Fréttablaðið - 02.02.2013, Síða 98
2. febrúar 2013 LAUGARDAGUR| MENNING | 70
Popparinn Robbie Williams ætlar
að syngja í brúðkaupi föður síns,
Pete Conway. Hann gengur að
eiga suður-afríska unnustu sína,
hina 38 ára Melanie Mills, á
næstunni. Hinn 64 ára Conway
bar upp bónorðið í Möltu á síðasta
ári eftir tveggja ára samband.
Williams mun þannig endur-
gjalda föður sínum greiðann því
hann söng í brúðkaupi Williams í
Los Angeles árið 2010 þegar hann
gekk að eiga Aydu Field. Conway
og móðir Williams skildu þegar
popparinn var þriggja ára.
Syngur í
brúðkaupinu
SYNGUR FYRIR PABBA Robbie
Williams ætlar að syngja í brúðkaupi
föður síns. NORDICPHOTOS/GETTY
Í tilefni af útgáfu þriðju plötu Sin Fang, Flowers, var
haldið útgáfuhóf á skemmtistaðnum Harlem. Þar
þeytti Sin Fang sjálfur skífum fyrir gestina og hélt
uppi góðri stemningu. Platan kemur út á vegum
þýska útgáfufélagsins Morr Music. Hún kemur
einnig út sem hjólabretti á vegum bandaríska hjóla-
brettaframleiðandans Alien Workshop.
Héldu upp á útkomu Flowers
SIN FANG Sindri Már Sigfússon, eða Sin
Fang (til hægri), ásamt Matthíasi Árna
Ingimarssyni. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON
HILDUR OG HJÖRDÍS Hildur Hlíf
Hilmarsdóttir og Hjördís Pálsdóttir voru
á meðal gesta.
ANNA OG ARNAR Anna Margrét
Kristjánsdóttir og Arnar Heiðar Sævars-
son hlustuðu á Sin Fang.
Í ÚTGÁFUHÓFI Róbert Róbertsson og
Jón Þorsteinsson mættu í útgáfuhófið.
ÞEYTTI SKÍFUM Sin Fang þeytti skífum og hélt uppi góðri stemningu.
BÍÓ ★★★ ★★
Lincoln
Leikstjóri: Steven Spielberg.
Leikarar: Daniel Day-Lewis,
Tommy Lee Jones, Sally Field,
David Strathairn, Joseph Gordon-
Levitt, James Spader, Hal
Holbrook.
Það er langt síðan leikstjórinn
Steven Spielberg gerði kvikmynd
sem jafnast á við hans bestu frá
því í gamla daga. Aðdáendur hans
eru enn ekki búnir að fyrirgefa
honum hina hallærislegu War
Horse sem kom út fyrir rúmu ári
og efasemdir létu á sér kræla um
að hann ætti eitthvað inni sem
kvikmyndagerðarmaður. En nú
setur hann sig í stellingar og færir
okkur 150 mínútna langa mynd um
einn virtasta og dáðasta Banda-
ríkjaforsetann, Abraham Lincoln.
Sagan hefst nokkrum mánuðum
fyrir dauða forsetans og segir frá
baráttu hans fyrir afnámi þræla-
halds í landinu. Andstaðan var
mikil og þótti mörgum forsetinn
ganga helst til langt í tilraunum
sínum til að binda enda á borgara-
styrjöldina sem þá geisaði. Ef til
vill er erfitt fyrir Íslending norður
í ballarhafi að tengja við aðdáun
Bandaríkjamanna á þessum löngu
látna pólitíkus en myndin er góð
kennslustund og aldrei leiðinleg.
Spielberg veit vel að herðar
Daniel Day-Lewis eru nógu breiðar
til að láta mynd af þessari stærðar-
gráðu hvíla á, enda er hann algjör-
lega frábær í hlutverki sínu. Lítið
fer fyrir Sally Field þrátt fyrir til-
nefningu til Óskarsverðlauna fyrir
hlutverk forsetafrúarinnar, Mary
Todd Lincoln. Tommy Lee Jones
stelur hins vegar senunni sem
repúblikanaleiðtoginn skrautlegi
Thaddeus Stevens og á skemmti-
legustu atriði myndarinnar.
Myndatakan er glæsileg, sviðs-
mynd og búningar eins og best
verður á kosið og að sjálfsögðu er
John gamli Williams til staðar með
tónsprotann sinn. Allt er þetta gott
og blessað og það er himinn og haf
á milli Lincoln og War Horse hvað
gæði varðar. Þrátt fyrir þetta er
eins og leikstjórann vanti einhvern
listrænan neista. Hann er afar fær
handverksmaður, það vantar ekki,
en leikstjórans sem gerði Raiders
of the Lost Ark, Schindler‘s List og
Jaws er enn sárt saknað.
Haukur Viðar Alfreðsson
NIÐURSTAÐA: Spielberg fyrirgefst
hestamyndin en hann getur gert
betur en þetta.
Handverksmaðurinn
LINCOLN Daniel Day-Lewis þykir standa sig frábærlega.
FJÓRIR
NORSKIR
UNGLIÐAR
Í SKUGGA
ÚTEYJAR
BÍÓ:DOX
NÝ NORSK
HEIMILDA-
MYND EFTIR
KARI ANNE MOE
LAUGARDAG 2. OG SUNNUDAG 3. FEBRÚAR KL. 20
Heimildamyndin Til ungdommen er svipmynd af kynslóð sem mörkuð er fyrir lífstíð
af atburðunum í Útey 22. júlí 2011. Þessi einstaka kvikmynd fylgir fjórum norskum ung-
mennum yfir tveggja ára tímabil, 2009-2011. Öll vilja berjast fyrir bættu samfélagi og
hafa ákveðið að taka þátt í pólitískri baráttu. Öll vilja breyta heiminum – en heimurinn
breytir þeim.
ALLIR VELKOMNIR | ENSKUR TEXTI | MIÐAVERÐ 1300 KR.
Í S A M V I N N U V I Ð Á Í S L A N D I