Fréttablaðið - 02.02.2013, Side 52
| ATVINNA |
ERT ÞÚ SÖLUMAÐUR AF GUÐS NÁÐ?
FRAMTÍÐARSTARF Í HJARTA MIÐBÆJARINS
Nánari upplýsingar veita Rakel Heiðmarsdóttir, mannauðsstjóri, í netfanginu rakel@bluelagoon.is eða í síma 420 8804
og Ingibjörg Guðjónsdóttir, viðskiptastjóri, í netfanginu ingibjorg@bluelagoon.is. Umsóknarfrestur er til 17. febrúar n.k.
Umsækjendur eru beðnir um að senda umsókn í gegnum heimasíðu Blue Lagoon www.bluelagoon.is/atvinna
Við leitum að orkumiklum og
metnaðarfullum sölumanni til starfa í
verslun Blue Lagoon að Laugavegi 15.
Viðkomandi þarf að hafa brennandi
áhuga á húðvörum, ríka þjónustulund
og reynslu af sölu- og ráðgjafarstörfum.
Nauðsynlegt er að viðkomandi sé
áreiðanlegur, geti starfað sjálfstætt og
búi yfir góðri enskukunnáttu.
Snyrtifræðimenntun er kostur.
Bláa Lónið hefur margsinnis verið
valinn einn besti spa-staðurinn á
heimsvísu og fékk nýverið nafnbótina
sem eitt af 25 undrum veraldar að
mati National Geographic. Bláa Lónið
er tóbakslaus vinnustaður og þar starfa
að jafnaði um 250 starfsmenn.
Sviðsstjóri upplýsingasviðs
Þjóðskjalasafns Íslands
Laust er til umsóknar starf sviðsstjóra upplýsingasviðs
Þjóðskjalasafns Íslands.
Verkefni sviðsins er að þjónusta almenning og fræðimenn,
svara fyrirspurnum um aðgang að gögnum, veita ráð um
fræðilegar rannsóknir, að annast útgáfu leiðbeiningarita og
heimildarita, að fara með kynningarmál og annast miðlun
heimilda um vefinn. Þá ber sviðið ábyrgð á forritun,
kerfisstjórn og rekstri tölvukerfa safnsins. Starfsmenn
sviðsins taka þátt í erlendu samstarfi á sviði miðlunar.
Helstu verkefni og ábyrgð
Starfið felst í að stjórna verkefnum sviðsins, vinna að
stefnumótun, áætlanagerð, skýrslugerð og árangursmati.
Sviðsstjóri hefur yfirumsjón með lestrarsal og tekur þátt í
margvíslegum verkum sviðsins, svo sem ákvörðunum um
aðgang að upplýsingum, að stýra útgáfum og leiðbeina
fræðimönnum. Sviðsstjóri leiðir erlent samstarf á sviðinu og
er í samráðshópi stjórnenda safnsins.
Hæfnikröfur
Leitað er að fjölhæfum og áhugasömum starfsmanni með
lipra framkomu.
Gerð er krafa um BA próf í sagnfræði, auk meistaraprófs
í sagnfræði eða öðrum greinum sem tengjast verkefnum
sviðsins, svo sem stjórnsýslufræðum. Reynsla af útgáfu-
málum, stjórnun og áætlanagerð er nauðsynleg. Þá er krafist
góðrar hæfni til samskipta, sjálfstæði í vinnubrögðum og
góðrar hæfni til þess að setja fram hugmyndir í ræðu og riti.
Góð kunnátta í algengum notendaforritum og meðferð
rafrænna gagna er nauðsynleg. Reynsla af notkun skjala-
safna og lestri eldri skriftar er æskileg. Góð kunnátta í
íslensku, ensku og einu Norðurlandamáli er áskilin.
Frekari upplýsingar um starfið
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi fjármálaráðherra og
viðkomandi stéttarfélags.
Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um
ráðningu hefur verið tekin.
Sótt er um starfið rafrænt á; www.skjalasafn.is undir
„laus störf“. Vottorð um menntun fylgi.
Starfið veitist frá 1. mars nk. eða síðar í samráði við þann
sem ráðinn verður.
Nánari upplýsingar um starfið veitir þjóðskjalavörður
í síma 590 3300.
Starfshlutfall er 100%
Umsóknarfrestur er til og með 11.febrúar 2013.
Nánari upplýsingar veitir
Eiríkur G. Guðmundsson - eirikur@skjalasafn.is - 590 3300
Hlutverk Þjóðskjalasafns Íslands er að
varðveita opinber skjöl, einkum íslenska
ríkisins, og skjöl einkaaðlia til notkunar
fyrir stjórnvöld, stofnanir, félög og einstak-
linga. Þannig tryggir safnið hagsmuni og
réttindi stjórnvalda og borgaranna.
BÍLSTJÓRI
EMBASSY DRIVER
Sendiráð Bandaríkjanna auglýsir stöðu bílstjóra lausa til
umsóknar.
Umsóknarfrestur er til og með 11. febrúar 2013. Frekari
upplýsingar er að finna á heimasíðu sendiráðsins:
http://iceland.usembassy.gov/vacancies.html
The U.S. Embassy in Reykjavik is seeking an individual for
the position of Embassy Driver. The closing date for this
postion is Februar 11, 2013. Application forms and further
information can be found on the Embassy’s home page:
http://iceland.usembassy.gov/vacancies.html
Please send your application and resumé to :
reykjavikvacancy@state.gov
2. febrúar 2013 LAUGARDAGUR6