Fréttablaðið - 04.01.2013, Blaðsíða 17
FÖSTUDAGUR 4. janúar 2013 | SKOÐUN | 17
Þann 29. desember síðast-
liðinn birtist grein eftir
Geir Gunnlaugsson land-
lækni og Önnu Björgu
Aradóttur, sviðsstjóra
landlæknisembættis-
ins. Sú grein var svar
við grein minni tveimur
dögum áður sem fjallaði
um hvernig málsmeðferð
kvörtunarmála væri hátt-
að ef embættið færi eftir
lögum, sem á lítið skylt
við mína reynslu. Mig
langar til að nýta tækifærið og
gefa lesendum frekari innsýn í
vinnubrögð embættisins.
Þegar almenningur kvartar yfir
málsmeðferð embættisins til
æðra stjórnvalds þá svarar emb-
ættið gjarnan í sama stíl og fyrr-
nefnd grein embættisins var,
þ.e.a.s. með yfirborðslegum skrif-
um um lög landlæknis og að emb-
ættið vinni „ítarlega og faglega“.
Flestar hinna efnislegu athuga-
semda eru hunsaðar eða þeim
svarað með útúrsnúningum. Skoð-
um þessa grein nánar.
Útúrsnúningataktík
Í greininni er reynt að láta líta út
fyrir að ég hafi fyrst og fremst
verið ósáttur við niðurstöðu emb-
ættisins í kvörtunarmáli mínu.
Það er dæmigerð útúrsnúninga-
taktík embættisins. Úrskurð-
inum var hnekkt af velferðar-
ráðuneytinu, m.a. vegna fjölda
rangfærslna, órökstuddra fullyrð-
inga og óhlutleysis umsagnaraðila
og vegna þess að annar umsagn-
araðilinn var meðeigandi Lækna-
stöðvar Orkuhússins þar sem
meint mistök voru gerð. Hvort
tveggja eru óeðlileg og alvarleg
brot á stjórnsýslulögum.
Landlæknir hefur ekki mann-
dóm í sér til að nefna þetta eða
biðjast afsökunar á því, jafnvel
þó að æðra stjórnvald hafi
úrskurðað brotin. Þess
í stað gefur greinin til kynna að
ásakanir mínar gagnvart umsagn-
araðilum séu óréttmætar án þess
að nokkuð í málflutningi hans
styðji það. Síðasta dæmið um
rökleysi landlæknis er fullyrð-
ing hans um að ásakanir mínar
um mannréttindabrot embættis-
ins dæmi sig sjálfar. Það vill svo
til að mínar ásakanir eru grund-
vallaðar á málefnalegum rökum,
rökum sem embættið hefur feng-
ið tækifæri til að svara en hunsað
með öllu.
Þungar áhyggjur
Fögur orð landlæknisembættis-
ins um vinnubrögð sín mega telj-
ast furðuleg í ljósi þess að nýverið
hafði umboðsmaður Alþingis það
til skoðunar að hefja frumkvæðis-
athugun á stjórnsýslu landlæknis-
embættisins. Lendingin í því
máli var að senda þá starfsmenn
embættisins sem koma að kvört-
unarmálum í stjórnsýsluskóla
Stjórnarráðsins. Á heimasíðu
umboðsmanns Alþingis, frá 17.
október 2012, má lesa að „ef til-
efni gefst til verður á ný tekin
afstaða til þess hvort ráðist verð-
ur í frumkvæðisathugun á stjórn-
sýslu landlæknis“. Þetta sýnir að
umboðsmaður Alþingis hefur
þungar áhyggjur af vinnubrögð-
um landlæknisembættisins.
➜ Úrskurðinum var
hnekkt af velferðar-
ráðuneytinu, m.a.
vegna fjölda rang-
færslna, órökstuddra
fullyrðinga og óhlut-
leysis umsagnar aðila.
HEILBRIGÐIS-
MÁL
Árni Richard
Árnason
verkfræðingur
Á seinasta degi ársins 2012 hljóp
ég ásamt um þúsund öðrum í
Gamlárshlaupi ÍR. Annað árið í
röð var hlaupið fram og til baka
eftir Sæbrautinni með smá hring
um hin fögru stræti Klettagarða
og Vatnagarða, framhjá gáma- og
iðnaðarsvæðum þar sem maður
ímyndar sér að vondir karlar í bíó-
myndum lemji góðu karlarna með
röri til að fá upp úr þeim lykilorð
að móðurtölvu FBI.
En allt í lagi. Ég ætla ekki að
hefja nýja árið með heljarinnar
skeifu og auðvitað er ég massa-
þakklátur öllum þeim sem skipu-
lögðu hlaupið, sérstaklega þeim
fjölmörgu sjálfboðaliðum sem
klöppuðu fyrir manni á leiðinni
í veðri sem var margfalt erfið-
ara þeim sem stóðu en þeim
sem hlupu. Ég er bara að segja:
Reykjavík getur boðið betur.
Gamlárshlaupið var þar til fyrir
ári hlaupið eftir svipaðri leið og
10 kílómetrarnir í Reykjavíkur-
maraþoninu, hringinn í kringum
Vesturbæ Reykjavíkur og Sel-
tjarnarnes. Í fyrra var gerð breyt-
ing þar á og rás- og endamarkið
flutt í Hörpu og hlaupið meðfram
sjó. Harpan hentar reyndar vel
þegar hýsa á margmenni en ég
veit ekki með það að láta fólk
hlaupa svo langt frá öllu mannlífi.
Jú, kannski þvælast hlauparar
fyrir fæstum með þessu móti.
Fæstum bílum það er að segja.
Menn geta keyrt Nesveginn
ótruflaðir. En mikið asskoti er
þetta leiðinlegt. Eini maðurinn
sem yrti á mig, að sjálfboðaliðun-
um undanskildum, sat fastur í bíl
í Vatnagörðum og muldraði eitt-
hvað í áttina til mín, með sígar-
ettu í annarri. Ég ímynda mér að
hann hafi sagt: „Áfram, Pawel, þú
getur þetta!“ Ég er þó ekki viss.
Lynghaginn
Allir sem einhvern tímann hafa
reimað á sig skóna og hlaupið í
Reykjavíkurmaraþoninu hljóta að
kannast við þá upplifun að hlaupa
í gegnum Lynghagann. Þar koma
íbúarnir allir fram á stétt með
dollur, skilti og tónlist og hvetja
fólk til dáða. Svipuð stemning
tekur svo aftur við þegar hlaupið
er í gegnum Lindarbraut úti á Sel-
tjarnarnesi.
Djasshljómsveitir, pepp tónlist
úr hátölurum, fólk að kæla hlaup-
ara með garðslöngum í heitu
veðri. Stuð.
Það er auðvitað engin hlaupaleið
meitluð í stein. Alltaf má reyna
að gera betur. En reynum þá að
gera betur. Ef gera á götuhlaup
í Reykjavík betri þarf að fjölga
Lynghögunum og Lindarbraut-
unum á leiðinni en ekki að fækka
þeim. Jafnvel þótt það þýði „tafir
á umferð“.
Best heppnuðu almennings-
hlaupin erlendis eru einmitt
eftirsótt vegna þeirrar stemn-
ingar sem skapast meðal hlaup-
ara og áhorfenda. Góð götuhlaup
eru eins og samfelld röð Lyng-
haga og Lindarbrauta. Það á til
dæmis við um maraþonhlaup sem
haldið er á hverju hausti í bænum
Berlín í norðausturhluta Þýska-
lands. Flestum þekktum götum
bæjarins, til dæmis Unter den
Linden, 17. júní stræti og Kur-
fürstendamm, er lokað bróðurpart
laugardags og sunnudags. Varlega
áætlað búa tvær milljónir manna
á því svæði sem þær lokanir ná
yfir. En samt eru það hinir rúm-
lega 40 þúsund keppendur sem
njóta forgangs þá helgi. Þá er for-
gangsraðað í þágu mannlífs, ekki
umferðar.
8.777 klukkustundir
Liðið ár taldi 8.784 klukkustundir.
Af þeim var Nesveginum kannski
lokað fyrir akandi umferð í um
sex tíma í tengslum við Reykja-
víkurmaraþonið: Hinar 8.778
klukkustundir ársins fengu bíl-
stjórar að hafa Nesveginn út af
fyrir sig. Lífið færi auðvitað ekki
á hliðina þótt sú tala færi niður í
8.777.
Nú hef ég heyrt að einhverjir
ökumenn hafi keyrt á sjálfboða-
liða sem stýra umferð í tengslum
við svona hlaup og ég hef sjálfur
séð bíla reyna að brjóta sér leið í
gegnum þvögu fólks, flautandi á
allt og alla.
Það er engin ástæða til að
beygja sig undir svoleiðis
ribbalda hátt. Ef götum er lokað
tvisvar á ári vegna hlaupa og þær
lokanir eru auglýstar með góðum
fyrirvara geta þeir sjálfum sér
um kennt sem þurfa að bíða í hálf-
tíma til að aðrir geti notið göt-
unnar. Þeir geta þá huggað sig við
að fá að hafa hana út af fyrir sig
hinar 8.777 klukkustundir ársins.
Að trufla ekki umferð
Í DAG
Pawel Bartoszek
stærðfræðingur
Ef gera á götuhlaup
í Reykjavík betri þarf
að fjölga Lynghögunum og
Lindarbrautunum á leiðinni
en ekki að fækka þeim.
Jafnvel þótt það þýði „tafir
á umferð“.
Raunveruleg meðferð
kvörtunarmála land-
læknisembættisins
REYKJAVÍK AKUREYRI EGILSSTAÐIR KEFLAVÍK SELFOSS HAFNARFJÖRÐUR
SSD DISKAR
AF MÖRGUM STÆRÐUM OG GE
RÐUM
13.990
21.990
60GB SSD DISKUR
120GB SSD DISKUR
Hágæða Force 3 SSD diskur frá
Corsair. 525MB á sekúndu leshraði
og 490MB skrifhraði.
Eigum á lager mikið úrval af
SSD diskum frá Corsair, OCZ,
Samsung og SanDisk.
frá Samsung með þriggja
kjarna MDX stýringu.