Fréttablaðið - 04.01.2013, Page 62

Fréttablaðið - 04.01.2013, Page 62
4. janúar 2013 FÖSTUDAGUR| MENNING | 46 „Við tókum plötuna upp tvisvar,“ segir Jófríður Áka- dóttir, annar helmingur dúettsins Pascal Pinon, en sveitina skipar hún ásamt tvíburasystur sinni, Ást- hildi. „Við létum útgáfufyrirtækið hafa plötuna en vorum hvattar til þess að taka hana upp aftur, og þá með upptökustjóra.“ Systurnar fengu því upptökustjórann Alex Somers til liðs við sig og með honum hljóðrituðu þær plötuna upp á nýtt í heimastúdíói á Bergstaðastræti. „Við byrj- uðum að taka upp sumarið 2011 en svo var platan í bið- stöðu allan síðasta vetur. Alex var upptekinn og við vorum í skólanum og svona.“ Hljómsveitin spilar á Eurosonic-hátíðinni, sem fram fer í Hollandi í næstu viku, en stúlkurnar geyma stórar tónleikaferðir til betri tíma á meðan þær stunda nám við Menntaskólann í Hamrahlíð. „Við tökum stuttan túr núna í febrúar, en það er allt og sumt sem skólinn leyfir í bili. Við tökum örugglega lengri ferð í maí, þegar við erum komnar í frí,“ segir Jófríður, en þær Ásthildur fara með föður sínum, blás- aranum Áka Ásgeirssyni, í allar tónleikaferðir. „Hann er bæði ferðastjóri hljómsveitarinnar og hljóðmaður,“ segir Jófríður, sem viðurkennir fúslega að pabbi passi þær systur á ferðalögum. „Þessu popp- stússi fylgir ýmislegt vafasamt en hann gætir okkar vel.“ - hva Pabbi passar Pascal Pinon Þær Jófríður og Ásthildur Ákadætur skipa dúettinn Pascal Pinon, sem sendi nýverið frá sér plötuna Twosomeness, en þær taka pabba með í tónleikaferðir. PASCAL PINON Systurnar spila á Eurosonic-hátíðinni í Hollandi. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN „Það er enginn hestur og engin náttúra,“ segir Helgi Jóhannsson, en hann leikstýrir myndbandi söng- konunnar Saint Lu við eitt þeirra fjögurra laga sem keppa í lokaúrslitum þýsku undankeppninnar fyrir Eurovision. Tökur hefjast í næstu viku og verður mynd bandið tekið í miðborg Reykjavíkur. „Þetta er millistórt tónlistarvídeó og þegar mest er telur hópurinn um fjörutíu manns, með tökuliði og leikurum,“ segir Helgi. Í myndbandinu fylgjast áhorfendur með vafa- sömum ævintýrum söngkonunnar, sem kallast réttu nafni Luise Gruber, með elskhuga sínum um dimma Reykjavíkurnótt. Helgi hefur leikstýrt allnokkrum íslenskum myndböndum, meðal annars verðlaunamyndbandi fyrir rafpopparann Berndsen og nú síðast fyrir rokksveitina Diktu. Þýska myndbandið er hins vegar stærsta verk- efni Helga til þessa og ef framlag söngkonunnar ber sigur úr býtum gæti farið svo að myndbandið fylgdi laginu í aðalkeppnina. „Annars vil ég ekki fullyrða neitt. Það getur vel verið að hún geri annað mynd- band ef hún vinnur,“ segir Helgi og gefur lítið fyrir getgátur um framtíðina. - hva Leikstýrir þýskri poppsöngkonu Helgi Jóhannsson gerir Eurovision-myndband fyrir söngkonuna Saint Lu. ENGIN NÁTTÚRA Helgi og Saint Lu halda sig innan borgar- marka. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI „Ég ætla að synda einn kílómetra. Svo ætla ég að halda upp á afmæli dóttur minnar á sunnudaginn. Hún verður fjórtán ára.“ Steinunn Knútsdóttir, deildarforseti hjá Listaháskóla Íslands. HELGIN Plötusala árið 2012 var um 8% minni en árið áður. Þetta kemur fram ef Tónlistinn er skoðaður. Hann tekur saman sölutölur úr öllum stærstu smásöluverslunum landsins. Listinn segir ekki alla söguna því ekki eru allar verslanir teknar með í reikninginn en er mjög nærri lagi. Árið 2011 var metár í plötusölu hérlendis og því erfitt að bera 2012 saman við það. Þá seldist plata Mugisons, Haglél, í um þrjátíu þús- und eintökum sem er met. Salan 2009 og 2010 markast af því að engin plata náði álíka vinsældum og Haglél eða Dýrð í dauðaþögn með Ásgeiri Trausta sem seldist í um 22 þúsund eintökum í fyrra. Salan 2012 var sú næstbesta á undanförnum fjórum árum hvað varðar seld eintök. Hún var 10% betri en 2009 og 25% betri en 2010. „Árið var frábært í nýjum íslenskum plötum. Markaðurinn virðist hafa brugðist vel við þeirri staðreynd því salan var mjög góð,“ segir Eiður Arnarsson hjá Senu, stærstu útgáfu landsins. „Ungu listamennirnir seldu afgerandi vel. Það er svolítið stóra fréttin, sýnist manni.“ Þar á hann við Ásgeir Trausta, Of Monsters and Men, Retro Stef- son, Valdimar og fleiri flytjendur sem nutu mikilla vinsælda á síð- asta ári. Plata Of Monsters and Men, My Head Is an Animal, seldist í um tíu þúsund eintökum á árinu en alls hefur hún selst í um tuttugu þúsundum síðan hún kom út 2011. Retro Stefson seldi plötu sína í yfir fimm þúsund eintökum, sem er gullsala. Meðal eldri listamanna sem seldu minna en oft áður var Bubbi Morthens. Platan hans Þorpið, sem kom út síðasta vor, seldist í um 3.500 eintökum á meðan Ég trúi á þig með Bubba og Sólskuggunum frá 2011 fór í um 5.500 eintökum. Í erlendu deildinni seldi ensk- írska strákabandið One Direction plötuna Take Me Home í um 1.500 eintökum og kanadíski poppar- inn Justin Bieber var á svipuðum slóðum með Believe. Platan 21 með Adele seldist einnig vel árið 2012 þrátt fyrir að hafa komið út ári fyrr. Merry Christmas, Baby með Rod Stewart vakti líka lukku og seldist í um eitt þúsund eintökum. freyr@frettabladid.is Plötusala dróst saman um 8% Salan árið 2012 var samt mjög góð. Ungir listamenn seldu meira en þeir eldri. SELDU VEL 2012 Of Monsters and Men seldi plötuna sína í um tíu þúsund eintökum árið 2012. One Direction naut einnig vinsælda hér á landi.

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.