar ákvarðanir hafa verið teknar hjá
Íbúðalánasjóði. Breytingin á
húsbréfakerfinu árið 2004 var
líkast til afdrifaríkust. Sá sem
framkvæmdi hana var Árni
Magnússon, þá félagsmála-
ráðherra. Með breytingunum
urðu skuldir sjóðsins ekki
lengur uppgreiðanlegar, þótt
útlán hans væru það. Þegar
íslensku einkabankarnir stormuðu inn á íbúðalánamarkaðinn
skömmu síðar tók fullt af fólki lán hjá þeim og greiddi upp
gömul lán hjá sjóðnum, alls 240 milljarða króna á árunum
2004 til 2006.
Þar sem Íbúðalánasjóður gat ekki notað þetta fé til að
borga upp skuldir sínar, en þurfti að ávaxta það til að eiga
fyrir vaxtakostnaði, þá fór sjóðurinn að gera tvennt. Annars
vegar keypti hann greiðsluflæði tiltekinna fasteignalána
banka. Hins vegar fór hann að kaupa skuldabréf útgefin af
íslensku bönkunum. Þar með var Íbúðalánasjóður í raun
farinn að fjármagna að hluta íbúðalán einkabankanna.
Sjóðurinn hefur þurft að innleysa tugmilljarða tap vegna
þessara fjárfestinga.
Mikið hefur verið látið með þá ákvörðun sjóðsins að hækka
lánshlutfall upp í 90 prósent árið 2004. Sú ákvörðun var út
í hött en hún var ekki jafn afdrifarík og margir vilja vera
láta. Það voru útlán einkabankanna, sem á svipuðum tíma
fóru að gera sig gildandi á fasteignalánamarkaði, sem blésu í
fasteignabóluna sem síðar sprakk í andlitið á þjóðinni.
Jóhanna Sigurðardóttir, þá félagsmálaráðherra, ákvað
síðan að rýmka útlánareglur sjóðsins árið 2008 með þeim
hætti að hámarkslán voru hækkuð úr 18 í 20 milljónir. Sam-
hliða var ekki lengur lánað fyrir 90 prósentum af brunabóta-
mati heldur 80 prósentum af markaðsvirði. Þetta var galin
aðgerð, sem jók þenslu fremur en að draga úr henni, líkt og
lagt var upp með að gera.
Á vandanum bera því margir ábyrgð. Sérstök rannsóknar-
nefnd um starfsemi Íbúðalánasjóðs, sem á að vera löngu búin
að skila niðurstöðum sínum, mun taka á þeirri fortíð. Meira
knýjandi er þó að takast á við framtíðina. Ljóst er að Íbúða-
lánasjóður eins og hann er í dag á ekki slíka, enda neytendur
búnir að hafna með öllu einu vörunni sem hann býður upp
á, verðtryggðum lánum. Það þarf því að finna honum annað
hlutverk eða leggja hann niður. Samhliða þarf að ákveða
hvaða hatt almenningur á að vera með á höfðinu þegar hann
borgar reikninginn. Á hann að gera það strax í gegnum ríkis-
sjóð, sem á Íbúðalánasjóð, eða fresta vandanum og gera það í
gegnum lífeyrissjóðina okkar, sem eiga þorra skulda hans?
Almenningur mun borga fyrir Íbúðalánasjóð:
Við og við
Upphefjum virðinguna
„Forseti á að taka sig taki og reyna
að upphefja virðingu þingsins… “
sagði Björn Valur Gíslason í viðtali
við Stöð 2 fyrir sjö vikum. Honum
fannst Ásta Ragnheiður Jóhann-
esdóttir ekki taka nógu fast
á máli ríkisendurskoðanda,
sem hafði í átta ár unnið að
skýrslutetri um bókhalds-
kerfi ríkisins. Birni Val fannst
þingið setja niður við þetta
allt saman. Það er gott
að hann skyldi hafa
áhyggjur af þverr-
andi virðingu
þingsins. Ekki
er vanþörf á –
traust til þess
er í lágmarki.
Aukum traustið
„Brýn nauðsyn er á að umræðuhefð
þingsins breytist og traust til þess
um vönduð vinnubrögð aukist frá því
sem nú er.“ Svo segir í frumvarpi um
breytingu á þingsköpum sem
lagt var fram í september.
Í ljósi þess sem segir
hér að framan hljóta
margir að geta tekið
undir þetta. Einn þeirra
er Lúðvík Geirsson, sem
var á meðal flutnings-
manna frum-
varpsins.
Enga vitleysu
Birni Val Gíslasyni og Lúðvík Geirs-
syni er annt um þingið og ásýnd
þess. Það hafa þeir sýnt með orðum
sínum og gjörðum. Hvorugur þeirra
mundi nokkurn tímann láta
hafa sig út í vitleysu eins og
þá sem léttúðugri galgopar
tíðka stundum í þing-
sal. Þess vegna er bæði
furðulegt og miður að þeim
skuli ekki hafa gengið betur
í prófkjörum en svo að
þeir séu líklega
báðir á leið af
þingi.
stigur@frettabladid.is