Fréttablaðið - 03.12.2012, Side 47
MÁNUDAGUR 3. desember 2012 | MENNING | 23
util if. is
THE NORTH FACE
MCMURDO
DÚNÚLPA
68.990 kr.
HENTAR SÉRLEGA VEL
FYRIR ÍSLENSKT VEÐURFAR.
HYVENT ÖNDUNARFILMA
VEITIR GÓÐA VATNSVÖRN.
Á
R
N
A
S
Y
N
IR
Leikkonan Demi Moore virð-
ist vera búin að jafna sig eftir
skilnaðinn við Ashton Kutcher og
farin að leita á ný mið. Sá heppni
er 26 ára gamall listaverkasali og
partíhaldari í Los Angeles, Vito
Schnabel, en þau hafa ítrekað
sést saman undanfarið.
Moore er ekki fyrsta fræga
konan sem Schnabel er orð-
aður við, þær Liv Tyler og Elle
Macpherson hafa báðar heillast
af kappanum. People Magazine
segir hann vera glaumgosa og
þekktan fyrir að halda eftirsótt
partí fyrir elítuna vestanhafs.
Kutcher, fyrrverandi eigin-
maður Moore, er hins vegar
búinn að finna hamingjuna með
leikkonunni Milu Kunis.
Komin
með nýjan
Á STEFNUMÓT Demi Moore er farin
að hitta Vito Schnabel sem er 24 árum
yngri en leikkonan.
NORDICPHOTOS/GETTY
Sean Penn er alveg heillaður af
bresku söngkonunni Florence
Welch, ef marka má frétt The
Enquirer. Parið kynntist á við-
burði Los Angeles í október og
hefur verið í reglulegu sambandi
allar götur síðan.
„Sean dáir konur sem eru
ungar, skapstórar og fallegar. Það
var eitthvað við Florence sem
heillaði hann. Honum finnst hún
ekki aðeins gullfalleg heldur líka
einstakur persónuleiki. Hann er
staðráðinn í að gera eitthvað úr
þessu,“ var haft eftir heimildar-
manni.
Penn er 52 ára gamall og því er
töluverður aldursmunur á parinu.
Welch er aðeins 26 ára gömul.
Heillaði Penn
HEILLAÐI PENN Florence Welch er
sögð hafa heillað Sean Penn upp úr
skónum. NORDICPHOTOS/GETTY
TÓNLIST ★★★ ★★
Egill Ólafsson
Vetur
SENA
Egill Ólafsson er einn af fremstu
popptónlistarmönnum Íslands.
Hann var (eða er) lykilmaður í Spil-
verki þjóðanna, Stuðmönnum og
Þursaflokknum og hann hefur gert
margt gott fyrir utan það, bæði
undir eigin nafni og í samstarfi
við aðra. Vetur er sjötta sólóplatan
hans og sú fyrsta síðan Hymnalög
komu út fyrir fimm árum.
Vetur var unnin með finnskum
tónlistarmönnum, Matti Kallio
samdi nokkur laganna, spilaði á
hljómborð, harmonikku, flautur
og slagverk og sá um útsetningar
og stjórn upptöku, en að auki spila
á plötunni Lassi Logrén og Matti
Laitinen, en Þórhildur Örvarsdótt-
ir raddar og syngur með Agli í lag-
inu Hafið.
Tónlistin á Vetri ber sterkan
keim af þjóðlagatónlist. Þetta er
frekar hæg plata með gamaldags
hljóðheimi, en á meðal þeirra hljóð-
færa sem gefa plötunni lit eru
bogastrokin lýra og lykilharpa.
Egill semur flesta textana og fimm
laganna. Hann er fínn textahöf-
undur, vandvirkur og úthugsaður.
Veturinn er viðfangsefni nokkurra
texta, en þau eru fleiri og tengjast
flest veruleika mannsins eða ást-
inni. Eitt laganna er við texta Jóns
Arasonar Hólabiskups.
Þetta er prýðilega unnin plata.
Það er svolítið þungt yfir henni og
ekki mikið um grípandi melódí-
ur þannig að hún er kannski ekki
allra. Þeir sem kunna að meta Egil
á rólegri nótunum, þennan íhugula
og djúpspaka sem hummar stund-
um og kann þá list að staldra við og
leyfa tónlistinni að draga andann,
– þeir ættu hiklaust að gefa henni
gaum. Trausti Júlíusson
NIÐURSTAÐA: Róleg og gamaldags
plata undir sterkum áhrifum þjóð-
lagatónlistar
Vönduð vetrarplata