Fréttablaðið - 02.02.2013, Side 50

Fréttablaðið - 02.02.2013, Side 50
| ATVINNA | Hlutverk Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins er að veita íbúum höfuðborgarsvæðisins aðgengi- lega, samfellda og alhliða heilsugæsluþjónustu. Þjónustan grundvallast á sérþekkingu á sviði heimilislækninga, hjúkrunar og heilsuverndar og byggir á víðtæku þverfaglegu samstarfi. Hún samanstendur af fimmtán heilsugæslustöðvum í Reykjavík, Seltjarnarnesi, Mosfellsum- dæmi, Kópavogi, Garðabæ og Hafnarfirði, Þróunarstofu heilsugæslunnar, Þroska- og hegðunar- stöð, Göngudeild sóttvarna, Geðheilsu-eftirfylgd/iðjuþjálfun og stjórnsýslu Heilsugæslunnar. Hjá Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins starfa um 550 manns. Framkvæmdastjóri Þróunarsviðs Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins Heilsugæsla höfuðborgarsvæðisins auglýstir laust til umsóknar starf framkvæmdastjóra þróunarsviðs. Framkvæmdastjóri þróunarsviðs situr í framkvæmdastjórn Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins og er hlutverk hans að hafa forystu um þróun og nýjungar í starfsemi stofnunarinnar og heilsugæslu almennt. Starfshlutfall er 100% og er skipað í stöðuna frá 1. mars 2013, til 5 ára. Helstu viðfangsefni: • Þróun og nýjungar í heilsugæslu • Gæða- og öryggismál • Vísindarannsóknir og samstarf við stofnanir • Þróun verkferla og klínískra leiðbeininga • Þróun og innleiðing árangursmælinga og -mats • Úrvinnsla staðtalna og upplýsinga • Starfsþjálfun, fræðslumál og kennsla • Fagleg leiðsögn um ýmis viðfangsefni innan sviðsins Menntunar- og hæfniskröfur: • Háskólamenntun á sviði heilbrigðismála. Framhalds- menntun skilyrði • Umtalsverð starfsreynsla á sviði heilbrigðisþjónustu og haldgóð reynsla af þróunarstarfi, breytingastjórnun eða vísindastarfi • Þekking, reynsla og hæfni á sviði stjórnunar • Reynsla af forystu í þróunarverkefnum. Færni og aðrir eiginleikar: • Áhugi og hæfni til að leiða þverfaglegan hóp heilbrigðis starfsmanna • Framúrskarandi hæfni í mannlegum samskiptum. • Leiðtogahæfni og metnaður til að ná árangri í starfi • Frumkvæði og geta til að starfa sjálfstætt • Góð hæfni til að tjá sig í ræðu og riti Valnefnd mun fara yfir umsóknir og meta menntun, reynslu og hæfni umsækjenda. Nánari upplýsingar um starfið veitir Svanhvít Jakobsdóttir, forstjóri í síma 585 1300 eða netfangi: svanhvit.jakobsdottir@ heilsugaeslan.is. Umsóknir sendist til Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins, Álfabakka 16, 109 Reykjavík, fyrir 11. febrúar 2013. Umsóknum um starfið þarf að fylgja ítarleg starfsferilskrá og kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar og fram kemur rökstuðningur fyrir hæfni viðkomandi í starfið. Hægt er að sækja um starfið á vef Heilsugæslu höfuðborgar- svæðisins, www.heilsugaeslan.is Heilsugæsla höfuðborgarsvæðisins www.heilsugaeslan.is Álfabakka 16 109 Reykjavík Sumarstörf 2013 Starfsemi Airport Associates tekur til allrar þjónustu við farþega- og fraktflugvélar svo sem hleðslu flugvéla sem og annarar þjónustu á flughlaði, farþegainnritunar, hleðslueftirlits og alls þess er lítur að flugvélaafgreiðslu. Meðal viðskiptavina okkar eru: British Airways, Cargolux, Delta Airlines, UPS, Air Berlin, Germanwings, Bluebird Cargo, Fly Niki, First Choice Airways, WOW air, Primera Air, easyJet, Norwegian, Baseops Europe, Avcon, Transavia, Corendon, MNG Airlines, Volga Dnepr, Airbridge, ABX air og fleiri félög. Við leitum að jákvæðum og metnaðarfullum einstaklingum í fjölbreytt og skemmtileg störf í alþjóðlegu starfsumhverfi á Keflavíkurflugvelli. Um er að ræða hluta- og heilsdagsstörf þar sem unnið er á vöktum. Umsækjendur þurfa í sumum tilfellum að sækja undirbúningsnámskeið áður en til starfa kemur. Mikilvægt er að umsækjendur búi yfir færni í mannlegum samskiptum, hafi ríka þjónustulund, séu stundvísir og agaðir í starfi en jafnframt sveigjanlegir. Reynsla á sviði flugafgreiðslu er kostur. Sótt er um störfin rafrænt á airportassociates.com. Umsóknarfrestur er til 11. febrúar 2013. Eldri umsóknir óskast endurnýjaðar. Farþega- og farangursþjónusta Í starfinu felst m.a. innritun, byrðing og ýmis þjónusta við farþega. Tölvukunnátta, góð tungumálakunnátta og stúdentspróf eða sambærileg menntun æskileg. Lágmarksaldur 20 ár. Flugvélaþrif Ökuréttindi, enskukunnátta. Lágmarksaldur 18 ár. Fraktþjónusta Ökuréttindi, tölvukunnátta,enskukunnátta, vinnuvélaréttindi æskileg. Lágmarksaldur 19 ár Hlaðdeild Ökuréttindi, enskukunnátta, vinnuvélaréttindi æskileg. Lágmarksaldur 19 ár. Hleðslueftirlit Í starfinu felst m.a. gerð hleðsluskráa, þjónusta við áhafnir og samræming gagna frá öðrum deildum. Tölvukunnátta, góð enskukunnátta, stúdentspróf eða sambærileg menntun. Lágmarksaldur 20 ár. Eftirtalin störf eru í boði: Starfsfólk í vöruhús Aðföng óskar eftir starfsmönnum á lyftara, í tiltekt og afgreiðslu í vöruhúsi. Starfsemi fyrirtækisins felst í innkaupum, birgðahaldi og dreifingu fyrir matvöru- verslanir Bónus og Hagkaups. Leitað er eftir duglegu og áreiðanlegu starfsfólki eldra en 20 ára í framtíðarstörf hjá fyrirtækinu. Helgarvinna kemur einnig til greina. Lyftararéttindi kostur. Hægt er að sækja um störfin á heimasíðu Aðfanga, www.adfong.is. Jósep Matthías veitir nánari upplýsingar í s. 693-5636. Skrifstofa þjónustu og reksturs Starfsmaður í skjaladeild Skrifstofa þjónustu og reksturs hjá Reykjavíkurborg auglýsir eftir starfsmanni í skjaladeild. Um er að ræða fullt starf. Helstu verkefni: • Ýmis sérfræðistörf á sviði skjalastjórnunar ásamt daglegum störfum skjaladeildar s.s. skráningu og frágangi gagna. Þátttaka í áætlanagerð, ráðgjöf og fræðslu. Hæfniskröfur: • Háskólamenntun í bókasafns- og upplýsinga fræðum eða sambærileg menntun • Starfsreynsla á sviði skjalastjórnunar æskileg • Frumkvæði og sjálfstæð vinnubrögð • Hæfni í mannlegum samskiptum • Ritfærni og nákvæmni í vinnubrögðum • Góð kunnátta í ensku og einu Norðurlandamáli • Þekking á GoPro og Fotostation hugbúnaði er kostur Launakjör eru samkvæmt kjarasamningi Reykjavíkurborgar og viðkomandi stéttarfélags. Umsækjendur eru vinsamlegast beiðnir að sækja um starfið á heimasíðu Reykjavíkurborgar www.reykjavik.is/storf. Umsóknarfrestur er til 15. febrúar nk. Nánari upplýsingar veitir Halla María Árnadóttir deildarstjóri skjaladeildar í síma 411 4040/411 1181 - netfang: halla.maria.arnadottir@reykjavik.is. ÖRYGGISVÖRÐUR SECURITY GUARD Sendiráð Bandaríkjanna auglýsir stöðu öryggisvarðar lausa til umsóknar. Umsóknarfrestur er til og með 8. febrúar 2013. Frekari upplýsingar er að finna á heimasíðu sendiráðsins: http://iceland.usembassy.gov/vacancies.html The U.S. Embassy in Reykjavik is seeking an individual for the position of Security Guard. The closing date for this postion is February 8, 2013. Application forms and further information can be found on the Embassy’s home page: http://iceland.usembassy.gov/vacancies.html Please send your application and resumé to : reykjavikvacancy@state.gov 2. febrúar 2013 LAUGARDAGUR4
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.