Fréttablaðið - 02.02.2013, Page 47
atvinna Allar atvinnuauglýsingar vikunnar á visir.isSÖLUFULLTRÚAR Viðar Ingi Pétursson vip@365.is 512 5426Hrannar Helgason hrannar@365.is 512 5441
Biskup Íslands óskar að ráða mannauðs- og skrifstofustjóra. Starfið heyrir undir embætti
biskups Íslands. Hjá embættinu starfa 127 prestar um land allt og 30 starfsmenn á Biskupsstofu.
Um fjölbreytt og krefjandi starf er að ræða.
Upplýsingar veita:
Katrín S. Óladóttir
katrin@hagvangur.is
Elísabet Sverrisdóttir
elisabet@havangur.is
Umsóknarfrestur er til og
með 18. febrúar nk.
Umsóknir óskast fylltar út á
www.hagvangur.is.
Æskilegt er að viðkomandi
geti hafið störf 1. maí nk.
SKÓGARHLÍÐ 12 105 REYKJAVÍK SÍMI 520 4700
www.hagvangur.is
Starfs- og ábyrgðarsvið
• Umsjón með starfsmannahaldi
• Daglegur rekstur skrifstofu biskups
• Yfirumsjón með launagreiðslum presta og
annarra starfsmanna
• Skipulagning verkefna í samráði við biskup
• Samskipti við stofnanir og ráðuneyti
• Þátttaka í undirbúningi kirkjuþings í samráði
við kirkjuráð og forseta kirkjuþings
• Seta í nefndum og ráðum eftir nánari
ákvörðun biskups
Menntunar- og hæfniskröfur
• Háskólamenntun á sviði lögfræði, mannauðsstjórnunar eða
sambærileg háskólamenntun
• Reynsla af stjórnun og mannauðsmálum er skilyrði
• Góð þekking og kunnátta í framkvæmd stjórnsýslulaga og
öðrum lögum er varða opinberan rekstur
• Færni í mannlegum samskiptum, skipulagshæfni og
samviskusemi, þjónustuvilji og sveigjanleiki
• Góð og traust framkoma
• Færni til að tjá sig í ræðu og riti
• Þekking og áhugi á starfi og hlutverki kirkjunnar æskilegur
Mannauðs- og skrifstofustjóri biskups Íslands
Þjóðkirkjan vill þróa starfshætti og vinnubrögð á vettvangi safnaða sinna og stofnana sem geri henni kleift að sækja fram
með fagnaðarerindið og smíða brýr milli fólks og menningarheima í fjölþættu samfélagi nútímans. Biskupsstofa vill örva
rannsóknir á kirkju, trú og lífsskoðunum í samtímanum, stöðu og hlutverki kirkjunnar, og stuðla að þróun kirkjustarfs og
þjónustu. Starfsmannastefnu Þjóðkirkjunnar má lesa á kirkjan.is.
Einstaklingar af báðum kynjum eru hvattir til að sækja um starfið. Umsókn um starfið þarf að fylgja kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir ástæðu
umsóknar og rökstuðningur veittur fyrir hæfi viðkomandi í starfið. Starfskjör eru í samræmi við kjarasamninga ríkisins við viðkomandi stéttarfélag.
Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu hefur verið tekin.
Biskupsstofa óskar að ráða verkefnastjóra á fasteignasviði. Starfið felst í yfirumsjón með verklegum
framkvæmdum við fasteignir kirkjumálasjóðs, skipulagsmálum og ráðgjöf. Starfinu fylgja ferðalög
innanlands. Næsti yfirmaður er sviðsstjóri fasteignasviðs.
Upplýsingar veita:
Katrín S. Óladóttir
katrin@hagvangur.is
Elísabet Sverrisdóttir
elisabet@havangur.is
Umsóknarfrestur er til og
með 18. febrúar nk.
Umsóknir óskast fylltar út á
www.hagvangur.is.
Æskilegt er að viðkomandi
geti hafið störf 1. maí nk.
SKÓGARHLÍÐ 12 105 REYKJAVÍK SÍMI 520 4700
www.hagvangur.is
Starfs- og ábyrgðarsvið
• Yfirumsjón með verkefnum er lúta að framkvæmdum
og viðhaldi á fasteignum
• Áætlanagerð og kostnaðareftirlit vegna framkvæmda
og viðhalds
• Upplýsingagjöf, ráðgjöf og samskipti við stjórnvöld,
hönnuði og verktaka
• Innkaup og ráðning iðnaðarmanna/verktaka
• Úttektir á fasteignum við prestaskipti
• Ráðgjöf og leiðbeiningar til sókna og umráðamanna
kirkna um verklegar framkvæmdir
Menntunar- og hæfniskröfur
• Viðeigandi menntun sem nýtist í starfinu s.s.
arkitektúr, verk- eða tæknifræði
• Góð þekking og reynsla í áætlana- og tilboðsgerð
• Reynsla af eftirliti með verklegum framkvæmdum
• Framúrskarandi samskiptafærni
• Sveigjanleiki, staðfesta og mikil þjónustulund
• Áhugi á starfi og hlutverki kirkjunnar æskilegur
Verkefnastjóri
Þjóðkirkjan vill þróa starfshætti og vinnubrögð á vettvangi safnaða sinna og stofnana sem geri henni kleift að sækja fram
með fagnaðarerindið og smíða brýr milli fólks og menningarheima í fjölþættu samfélagi nútímans. Biskupsstofa vill örva
rannsóknir á kirkju, trú og lífsskoðunum í samtímanum, stöðu og hlutverki kirkjunnar, og stuðla að þróun kirkjustarfs og
þjónustu. Starfsmannastefnu Þjóðkirkjunnar má lesa á kirkjan.is.
Einstaklingar af báðum kynjum eru hvattir til að sækja um starfið. Umsókn um starfið þarf að fylgja kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir ástæðu
umsóknar og rökstuðningur veittur fyrir hæfi viðkomandi í starfið. Starfskjör eru í samræmi við kjarasamninga ríkisins við viðkomandi stéttarfélag.
Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu hefur verið tekin.
Öflugt fasteignafélag óskar eftir að ráða aðstoðarmann í fjárfestingateymi félagsins.
Upplýsingar veita:
Sverrir Briem
sverrir@hagvangur.is
Elísabet Sverrisdóttir
elisabet@hagvangur.is
Umsóknarfrestur er til og
með 10. febrúar nk.
Umsóknir óskast fylltar út á
www.hagvangur.is.
SKÓGARHLÍÐ 12 105 REYKJAVÍK SÍMI 520 4700
www.hagvangur.is
Starfssvið
• Þátttaka í gagnaöflun, úrvinnslu, greiningu og mati á
fjárfestingatækifærum í fasteignageiranum
• Vinna með líkön vegna áætlana- og tilboðsgerða
• Þátttaka í gerð kostnaðar- og rekstraráætlana
• Eftirfylgni og umsjón með fjárfestingaverkefnum
Menntunar- og hæfniskröfur
• Meistaragráða í verkfræði, hagfræði eða viðskiptafræði skilyrði
• Mjög góð tölvukunnátta, s.s. í Excel
• Mikið frumkvæði
• Góðir samskiptahæfileikar
• Sjálfstæð og skipulögð vinnubrögð
Spennandi tækifæri fyrir nýútskrifaðan
verkfræðing, viðskiptafræðing eða hagfræðing