Fréttablaðið - 02.02.2013, Side 104
Það er einelti víða
í þjóðfélaginu og líka í
fótboltanum.
Þórir Hákonarson,
framkvæmdastjóri KSÍ
FÓTBOLTI Forráðamenn enska úrvalsdeildarfélagsins
Reading reyndu ítrekað að kaupa landsliðsmanninn
Gylfa Þór Sigurðsson til félagsins frá Tottenham. Brian
McDermott, stjóri liðsins, staðfesti að félagið hefði
gert þrjú tilboð, sem öllum hefði verið hafnað.
Staðarblöð í Reading greindu frá því að til-
boðið hefði hljómað upp á rúmar tíu milljónir
punda. Samkvæmt heimildum Fréttablaðsins
var lokatilboð Reading tólf milljónir punda,
rétt tæplega 2,4 milljarðar ísl. kr.
Tottenham keypti Gylfa í sumar á 7,5
milljónir punda samkvæmt upplýsingum
Fréttablaðsins, eða 1,5 milljarða króna.
Samkvæmt þessu hefði Tottenham því getað
hagnast um 900 milljónir króna á Gylfa á
aðeins hálfu ári.
Eigandi Reading er Anton Zingarevich, sem frestaði
för sinni frá Englandi í gær til að reyna að ganga frá
kaupunum. „Hann reyndi allt sem hann gat. Við vorum
öll spennt fyrir þeim möguleika að fá Gylfa aftur en
hann er leikmaður Tottenham í dag og góður leik-
maður þar að auki,“ sagði McDermott.
Gylfi kom til Reading á sextánda aldursári árið
2005 og var hjá félaginu í fimm ár. Þaðan fór
hann til Hoffenheim í Þýskalandi en var svo
seldur til Tottenham í sumar, eftir að hafa slegið
í gegn sem lánsmaður hjá Swansea á seinni
hluta síðasta tímabils.
Gylfi hefur fengið fá tækifæri í byrjunarliði
Tottenham til þessa en greinilegt er að forráða-
menn liðsins hafa mikla trú á honum og telja
að hann verði því mikilvægur á næstu árum.
Tottenham hafnaði 2,4 milljarða króna boði í Gylfa Þór
LAUGARDAGUR
12.45 QPR - Norwich Sport 2 HD
15.00 Newcastle - Chelsea Sport 2 HD
15.00 Arsenal - Stoke Sport 3
15.00 West Ham - Swansea Sport 4
15.00 Everton - Aston Villa Sport 5
15.00 Wigan - Southampton Sport 6
17.30 Fulham - Man. Utd Sport 2 HD
21.00 Granada - Real Madrid Sport HD
SUNNUDAGUR
13.30 WBA - Tottenham Sport 2 HD
16.00 Man. City - Liverpool Sport 2 HD
18.00 Valencia - Barcelona Sport HD
SPORT 2. febrúar 2013 LAUGARDAGUR
NFL Super Bowl í ár hefur fengið
gælunafnið Harbaugh Bowl og ekki
að ástæðulausu. Fyrstu bræðurnir
til að þjálfa á sama tíma í ameríska
fótboltanum mætast þá með lið sín
í úrslitaleik ameríska fót boltans,
sem fer fram í New Orleans á
sunnudaginn.
John Harbaugh er fimmtán mán-
uðum eldri en Jim og hefur verið
þjálfari NFL-deildinni þremur
árum lengur. John náði þó aldrei
að spila í deildinni en Jim var leik-
maður í fjórtán tímabil frá 1987 til
2000. Þeir voru herbergisfélagar í
átján ár og fengu báðir góða innsýn
í starf þjálfarans því faðir þeirra,
Jack, þjálfaði í 41 ár í háskóla-
fótboltanum.
„Þegar við vorum yngri mættum
við hvor öðrum í bakgarðinum
í ímynduðum Super Bowl-leik
en við vorum þá að spila en ekki
að þjálfa. Við héldum alltaf að
við myndum ná að spila í Super
Bowl. Jim komst aðeins nær því
en ég en það tókst hjá hvorugum.
Menn segja „ef þú nærð því ekki
sem leikmaður, gerðu það þá sem
þjálfari“ og þetta er okkar tæki-
færi,“ sagði John Harbaugh, sem
hefur farið með Baltimore Ravens
í úrslita keppnina öll fimm ár sín í
deildinni.
Jim Harbaugh hefur líka gert
frábæra hluti síðan hann tók við
liði San Francisco 49ers árið 2011
og hann tók eina stærstu ákvörðun
síðari tíma þegar hann skipti um
leikstjórnanda á miðju tímabili.
Alex Smith var búinn að skila flott-
um tölum en liðið hefur blómstrað
síðan hinn litríki Colin Kaepern-
ick fór að stýra sóknarleik liðs-
ins, enda óútreiknanlegur og jafn
hættu legur á hlaupum og í köstum.
Maður dagsins og maður úrslita-
keppninnar hefur þó verið Ray
Lewis, varnarmaður Baltimore
Ravens. Hann meiddist illa á tíma-
bilinu, tókst að ná sér góðum fyrir
úrslitakeppnina og hefur síðan
farið á kostum í ævintýri Ravens-
liðsins vitandi það að þetta séu
síðustu leikir hans á ferlinum. Það
verður eflaust mikið um dramatík
og dansa hjá Lewis á sunnu daginn.
Hann mun þá kveðja NFL eftir
17 frábær ár en aðeins á eftir að
koma í ljóst hvort hið mikla ævin-
týri Ravens-liðsins fær full kominn
endi. Leikurinn hefst eitt eftir mið-
nætti á morgun og er í beinni á
ESPN America á fjölvarpinu. - óój
Voru herbergisfélagar í átján ár
John og Jim Harbaugh mætast með lið sín, Ravens og 49ers, í Super Bowl í New Orleans-borg á morgun.
MIKIL ATHYGLI John og Jim Harbaugh hafa verið í ótal viðtölum síðustu vikur.
MYND/AP
FÓTBOLTI Manchester City
tekur á móti Liverpool í stórleik
helgarinnar í enska boltanum en
þar geta Liverpool-menn hjálpað
erkifjendum sínum í Manchester
United. United heimsækir
Fulham í kvöld og nær tíu stiga
forskoti á City með sigri.
Gylfi Þór Sigurðsson og félagar
í Tottenheim heimsækja WBA
í fyrri leik morgundagsins, en
margir muna eftir frábærum
leik Gylfa á The Hawthorns í
fyrra þar sem hann skoraði fyrra
markið og lagði síðan upp sigur-
markið í 2-1 sigri Swansea City.
- óój
Fær Utd hjálp
frá Liverpool?
ENGINN KOMPANY Luis Suarez þarf
ekki að hafa áhyggjur af fyrirliða City,
sem er meiddur. NORDICPHOTOS/GETTY
ÍÞRÓTTIR Virkja á alla knattspyrnu-
hreyfinguna til að fá sem flestar
hendur til að taka þátt í baráttunni
gegn einelti hér á landi. Þetta segir
Þórir Hákonarson, framkvæmda-
stjóri KSÍ, en í gær var skrifað
undir samstarfsyfirlýsingu sam-
bandsins og fjögurra ráðuneyta
um aðgerðir í baráttunni gegn ein-
elti í íslensku samfélagi.
Á næstu tveimur árum er áætlað
að nýta landsliðsfólk á öllum aldri
til að fara inn í alla skóla lands-
ins til að vekja athygli á málstaðn-
um. KSÍ mun einnig vekja athygli
á baráttunni á landsleikjum, auk
þess að fara fram á það við knatt-
spyrnufélögin að gera slíkt hið
sama á sínum leikjum í sumar.
Samstarfið má rekja ti l
Facebook-færslu stúlku á Egils-
stöðum sem baðst vægðar undan
einelti sem hún hafði mátt þola.
Leikmenn A-landsliðs kvenna tóku
kyndilinn á lofti og sendu frá sér
tónlistarmyndband með yfirskrift-
inni Fögnum fjölbreytileikanum.
Landsliðskonurnar fengu svo
viðurkenningu frá menntamála-
ráðherra vegna þessa á árlegum
baráttudegi gegn einelti hinn 8.
nóvember síðastliðinn.
Eigum flottar fyrirmyndir
Katrín Jakobsdóttir menntamála-
ráðherra skrifaði undir yfirlýs-
inguna fyrir hönd ráðuneytanna
fjögurra sem standa að verkefninu
„Í þínum sporum“ sem nú fer í
samstarf með KSÍ.
„Við höfum nú unnið í þessari
baráttu gegn einelti markvisst
innan stjórnsýslunnar og það
er frábært að fá stóra íþrótta-
hreyfingu eins og KSÍ til að taka
slaginn með okkur,“ sagði Katrín
við Fréttablaðið í gær. „Við eigum
margar flottar fyrirmyndir í
knattspyrnunni, bæði fyrir stráka
og stelpur, en það skiptir miklu
máli hvaðan boðskapurinn kemur.“
Viljum virkja alla hreyfinguna
Þórir segir að aðkoma KSÍ að verk-
efninu muni standa yfir í tvö ár.
Á þeim tíma muni landsliðsfólk á
öllum aldri heimsækja alla grunn-
skóla landsins.
„Markmiðið með heimsókn-
unum er að koma inn í skólana
með fræðsluefni um einelti og
hvaða áhrif það hefur. Þar að auki
munum við nota viðburði á vegum
KSÍ, til að mynda landsleiki, til
að vekja athygli á málstaðnum,“
segir Þórir. „Við lítum á þetta sem
tækifæri til að virkja knattspyrnu-
hreyfinguna í heild til að vekja
athygli á baráttunni gegn einelti.“
Þórir segir að knattspyrnusam-
bandið geri sér grein fyrir að ein-
elti eigi sér ekki aðeins stað innan
veggja skólanna.
„Það er einelti víða í þjóðfélag-
inu og líka í fótboltanum, enda er
það stór hreyfing með tug þúsundir
iðkenda. Markmið okkar er að
koma fræðslunni einnig inn í knatt-
spyrnufélögin og til þjálfaranna –
því það er ekki sama hvernig tekið
er á svona málum. Þá njótum við
þeirra þekkingar sem er til staðar
hjá ráðuneytunum og getum notað
það til að uppræta einelti innan
knattspyrnunnar. Það er okkar vilji
að fá alla okkar iðkendur til að taka
höndum saman og standa saman í
baráttunni.“ eirikur@frettabladid.is
Skorin upp herör gegn einelti
Myndband sem leikmenn A-landsliðs kvenna í knattspyrnu sendu frá sér í haust varð kveikjan að samstarfi
KSÍ við yfi rvöld um þátttöku knattspyrnuhreyfi ngarinnar í baráttunni gegn einelti í íslensku samfélagi.
SKAUTAR Norðurlandamótið í list-
hlaupi á skautum hófst í Egils-
höll á fimmtudag og lýkur nú um
helgina. Margir sterkir keppend-
ur eru skráðir til leiks, Ólympíu-
farar og fjölmargir sem tekið
hafa þátt í heims- og Evrópu-
meistaramótum. Ísland á níu
keppendur á mótinu – allt konur.
Aðgangur er ókeypis en upp-
lýsingar um dagskrá má finna á
skautasamband.is. - esá
Sterkt mót í
Egilshöll
Í FREMSTA FLOKKI Um helgina fer
sterkt mót í listhlaupi á skautum fram í
Egilshöll. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON
GULA ARMBANDIÐ Þórir Hákonarson, framkvæmdastjóri KSÍ, Katrín Jakobsdóttir menntamálaráðherra og Geir Þorsteinsson,
formaður KSÍ, eftir undirritunina í gær. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
Fyrsti leikur N1-deildar karla í handbolta eftir HM-
hléið fer fram í Austurbergi klukkan 16.00 í dag
þegar ÍR tekur á móti Val. Umferðin klárast síðan
með þremur leikjum á mánudagskvöldið.
Valsmenn sitja í botnsæti deildarinnar eftir að hafa
náð aðeins í eitt stig í síðustu fimm leikjum ársins
2012 en ÍR-ingar gáfu líka aðeins eftir í síðustu leikjum
fyrir jól.
Valsmenn hafa safnað liði í fríinu. Liðið fékk línu-
manninn Orra Frey Gíslason heim frá Viborg í Dan-
mörku og skyttuna Nikola Dokic frá Crvena Zvezda. Þá
hefur Hjalti Þór Pálmason einnig skipt úr FH yfir í Val.
Nú er að sjá hvort nýju mennirnir á Hlíðarenda nái að
rífa Valsliðið upp úr fallsætinu.
Hverju breyta nýju
mennirnir hjá Val?