Fjarðarpósturinn


Fjarðarpósturinn - 27.02.1986, Page 3

Fjarðarpósturinn - 27.02.1986, Page 3
FJARÐARPÓSTURINN 3 Orð í tíma töluð Fimmtudaginn 20. feb. s.l. efndi aðalstjórn knattspyrnufélagsins Hauka til fundar í félagsheimili félagsins við Flatahraun. Tilefni fundarins var hin tíðu rúðubrot og innbrot í félagsheimilið. Nú síðast, eða helgina 14. - 16. feb. voru brotnar 20 rúður í nýbyggingu Haukahússins. Ýmsir voru kvaddir til fundarins s.s. æskulýðs- og tóm- stundafulltrúi, umboðsmaður Almennra trygginga, fulltrúar lög- reglu, félagsmálaráðs og Hafnar- fjarðarbæjar. girða þyrfti allar byggingar í bænum og setja þar upp vaktmenn. Betri kostur væri fyrirbyggjandi starf þar sem virkja mætti alla bæjarbúa til samstarfs um að bera virðingu fyrir eigum annarra. Byrja þyrfti í skólunum að innprenta börnum réttar umgengnisvenjur. Þar yrðu heimilin einnig að koma inn í myndina og fannst fundar- mönnum undarlegt að ekki væri hægt með sameiginlegu átaki að virkja bæjarbúa til bættrar um- gengni. Þorleifur Guðmundsson og ísleifur Bergsteinsson kanna verksum- merki í Haukahúsinu. ísleifur Bergsteinsson, formaður aðalstjórnar Hauka lagði fram til- lögur til umbóta. Helstu atriði þessara tillagna voru að loka þyrfti fyrir gangandi umferð milli Hauka- húss og leikskóla, aukin yrði lýsing og gengið frá jarðvegi með uppfyll- ingu og/eða malbikun. Flýtt yrði uppsetningu girðingar umhverfis svæðið, löggæsla efld og jafnframt eftirlit á svæðinu. Að lokum að tekin yrði upp fræðsla í grunnskól- um og framhaldsskólum bæjarins um almennar umgengnisvenjur og þrifnað. Allmiklar umræður urðu um þessar tillögur og voru allir á sama máli um að eitthvað yrði að gera til að hægt væri að koma í veg fyrir slík skemmdarverk. Ýmsum fannst álitamál hvort loka ætti gönguleiðinni og hvort framtíðin yrði kannski sú að víg- Fram kom að innbrots og rúðu- tjón í Haukahúsi námu u.þ.b. 200 þús. kr. árið 1985 og það sem af er 1986 stefnir í 150 þús. kr. tjón. Fræðslustjóri upplýsti fundar- menn um að glertjón í skólum bæjarins árið 1985 hefði numið 350 þús. krónum. Jafnframt sagði hann frá athyglisverðri tilraun sem gerð hafði verið í skólum í ákveðnu héraði í Skotlandi. Þar hafði keyrt um þverbak hvað skemmdarverk snerti, ekki ólíkt því sem hér er að gerast. í byrjun hvers skólaárs var lagt sérstakt gjald á hvern einstakan nemanda sem lagt var í sjóð. Sjóð þennan átti síðan að nota til að greiða það tjón sem unnið yrði á eigum skólans. Allt sem afgangs yrði átti síðan að nota í þágu nem- enda til ferðalaga eða einhvers annars. Þetta virðist hafa áhrif því stórlega dró úr skemmdarverkum. Væri ekki tilvalið að taka svona upp hér í skólunum og hjá íþrótta- félögunum? Rætt var um útivistarreglur barna og unglinga og var það álit fundarmanna að gera þyrfti stór- átak af hálfu lögreglu við að fram- fylgja þessum reglum betur en gert hefði verið. Kenna þyrfti börnum og unglingum að virða lög og reglur sem settar væru því ef þeim væri ekki innprentað slíkt í æsku bæru þau enga virðingu fyrir þeim þegar þau væru orðin fullorðin. Skoðuð voru verksummerki og var sorglegt að sjá gapandi glugga- umgerðir og mölbrotnar rúður og óskiljanlegt er hvað liggur að baki slíks verknaðar. Kæli- og frystitæki Önnumst allar viðgeröir á ísskápum og frystikistum auk sérsmíði við yðar hæfi Fljót og góð þjónusta REYNIÐ VIÐSKIPTIN Reykjavíkurvegi 25 • Hafnarfirði Sími 50473 Bæjarbúar! Sameinumst um að brýna fyrir börnum okkar að svona á ekki að ganga um. Steinar eru ætlaðir til annars en að grýta þeim í rúður. Undarlegt yfirbragð yrði á bænum okkar ef fjarlægja þyrfti allt grjót og augað sæi ekki annað en malbik í stað eðlilegs umhverfis af nátt- úrunnar hendi. Vonandi verður þessi fundur upphafið á áfram- haldandi umræðu og aðgerðum til að koma í veg fyrir skemmdarverk. Innrömmun & Málverkasala Dalshrauni 1 220 Hafnarfiröi Opnunartími frá kl. 14.00 ■ 17.30 Gott úrval af listum og álrömmum. Fagmaður aðstoðar OKKAR SÉRGREIN Uppbygging og viðhald á gömlum timburhúsum utanhúss og innan. Ennfremur öll nýsmíði. Unnið samkvæmt föstu verðtilboði eða tímataxta. SKRIFSTOFA: 45451 VERKSTÆÐI: 687630 KVÖLDSÍMI: 651467 AÐSETUR: SÚÐARVOGI 28-30 _ BJARNI BÖÐVARSSON , # Q Q) tréSmíðameÍStC,rÍ <P ^ <í VÖRUAFCREIÐSLA HAFNARFJARÐARHÖFN Símar: 51710 - 52166 ■ 52876 Flutningur er okkar fag. EIMSKIP SÍMI 27100 • AÐALSKRIFSTOFA

x

Fjarðarpósturinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fjarðarpósturinn
https://timarit.is/publication/945

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.