Fréttablaðið - 02.02.2013, Blaðsíða 50
| ATVINNA |
Hlutverk Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins er að veita íbúum höfuðborgarsvæðisins aðgengi-
lega, samfellda og alhliða heilsugæsluþjónustu. Þjónustan grundvallast á sérþekkingu á sviði
heimilislækninga, hjúkrunar og heilsuverndar og byggir á víðtæku þverfaglegu samstarfi.
Hún samanstendur af fimmtán heilsugæslustöðvum í Reykjavík, Seltjarnarnesi, Mosfellsum-
dæmi, Kópavogi, Garðabæ og Hafnarfirði, Þróunarstofu heilsugæslunnar, Þroska- og hegðunar-
stöð, Göngudeild sóttvarna, Geðheilsu-eftirfylgd/iðjuþjálfun og stjórnsýslu Heilsugæslunnar.
Hjá Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins starfa um 550 manns.
Framkvæmdastjóri Þróunarsviðs Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins
Heilsugæsla höfuðborgarsvæðisins auglýstir laust til umsóknar starf framkvæmdastjóra þróunarsviðs.
Framkvæmdastjóri þróunarsviðs situr í framkvæmdastjórn Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins og er hlutverk hans
að hafa forystu um þróun og nýjungar í starfsemi stofnunarinnar og heilsugæslu almennt. Starfshlutfall er 100% og
er skipað í stöðuna frá 1. mars 2013, til 5 ára.
Helstu viðfangsefni:
• Þróun og nýjungar í heilsugæslu
• Gæða- og öryggismál
• Vísindarannsóknir og samstarf við stofnanir
• Þróun verkferla og klínískra leiðbeininga
• Þróun og innleiðing árangursmælinga og -mats
• Úrvinnsla staðtalna og upplýsinga
• Starfsþjálfun, fræðslumál og kennsla
• Fagleg leiðsögn um ýmis viðfangsefni innan sviðsins
Menntunar- og hæfniskröfur:
• Háskólamenntun á sviði heilbrigðismála. Framhalds-
menntun skilyrði
• Umtalsverð starfsreynsla á sviði heilbrigðisþjónustu og
haldgóð reynsla af þróunarstarfi, breytingastjórnun eða
vísindastarfi
• Þekking, reynsla og hæfni á sviði stjórnunar
• Reynsla af forystu í þróunarverkefnum.
Færni og aðrir eiginleikar:
• Áhugi og hæfni til að leiða þverfaglegan hóp heilbrigðis
starfsmanna
• Framúrskarandi hæfni í mannlegum samskiptum.
• Leiðtogahæfni og metnaður til að ná árangri í starfi
• Frumkvæði og geta til að starfa sjálfstætt
• Góð hæfni til að tjá sig í ræðu og riti
Valnefnd mun fara yfir umsóknir og meta menntun, reynslu og
hæfni umsækjenda.
Nánari upplýsingar um starfið veitir Svanhvít Jakobsdóttir,
forstjóri í síma 585 1300 eða netfangi: svanhvit.jakobsdottir@
heilsugaeslan.is.
Umsóknir sendist til Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins,
Álfabakka 16, 109 Reykjavík, fyrir 11. febrúar 2013. Umsóknum
um starfið þarf að fylgja ítarleg starfsferilskrá og kynningarbréf
þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar og fram kemur
rökstuðningur fyrir hæfni viðkomandi í starfið.
Hægt er að sækja um starfið á vef Heilsugæslu höfuðborgar-
svæðisins, www.heilsugaeslan.is
Heilsugæsla höfuðborgarsvæðisins
www.heilsugaeslan.is
Álfabakka 16
109 Reykjavík
Sumarstörf 2013
Starfsemi Airport Associates tekur til allrar þjónustu við farþega- og
fraktflugvélar svo sem hleðslu flugvéla sem og annarar þjónustu á
flughlaði, farþegainnritunar, hleðslueftirlits og alls þess er lítur að
flugvélaafgreiðslu. Meðal viðskiptavina okkar eru:
British Airways, Cargolux, Delta Airlines, UPS, Air Berlin, Germanwings,
Bluebird Cargo, Fly Niki, First Choice Airways, WOW air, Primera Air,
easyJet, Norwegian, Baseops Europe, Avcon, Transavia, Corendon,
MNG Airlines, Volga Dnepr, Airbridge, ABX air og fleiri félög.
Við leitum að jákvæðum og metnaðarfullum
einstaklingum í fjölbreytt og skemmtileg störf í
alþjóðlegu starfsumhverfi á Keflavíkurflugvelli. Um
er að ræða hluta- og heilsdagsstörf þar sem unnið
er á vöktum. Umsækjendur þurfa í sumum tilfellum
að sækja undirbúningsnámskeið áður en til starfa
kemur.
Mikilvægt er að umsækjendur búi yfir færni í
mannlegum samskiptum, hafi ríka þjónustulund, séu
stundvísir og agaðir í starfi en jafnframt sveigjanlegir.
Reynsla á sviði flugafgreiðslu er kostur.
Sótt er um störfin rafrænt á airportassociates.com.
Umsóknarfrestur er til 11. febrúar 2013.
Eldri umsóknir óskast endurnýjaðar.
Farþega- og farangursþjónusta
Í starfinu felst m.a. innritun, byrðing og ýmis þjónusta
við farþega. Tölvukunnátta, góð tungumálakunnátta og
stúdentspróf eða sambærileg menntun æskileg.
Lágmarksaldur 20 ár.
Flugvélaþrif
Ökuréttindi, enskukunnátta. Lágmarksaldur 18 ár.
Fraktþjónusta
Ökuréttindi, tölvukunnátta,enskukunnátta,
vinnuvélaréttindi æskileg. Lágmarksaldur 19 ár
Hlaðdeild
Ökuréttindi, enskukunnátta, vinnuvélaréttindi æskileg.
Lágmarksaldur 19 ár.
Hleðslueftirlit
Í starfinu felst m.a. gerð hleðsluskráa, þjónusta við
áhafnir og samræming gagna frá öðrum deildum.
Tölvukunnátta, góð enskukunnátta, stúdentspróf
eða sambærileg menntun. Lágmarksaldur 20 ár.
Eftirtalin störf eru í boði:
Starfsfólk í vöruhús
Aðföng óskar eftir starfsmönnum á lyftara, í tiltekt
og afgreiðslu í vöruhúsi. Starfsemi fyrirtækisins felst
í innkaupum, birgðahaldi og dreifingu fyrir matvöru-
verslanir Bónus og Hagkaups.
Leitað er eftir duglegu og áreiðanlegu starfsfólki eldra
en 20 ára í framtíðarstörf hjá fyrirtækinu. Helgarvinna
kemur einnig til greina. Lyftararéttindi kostur.
Hægt er að sækja um störfin á heimasíðu Aðfanga,
www.adfong.is.
Jósep Matthías veitir nánari upplýsingar í s. 693-5636.
Skrifstofa þjónustu og reksturs
Starfsmaður í skjaladeild
Skrifstofa þjónustu og reksturs hjá
Reykjavíkurborg auglýsir eftir starfsmanni í
skjaladeild. Um er að ræða fullt starf.
Helstu verkefni:
• Ýmis sérfræðistörf á sviði skjalastjórnunar ásamt
daglegum störfum skjaladeildar s.s. skráningu og
frágangi gagna. Þátttaka í áætlanagerð, ráðgjöf
og fræðslu.
Hæfniskröfur:
• Háskólamenntun í bókasafns- og upplýsinga
fræðum eða sambærileg menntun
• Starfsreynsla á sviði skjalastjórnunar æskileg
• Frumkvæði og sjálfstæð vinnubrögð
• Hæfni í mannlegum samskiptum
• Ritfærni og nákvæmni í vinnubrögðum
• Góð kunnátta í ensku og einu Norðurlandamáli
• Þekking á GoPro og Fotostation hugbúnaði
er kostur
Launakjör eru samkvæmt kjarasamningi
Reykjavíkurborgar og viðkomandi stéttarfélags.
Umsækjendur eru vinsamlegast beiðnir að sækja um
starfið á heimasíðu Reykjavíkurborgar
www.reykjavik.is/storf.
Umsóknarfrestur er til 15. febrúar nk.
Nánari upplýsingar veitir Halla María Árnadóttir
deildarstjóri skjaladeildar í síma 411 4040/411 1181
- netfang: halla.maria.arnadottir@reykjavik.is.
ÖRYGGISVÖRÐUR
SECURITY GUARD
Sendiráð Bandaríkjanna auglýsir stöðu öryggisvarðar lausa
til umsóknar.
Umsóknarfrestur er til og með 8. febrúar 2013.
Frekari upplýsingar er að finna á heimasíðu sendiráðsins:
http://iceland.usembassy.gov/vacancies.html
The U.S. Embassy in Reykjavik is seeking an individual for
the position of Security Guard. The closing date for this
postion is February 8, 2013. Application forms and further
information can be found on the Embassy’s home page:
http://iceland.usembassy.gov/vacancies.html
Please send your application and resumé to :
reykjavikvacancy@state.gov
2. febrúar 2013 LAUGARDAGUR4