Fréttablaðið - 02.02.2013, Qupperneq 54
| ATVINNA |
RAFVIRKJAR / RAFVEITUVIRKJAR- NOREGUR
ÍSTAK óskar eftir að ráða til starfa rafvirkja/rafveituvirkja vegna fram-
kvæmda í Noregi. Í starfinu felst meðal annars rekstur á rafveitu við
jarðgangagerð ásamt viðgerðum á tækjum og búnaði. Æskilegt er
að viðkomandi hafi einhverja reynslu af vinnu við háspennu.
ALMENN SKRIFSTOFUSTÖRF
ÍSTAK óskar eftir að ráða starfsmann í almenn skrifstofustörf á aðal-
skrifstofu fyrirtækisins í Mosfellsbæ. Í starfinu felst vinna við bókhald
auk annarra tilfallandi verkefna.
Menntunar- og hæfniskröfur:
Góð kunnátta í minnst einu norðurlandamáli
Reynsla af bókhaldsvinnu
Þekking á Navision æskileg
Almenn tölvufærni
Frumkvæði og sjálfstæði í starfi
Viðkomandi þarf að geta hafið störf fljótlega.
ÍSTAK er leiðandi fyrirtæki á íslenskum
verktakamarkaði. Hjá fyrirtækinu starfa
um 600 manns, víðsvegar um landið
sem og erlendis.
ÍSTAK er alhliða verktakafyrirtæki sem
var stofnað árið 1970 og hefur annast
ýmis verkefni, svo sem virkjanir, stór-
iðjuver, hafnargerð, vega- og brúagerð
auk flugvalla. Ennfremur húsbyggingar
fyrir opinberar stofnanir, sveitarfélög,
fyrirtæki og einstaklinga.
Upplýsingar um störfin eru veittar á skrifstofu ÍSTAKS, Bugðufljóti 19,
270 Mosfellsbæ og í síma 530 2700 milli 8:15 og 17:00. Sækja skal um
störfin á www.istak.is – undir „Starfsumsókn“ fyrir 11. febrúar næstkomandi.
Sölumaður óskast
Ef þú ert jákvæð/ur og finnst gaman að vinna, ert
ávallt stundvís og hefur metnað til að læra, þá gæti
þú verið sú/sá sem við leitum að.
Hæfniskröfur:
- Reynsla af sölustarfi ásamt góðri þekkingu á
byggingamarkaðnum æskileg.
- Hæfni í mannlegum samskiptum skilyrði.
- Skipulögð og sjálfstæð vinnubrögð.
- Góð almenn tölvu og enskukunnátta.
Helstu verkefni:
- Sala og ráðgjöf til viðskiptavina.
- Tilboðsgerð.
- Viðhald viðskiptatengsla og öflun nýrra.
Umsóknir ásamt ferilskrá með mynd sendist á
netfangið: box@frett.is merkt: „Sala 0202“
Seltjarnarnesbær
Deildarstjóri Bókasafns
Seltjarnarness
Bókasafn Seltjarnarness óskar eftir að ráða bókasafns-
fræðing í fullt starf til að bera faglega ábyrgð á og hafa
umsjón með daglegri starfsemi Bókasafns Seltjarnarness.
Í boði er áhugavert starf í lifandi safni sem er í senn
menningar-, mennta- og upplýsingastofnun. Bókasafn
Seltjarnarness heyrir undir menningar- og samskiptasvið
Seltjarnarness. Helstu viðskiptavinir safnsins eru Seltirningar
og íbúar vesturbæjar Reykjavíkur. Miðað er við að viðkomandi
geti hafið störf sem fyrst.
Megin verkefni
• Fagleg ábyrgð og umsjón með daglegri starfsemi
• Almenn bókasafnsstörf
• Umsjón með starfsmannahaldi
• Sérverkefni sem falla undir menningar- og samskiptasvið
• Undirbúningur fjárhagsáætlana og innkaup til safnsins
• Umsjón með heimasíðu og samfélagsmiðlum menningar-
og samskiptasviðs
Menntunar- og hæfniskröfur
• Háskólagráða (BA) á sviði bókasafns- og upplýsingafræða
er nauðsynleg, MA eða MLIS gráða er æskileg
• Staðgóð þekking og reynsla á starfssviði bókasafna
• Þekking á vefumsjón og virkni helstu samfélagsmiðla
• Færni í rituðu máli
• Sjálfstæð og skapandi vinnubrögð
• Lipurð í mannlegum samskiptum
Umsóknir með upplýsingum um menntun, fyrri störf og
meðmælendur skulu sendar til Soffíu Karlsdóttur, sviðsstjóra
menningar- og samskiptasviðs í netfangið
soffia@seltjarnarnes.is, sem einnig veitir nánari upplýsingar
um starfið í síma 595-9100. Einnig er hægt að senda inn
skriflegar umsóknir á Austurströnd 2, 170 Seltjarnarnesi.
Umsóknarfrestur er til 12. febrúar 2013.
Bókasafn Seltjarnarness starfar í samræmi við lög um
almenningsbókasöfn frá 1997 og yfirlýsingu Menningar-
og vísindastofnunar Sameinuðu þjóðanna (Unesco) um
almenningsbókasöfn.
Kvöld- og helgarvinna
10–11 óskar eftir að ráða starfsfólk í kvöld- og helgarvinnu
Menntunar- og hæfniskröfur: Upplýsingar veitir:
Fljótlegt og þægilegt
Er séns
að við séum
að leita að
þér?
2. febrúar 2013 LAUGARDAGUR8