Fréttablaðið - 02.02.2013, Page 46

Fréttablaðið - 02.02.2013, Page 46
FÓLK|| FÓ K | HELGIN4 Þetta er hreint frábær sýning og þarna eru stórkostlegar myndir af drengjum í mikilli erfiðisvinnu,“ segir Ragnheiður Þóra Grímsdóttir sem í dag leiðir gesti um farandsýninguna Þrælkun, þroski, þrá? sem opnar í Listasetrinu Kirkju- hvoli á Akranesi í dag. Sýningin var fyrst opnuð í Þjóðminjasafni Íslands 2009 og fjallar um börn við vinnu. Myndirnar kveikja umhugsun um vinnu barna, aðbúnað þeirra og vinnuskilyrði á fyrri hluta 20. aldar. STÚLKUR ÞRÆLUÐU LÍKA Ragnheiður er afar hrifin af sýning- unni en eitt þótti henni þó vanta. „Ég saknaði þess að sjá ekki fleiri myndir af stúlkum því þær þurftu ekki síður að þræla en drengirnir. Við eina eða tvær myndir stendur textinn „börn við fiskvinnslu“ og þá glittir í nokkrar stúlkur,“ segir Ragn- heiður og ætlar að bæta aðeins hlut stúlknanna í dag. „Ég ætla að leiða gesti um sýninguna og inn á milli myndanna ætla ég að spinna upp sögur af stúlkum og búa til myndir af þeim í huganum,“ lýsir hún og tekur dæmi: „Ég myndi segja fólki að ímynda sér hana Guðrúnu sem stendur við lækinn með tvær fötur, sína í hvorri hendinni. Hún er ný- búin að brjóta vök í ísinn, hendurnar berar og greinilega vanar kuldanum. Samt er hún brosandi eins og dreng- irnir á hinum myndunum.“ Þannig ætlar Ragnheiður að taka stuttar og litlar myndir af stúlkum við hin ýmsu störf. Við mjaltir, barnapössun og að draga klæðin af körlunum. VINNUR VIÐ AÐ SEGJA SÖGUR Ragnheiður er sérkennari á Akra- nesi og sagnaþula. „Ég leyfi mér að kalla mig sagnaþulu því ég held að ég sé eini kennarinn á landinu sem fær greitt tvo tíma á viku fyrir að segja sögur í öllum bekkjum í grunn- skóla,“ upplýsir hún og tekur fram að slíkt sé algengt víða erlendis. „Skóla stjórinn minn er svo fram- sýnn og keypti það hjá mér að ég fengi að fara í alla bekki. Nú fer ég reglulega í bekki og það eru ekki síður unglingarnir sem sækjast eftir því að ég komi og segi þeim sögur,“ segir Ragnheiður en sögurnar eru af öllum toga. „Þetta eru allt frá þjóðsögum til gamansagna þar sem ég set sjálfa mig inn í einhverjar vandræðalegar aðstæður.“ Ragnheiður hefur haft áhuga á sagnalistinni frá unga aldri. „Ég man eftir mér ungri að segja sögur og hafði alltaf gaman af að hlusta á sögur,“ segir hún. ■ solveig@365.is SPINNUR SÖGUR AF STÚLKUM LJÓSMYNDASÝNING Farandsýningin Þrælkun, þroski, þrá? verður opnuð í Listasetrinu Kirkjuhvoli í dag. Þar gefur að líta ljósmyndir af börnum við vinnu. Sagnaþulan Ragnheiður Þóra Grímsdóttir leiðir gesti um sýninguna og spinnur upp sögur. Í ERFIÐISVINNU Á sýningunni er að finna fjölda mynda af drengjum í erfiðisvinnu á fyrri hluta 20. aldar. MYNDIR/LJÓSMYNDASAFN ÍSLANDS, ÞJÓÐMINJASAFN SAGNAÞULA Ragnheiður Þóra Gríms- dóttir elskar að segja sögur. SÝNING Sýningin Þrælkun, þroski, þrá? verð- ur í Listasetrinu Kirkjuhvoli út febrúar. NORÐURKRILL Fæst flestum apótekum, heilsubúðum og heilsuhillum stórmarkaðanna. P R E N T U N .IS Hressari á morgnana! „Í heilsueflingu minni sem hófst í ágúst 2011 hef ég notað Norðurkrill omega 3 gjafa og ég fann mjög fljótt mikinn mun á mér. Ég hafði lengi átt við skammdegisþunglyndi að stríða, var kraftlaus, síþreyttur og fann til í liðamótum. Eftir að ég byrjaði að taka inn Norðurkrill er miklu auðveldara að vakna á morgnana, liðverkir eru horfnir, lundin er léttari og ég finn gríðarlegan mun á heilsunni. Þetta var eins og punkturinn yfir i-ið og ég ætla klárlega að halda áfram að nota Norðurkrill í minni heilsueflingu. Ég verð 40 ára á árinu og hef sjaldan verið í jafngóðu andlegu og líkamlegu formi.“ Björn Ólason NORÐURKRILL er eitt hreinasta og öflugasta form af OMEGA 3-fitusýrum. Unnið úr botnsjávardýrinu krill sem er veitt við ómengað Suðurskautið. Aðeins þarf 1-2 hylki á dag til að mæta dagsþörfinni og það er ekkert eftirbragð, uppþemba eða magaólga sem oft fylgir inntöku á fiski- og jurtaolíum. Nánari upplýsingar á www.gengurvel.is Alþjóðlegi netöryggisdagurinn 5. febrúar 2013 RÉTTINDI OG ÁBYRGÐ Á NETINU Alþjóðlegi netöryggisdagurinn verður haldinn hátíðlegur í tíunda sinn þann 5. febrúar nk. undir yfirskriftinni „Réttindi og ábyrgð á netinu ”. Í tilefni dagsins stendur SAFT fyrir málþingi í Skriðu, aðalbyggingu Mennta- vísindasviðs Háskóla Íslands v/Stakkahlíð, kl. 13.00-16.00. Ekkert þátttökugjald. Sjá nánar á www.saft.is Save the Children á Íslandi
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.