Fjarðarpósturinn


Fjarðarpósturinn - 27.02.1986, Blaðsíða 4

Fjarðarpósturinn - 27.02.1986, Blaðsíða 4
4 FJARÐARPÓSTURINN — SPJALLIÐ — Spjaliað við Helga Ragnarsson Fyrir skömmu var hér á ferð- inni þjálfari norsku bikarmeist- aranna í handknattleik, en það er Hafnfirðingurinn Helgi Ragnarsson. Helgi var hér í boði norska landsliðsins, en nokkrir burðarásar þess eru úr liði Helga, STAVAMGER. Helgi brást vel við beiðni Fjarðarpóstsins um stutt spjall, en áður en það hefst er rétt að drepa lítillega á íþróttaferil Helga. Helgi Ragnarsson lék knatt- spyrnu og handknattleik með FH frá barnsaldri og fram yfir þrítugt, m.a. 300 leiki með meistaraflokki í knattspyrnu. Jafnframt stundaði hann þjálfun fyrir félagið í báðum þessum greinum. M.a. þjálfaði Helgi FH- stúlkurnar, sem á sínum tíma urðu íslandsmeistarar í knatt- spyrnu 3 ár í röð. Gtan Hafnar- fjarðar hefur hann m.a. þjálfað á Neskaupstað, í Keflavík og á Akureyri, en undir hans stjórn varð KA 2. deildarmeistari í handknattleik sl. vor. Pá þjálf- aði Helgi handknattleikslið frá Klakksvík í Færeyjum tvo vetur og stjórnaði þá einnig færeyska landsliðinu á Norðurlandamóti í handknattleik. Sl. sumar réðist Helgi svo til norska handknattleiksfélagsins Stavanger og undir hans stjórn hefur liðið verið einkar sigur- sælt í vetur, vann norsku bikar- keppnina og nú stendur það best að vígi í baráttunni um Noregsmeistaratitilinn. Að gera trimmara að keppnismönnum — En snúum okkur þá að fyrstu spurningunni: Hverju þakkar þú góðan árangur lærisveina þinna í Stavanger? Fyrst og fremst því að við æfum mikið. Sennilega meira en önnur handboltalið í Noregi. Þá legg ég líka áherslu á að fá menn til að taka á við æfingarnar. Það kemur Islendingum e.t.v. spánskt fyrir sjónir, en Norð- menn eru gjarnir á að vilja hlífa sér. Þeir eru meiri kveifar en íslenskir íþróttamenn, sem oft- ast keyra sig út í æfingum og keppni. Ef til vill á þetta skýringu í því að Norðmenn eru í eðli sínu miklir trimmarar, þannig að segja má að mitt höfuðverkefni hafi verið að gera trimmara að keppnismönnum. Þá má heldur ekki gleyma því að ég kom ekki einsamall til liðs við þetta norska lið. Með mér fóru til Stavanger handknatt- leiksmennirnir Jakob Jónsson frá Akureyri og FH-ingurinn Sveinn Bragason. Báðir skipa þeir stór hlutverk í liðinu. Fyrsti titillinn í 80 ára sögu félagsins — Hver hafa viðbrögð áhangenda liðsins verið? Þau hafa verið stórkostleg. Áhorfendafjöldinn hefur aukist mikið og er nú að meðaltali um 3000 manns á leik. Sigurinn í bikarkeppninni hefur virkað sem vítamínsprauta á íþrótta- áhugann í félaginu, sem þarna vann sinn fyrsta titil í 80 ára sögu þess. — Hvaða eiginleika þarf góður þjálfari að hafa? Mér hefur reynst vel að ein- beita mér að sérhverjum leik- manni, finna honum sérstakt hlutverk, virkja hæfileika hans og fá hann til að leggja allt sitt af mörkum fyrir liðsheildina. Þessu er erfitt að lýsa með orðum, en mér er kappsmál að leita uppi það jákvæða í fari leikmanna, efla leikgleði þeirra og tilfinn- ingu fyrir leikinn. Þjálfari verður að vera hæfi- lega strangur og gera miklar kröfur til sinna manna, en mark- miðinu verður hann að ná án þess að fá leikmenn upp á móti sér. Þessar aðferðir hafa reynst mér vel, en það er annarra að dæma um hvort ég telst vera góður þjálfari. Styrkur hvers liðs að hafa húmorinn í góðu lagi — Nú ert þú þekktur sem ákaflega hress og félagslyndur maður. Sífellt með skemmti- sögur á vörunum og hvers kyns uppátæki á prjónunum. Hvernig samræmist það hinum stranga aga sem þjálfari þarf að halda uppi? Þjálfunin er eitt og frítíminn er annað. I æfingum og keppni ræður alvaran ríkjum, en þar fyrir utan er hópurinn oft saman og þá slæ ég oft á léttari strengi. Ég tel það styrk hvers liðs að hafa ,,húmorinn“ í góðu lagi. Völlurinn ónýtur? — Úr því að við erum farnir að ræða um létta strengi væri ekki úr vegi að fá Helga til að segja eina gamansögu úr íþróttalífinu. Það er af mörgu að taka og ekki víst að allt sé birtingarhæft. Ég læt samt flakka eins sögu sem gerðist fyrir nokkrum árum, þegar við FH-ingar vorum í keppnisferð austur á landi. Við áttum að spila á Eskifirði og í flugstöðinni á Egilsstöðum þurftum við að bíða eftir bíl sem átti að flytja okkur á leikstað. Þetta var nokkuð löng bið og ég ákvað að bregða aðeins á leik. Ég fór í almenningssíma þarna á flugstöðinni og hringdi í af- greiðsluna. Ég bað um að þjálf- arinn okkar yrði kallaður upp tafarlaust. Þegar hann kom í símann kynnti ég mig sem for- svarsmann Eskifjarðarfélagsins og tilkynnti honum umbúðalaust að ekkert gæti orðið af leiknum. Einhverjir prakkarar hefðu spænt upp völlinn á torfærujepp- um og eyðilagt hann. Þjálfarinn varð miður sín við þessa frétt og ekki batnaði það þegar ég lagði til að leikurinn yrði fluttur til Neskaupstaðar. Hann bað mig þá að bíða meðan hann ræddi þetta við leikmenn. Ég beið auðvitað ekki, heldur hélt til fundarins sem var kall- aður saman í flýti. Þar lagði ég ýmislegt til málanna í þessari alvarlegu uppákomu. Það var ekki fyrr en hann var á leið í sím- ann aftur, að ég gaf mig fram og sannleikurinn kom í Ijós. Sem betur fer fyrir mig, brást þessi ágæti maður ekki illa við.heldur hafði gaman af og fyrirgaf mér hrekkinn. Þegar ég geri mönnum svona grikki, verð ég auðvitað að vera viss um að þeir fyrtist ekki við, heldur taki þeim sem gríni. — Þú hlýtur að búa yfir leik- hæfileikum til að geta blekkt svona nána vin og kunningja! Ef það eru leikhæfileikar þá eru þeir úr móðurættinni. Ég er

x

Fjarðarpósturinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fjarðarpósturinn
https://timarit.is/publication/945

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.