Fréttablaðið - 02.02.2013, Qupperneq 74
2. febrúar 2013 LAUGARDAGUR| HELGIN KRAKKAR | 46
Rapp eru textar sem eru fluttir
með ákveðnum takti undir. Það
er dálítið eins og ljóð. „Það var
nú þannig sem þetta byrjaði hjá
mér. Ég samdi mikið af ljóðum
þegar ég var yngri. Svo þróuð-
ust þau út í rapptexta með
tímanum,“ segir Steinunn. „Ég
á tvo eldri bræður og annan
yngri sem hlustuðu mikið á
rapp þegar ég var yngri, svo
ég ólst eiginlega upp við þessa
tónlist,“ segir Steinunn um
áhugamálið. Hún segist hlusta
á alls kyns rapp, en er hrifnust
af því íslenska. „Mér finnst
auðveldara að læra íslensku
textana,“ útskýrir hún og segir
Rottweiler-hundana vera í miklu
uppáhaldi. „Ég hlusta líka á MC
Gauta og dálítið á Eminem.“
Steinunn kann því fjöldann
allan af íslenskum rapp textum
utan að. En hún flytur ekki
bara texta eftir aðra höfunda
heldur semur líka eigin texta.
Þeir fjalla um ýmislegt sem
brennur henni á hjarta hverju
sinni. „Eina lagið sem er full-
gert er lag sem ég samdi fyrir
Rímnaflæði, það fjallar um
pabba minn.“ Steinunn tók
þátt í Rímnaflæði í fyrra og
var ein af fimm stelpum sem
tóku þátt. „Þrjár stelpur komu
reyndar fram saman í hóp, en
ég var bara ein.“ En er ekkert
stressandi að koma fram ein?
„Það er alveg ótrúlega stress-
andi! Ég gleymdi öllum textan-
um mínum í byrjun en svo gekk
þetta ágætlega hjá mér.“
„Ég fór á rappnámskeið til
Poetrix, sem er íslenskur rapp-
ari, og svo er ég núna í einka-
tímum hjá honum. Hann sá
mér fyrir takti fyrir Rímna-
flæði og hjálpar mér núna
með textagerð.“ Steinunn er
ákveðin í að taka aftur þátt
í Rímnaflæði í ár: „Já, alveg
pottþétt. Í þetta skiptið ætla
ég að vinna.“
Við unga og upprennandi
rappara hefur Steinunn þetta
að segja: „Endilega prófið,
þetta er ótrúlega gaman. Mér
finnst flottast þegar línurnar
ríma og það er gott að æfa sig
í því. Og reynið að forðast að
skrifa um eitthvað fyrirsjáan-
legt, þá verða textarnir leiðin-
legir.“ - hþó
Rappar um það sem
henni liggur á hjarta
Steinunn Ásta Ásgrímsdóttir er fi mmtán ára nemandi í Háteigsskóla.
Hún hefur gaman af ljóðlist og tónlist og hún hefur dálæti á rappi. Hún
keppti í Rímnafl æði í fyrra og stefnir á að taka þátt aft ur í ár.
STEINUNN ÁSTA samdi rapplag um pabba sinn. MYND/HALLA ÞÓRLAUG
Listhlaup á skautum er Ólympíuíþrótt þar sem ein-
staklingar, pör og hópar framkvæma hringsnún-
inga, stökk, spor og aðrar hreyfingar á ís. Keppt
er í listhlaupi í mismunandi getuflokkum, frá
byrjendum upp í það að keppa á Ólympíuleikum.
Keppt er á innanfélagsmótum, landsmótum og
alþjóðlegum mótum.
Saga listhlaups nær aftur til forsögulegs tíma.
Ekki er vitað með vissu hvenær manneskjan lærði
fyrst að skauta á ís en leifar af beinum sem notuð
voru til að fara yfir stórar ísilagðar ár og vötn hafa
fundist víðs vegar um heiminn, til dæmis í Rúss-
landi, Skandinavíu, Bretlandi, Þýskalandi og Sviss.
Brúnir á skautablöðum voru fyrst fundnar upp
af Hollendingum á 13. eða 14. öld. Þau skautablöð
voru gerð úr stáli með beittum brúnum til að ná
betri stjórn á hreyfingum. Skautablöðin hafa lítið
þróast frá þessum tíma, aðeins verið gerðar smá-
vægilegar breytingar á þykkt blaðsins og tönnum
sem eru fremst.
Listhlaup sem listgrein er talið eiga rætur að
rekja til 15. aldar. Til er mynd af sankti Lidwinu
þar sem í bakgrunninum er maður að skauta á
öðrum fæti.
Næsta skref í þróun listhlaupaíþróttarinnar var
árið 1742 þegar fyrsta skautasambandið var stofn-
að í Edinborg. Fyrsta reglubókin var gefin út 1772
en þá var bókin einungis skrifuð fyrir karlmenn og
skautaíþróttin skiptist upp í listhlaup á skautum
og skautahlaup.
Upphafsmaður nútímalisthlaups er Jackson
Haines en hann var bandarískur. Hann sigraði á
fyrsta bandaríska meistaramótinu í Troy í New
York árið 1864. Hann var þekktur fyrir að vera
fyrstur til að sameina ballett- og danshreyfingar
og skautaæfingar. Hann notaði fyrstur „sit spin“
eða sitjandi hringsnúning.
Hvað er listhlaup á skautum?
Nú stendur yfi r í Egilshöll Norðurlandamót í listhlaupi á skautum. Listhlaupið
nýtur vaxandi vinsælda en hvað er listhlaup og hvernig byrjaði það?
ÚTSÖLUMARKAÐUR ÚTSÖLUMARKAÐUR ÚTSÖLUMARKAÐURÚTSÖLUMARKAÐUR ÚTSÖ
LUMARKAÐUR ÚTSÖLU
MARKAÐUR
ÚTSÖLU-
MARKAÐUR
HVERAFOLD 1-3
ÚTSÖLUMARKAÐUR ÚTSÖLUMARKAÐUR ÚTSÖLUMARKAÐUR
BÚSÁHÖLD, FATANAÐUR FYRIR BÖRN OG FULLORÐNA,
LEIKFÖNG OG MARGT MARGT FLEIRA.
OPIÐ ALLA DAGA FRÁ 12:00 -19:00
1. Hver er munurinn á pappírsblaði og fíl?
2. Hvað gerist þegar fíll hoppar út í sundlaug?
3. Hvað á maður að gefa fíl með magapínu?
4. Hvenær hafa fílar 12 fætur?
5. Hvað er stórt og grátt og með gula fætur?
6. Hvað er stórt og grátt og fer upp og niður?
SVÖR
1. Þú getur búið til skutlu úr blaðinu. 2. Hann verður blautur. 3. Nóg af plássi.
4. Þegar þeir eru þrír saman. 5. Fíll sem stendur ofan í hunangskrukku.
6. Fíll í teygjustökki.
Heilabrot
Teikningar og texti: Bragi Halldórsson
29
Lísaloppa og Kata komu að vegg sem þær þurftu að komast
yfir. „Ég er nú ekki að fara að klöngrast yfir þetta hró,“
sagði Kata. „Hann er svo illa byggður þessi veggur að hann
mun örugglega hrynja undan okkur,“ sagði hún. „Mér sýnist
þetta bara vera gamall veggur sem er að hruni kominn
vegna aldurs en kanski var hann prýðilega vel byggður í
upphafi,“ sagði Lísaloppa. „En hér liggja stakir steinar á víð
og dreif og við ættum að geta púslað þeim í gatið svo við
slösum okkur ekki við það að klifra yfir vegginn,“ bætti
hún við. Það hnussaði í Kötu. „Já auðvitað, fara að vinna
vinnuna fyrir einhverja aðra ,“ sagði hún hneyksluð. „En jú,
ef við ætlum yfir vegginn verðum við víst að gera það.“
Getur þú talið hvað Lísaloppu og Kötu vantar marga steina
til að hlaða í gatið á veggnum svo þær komist yfir hann?