Fréttablaðið - 02.02.2013, Page 88
2. febrúar 2013 LAUGARDAGUR| MENNING | 60
Það má
kannski líta á
sýninguna í
heild sem full-
klárað verk en
ef ég færi að
vinna hvert verk
eitthvað áfram
myndi það
sjálfsagt þróast í
einhverjar aðrar
áttir, eins og
gerist alltaf.
MENNING
TÓNLIST ★★★ ★★
Sinfóníuhljómsveit Íslands á
Myrkum músíkdögum
Verk eftir Gunnar Andreas Kristinsson,
Pál Ragnar Pálsson, Davíð Brynjar
Franzson, Gerald Barry og Þorkel Sigur-
björnsson. Einleikari: Una Sveinbjarnar-
dóttir. Stjórnandi: Ilan Volkov.
HARPA, 31. JANÚAR.
Óvanalegt er að verk fyrir sinfóníu-
hljómsveit sé ekki með neinum
fiðlum. Á tónleikum Sinfóníu-
hljómsveitar Íslands á Myrkum
músíkdögum, sem hófust á fimmtu-
daginn, var boðið upp á slíka tón-
smíð. Þetta var On Sense and
Subjectiv ity eftir Davíð Brynjar
Franzson.
Skemmtilegt ójafnvægi var á
hljómsveitinni. Flestir stólarn-
ir vinstra megin voru auðir, en
allir hljóðfæraleikararnir á sínum
stað hinum megin. Tónlistin var
grípandi. Hún líktist helst handa-
hófskenndum umhverfishljóðum
í fjarska. Þau sköpuðu magnaða
stemningu. Sum tónskáld fá nett
mikilmennskubrjálæði þegar þau
skrifa fyrir sinfóníuhljómsveit. Þau
reyna að koma sem mestu að – láta
spilarana vinna fyrir kaupinu sínu!
En ekki Davíð. Tónmálið var hóf-
stillt, en meitlað og hnitmiðað. Alls
konar mergjuð blæbrigði runnu
fallega saman. Útkoman var spenn-
andi og sérkennilega heillandi.
Tvær aðrar tónsmíðar voru frum-
fluttar á tónleikunum. Sú fyrri var
Gangverk englanna eftir Gunn-
ar Andreas Kristinsson. Það var
snyrtileg tónlist. Grunnstefin voru
áleitin og grípandi, úrvinnslan stíl-
hrein og rökrétt. Hugsanlega missti
tónskáldið sig þó örlítið út í vél-
rænar endurtekningar þegar á leið.
Heildaryfirbragðið virkaði helst til
útreiknað, nánast eins og það hefði
verið sett upp í Excel-skjali.
Hitt verkið var fiðlukonsertinn
Nostalgía eftir Pál Ragnar Pálsson.
Hann var allt öðruvísi. Mikið var
um langa, ísmeygilega tóna og dökk-
ar hljómasamsetningar. Þær tóku,
satt best að segja, dálítið á þolin-
mæðina. Framvindan var hæg-
ferðug – á mörkum þess að vera
langdregin. Engu að síður var tón-
listin með sterkan karakter, aug-
ljósa uppbyggingu og sannfærandi
niðurlagi. Það hefði bara mátt stytta
hana aðeins.
Una Sveinbjarnardóttir lék ein-
leik. Hún gerði það af aðdáunar-
verðri fagmennsku, ljóðrænni
innlifun og skáldskap, en einnig
tæknilegum yfirburðum.
Auk íslensku verkanna var flutt
Chevaux-de-frise eftir Gerald
Barry. Það er óskaplega þykkt,
þéttofið og kraftmikið. Hljómsveit-
in var nokkuð ósamtaka á tímabili,
en sótti í sig veðrið og endaði tónlist-
ina glæsilega.
Eins og kunnugt er lést Þor-
kell Sigurbjörnsson tónskáld fyrir
nokkrum dögum. Hans var minnst
með því að Einar Jóhannesson
klarinettu leikari lék verk eftir hann
sem bar heitið Kveðja. Það var ein-
staklega fallegur flutningur, inn-
blásinn og skáldlegur, unaðslega
litríkur og flæðandi. Jónas Sen
NIÐURSTAÐA: Myrkir músíkdagar
fóru vel af stað, sumt var óneitanlega
magnað.
Engar fiðlur, takk
Skissur af verkefnum sem Þóroddur
Bjarnason myndlistarmaður hefur
verið að pæla í síðustu misseri en
aldrei litið dagsins ljós eru uppistaða
sýningarinnar Ógerðu verkin, sem
opnar í Safnaskálanum á Akranesi í
dag. Alls eru 34 teikningar með penna,
blýanti og vatnslit á pappír á sýning-
unni.
„Þetta er hugsað sem innsetning,“
segir Þóroddur, sem er ættaður frá
Akranesi og er að halda sína fyrstu
einkasýningu þar í bæ. „Ég fór að velta
fyrir mér hvernig ég gæti gert eitthvað
sem veitti innsýn í hvernig ég hugsa
sem myndlistarmaður en er um leið
heildstætt verk til samræmis við það
sem ég hef gert áður. Þá duttu mér í
hug þessi ógerðu verk, það er að segja
verk sem byggja á hugmyndum sem
eru tilbúnar en á eftir að hrinda í fram-
kvæmd.“
Sýningar á ókláruðum verkum eru
þekktar en yfirleitt haldnar að lista-
manninum látnum.
„Já, þetta er óvenjulegt að því leyti
að ég er enn ekki kominn undir græna
torfu en þarna fannst mér þetta henta
vel í svona stóru sýningarrými. Á sýn-
ingunni er líka myndband þar sem ég
ræði við Gunnar Hersvein heimspek-
ing og vin minn um hvert verk fyrir
sig og fer yfir hvað ég var að pæla.“
Sýningin vekur spurningar um upp-
haf og endi, til dæmis hvort verk sem
er hálfklárað af hálfu höfundar sé full-
klárað í augum áhorfandans.
„Það má kannski líta á sýninguna í
heild sem fullklárað verk en ef ég færi
að vinna hvert verk eitthvað áfram
myndi það sjálfsagt þróast í einhverjar
aðrar áttir, eins og gerist alltaf. En
þarna er maður kannski búinn að setja
ákveðinn punkt til að staðnæmast við.“
Þóroddur segist vel geta hugsað sér
að ljúka við öll verkin á sýningunni fái
hann tækifæri til þess.
„Ef einhver býður mér að setja þau
upp væri ég reiðubúinn í það. Þetta
eru allt verk sem ég er búinn að hugsa
nógu langt til að geta hrint þeim í
framkvæmd.“
Sýningin Ógerð verk verður opnuð
í Safnaskálanum klukkan 14 í dag og
stendur til 24. febrúar.
bergsteinn@frettabladid.is
Fullmótuð heild
ógerðra verka
Ógerðu verkin nefnist sýning myndlistarmannsins Þórodds Bjarnasonar sem
opnuð verður í Safnaskálanum á Akranesi á morgun. Sýningin er óvenjuleg að
því leyti að hún samanstendur af verkum sem enn hafa ekki verið fullkláruð.
ÞÓRODDUR BJARNASON Á sýningunni Ógerð verk sýnir höfundurinn skissur og drög að verkum sem hann á eftir að hrinda
í framkvæmd. Á sýningunni verður líka myndband þar sem Þóroddur og Gunnar Hersveinn heimspekingur fara yfir hvert verk
fyrir sig og hugmyndina bak við það. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
er stúdíóíbúð/vinnuaðstaða, sem ætluð er til dvalar fyrir listamenn. Stofan
er í eigu Reykjavíkurborgar, mennta- og menningarmálaráðuneytisins og
Seðlabanka Íslands og er staðsett í miðborg Parísar, skammt frá Notre Dame
dómkirkjunni.
Þeir sem í stofunni dvelja greiða dvalargjöld sem ákveðin eru af stjórn Cité
Internationale des Arts er rekur stofuna og miðast við kostnað af rekstri hennar.
Á árinu 2013 verða þau evrur 415 á mánuði fyrir einstakling en 535 evrur á
mánuði fyrir tvo. Úthlutun er lágmark tveir mánuðir í senn en vegna fjölda
umsókna undanfarin ár hefur dvalartími að jafnaði verið 2 mánuðir. Dvalargestir
skuldbinda sig til að hlíta reglum Cité Internationale des Arts varðandi afnot
af húsnæði og vinnuaðstöðu, þ.á m. er ætlast til að þeir nýti stofuna allan út-
hlutunartíma sinn.
Auglýst er eftir umsóknum um afnot Kjarvalsstofu fyrir tímabilið 1.
ágúst 2013 til 31. júlí 2014. Umsóknareyðublöð ásamt reglum um afnot af
Kjarvalsstofu má finna á www.reykjavik.is/menningogferdamal. Umsóknir,
með lýsingu á því verkefni sem umsækjandi hyggst vinna að, skulu stílaðar á
stjórnarnefnd Kjarvalsstofu, Menningar- og ferðamálasviði Reykjavíkurborgar,
Ingólfsnausti, Vesturgötu 1, 101 Reykjavík. Ætlast er til að umsækjendur skili
inn stuttri greinargerð um afrakstur dvalarinnar að dvöl lokinni.
Umsóknarfrestur er til og með 4. mars 2013.
Stjórn Kjarvalsstofu í París
KJARVALSSTOFA Í PARÍS
UNA SVEINBJARNARDÓTTIR.