Fjarðarpósturinn


Fjarðarpósturinn - 27.02.1986, Qupperneq 11

Fjarðarpósturinn - 27.02.1986, Qupperneq 11
FJARÐARPÓSTURINN 11 Helgi ívarsson hlaut heiðurslaun Brunabótafélags íslands Þær ánægjulegu fréttir bárust bæjarbúum til eyrna á dögunum að Helgi ívarsson, slökkviliðsstjóri, hefði hlotið heiðurslaun Bruna- bótafélags íslands að þessu sinni. Styrkur þessi hefur verið veittur í 5 ár eða frá því að heiðurslauna- sjóðurinn var stofnaður á 65 ára afmæli Brunabótar 1982. Hann samsvarar einu stöðugildi á aðal- skrifstofu Brunabótar í Reykjavík. Stjórn Brunabótafélagsins velur úr umsóknum sem þurfa að hafa borist fyrir 1. okt. ár hvert. Af 50 umsóknum sem bárust í þetta sinn voru m.a. valdir þeir Helgi ívarsson, slökkviliðsstjóri, og Hrólfur Jónsson, varaslökkviliðs- stjóri í Reykjavik. Sóttu þeir um í sameiningu og hlutu saman 3 mán. laun. Við höfðum samband við Helga og- inntum hann eftir hvernig þeir félagar hyggðust nota styrkinn. Tjáði hann okkur að samkvæmt umsókn þeirra ætluðu þeir sér að nýta hann til að afla sér fræðslu og þekkingar á öllu því sem viðkæmi brunavörnum. Hefðu þeir í huga að fara til Englands og setjast þar á skólabekki í heimsfrægum skóla að nafni Moreton-in-Marsh. Þessi skóli byði upp á námskeið fyrir útlendinga, þá yfirmenn í slökkvi- liðum. Allir þeir slökkviliðsmenn í Englandi sem hlytu einhvern frama væru skyldugir að sækja þennan skóla. Helgi kvaðst hafa farið til Eng- lands og skoðað skólann árið 1984 og litist mjög vel á. Sagðist hann fá nánari upplýsingar í næstu viku um hvaða námskeið hentaði best. Haldið væri þarna námskeið tvisvar á ári, Overseas Operational Commanders' Course, sem stæði í 6 vikur og fengi hann nánari upp- lýsingar fljótlega um þetta nám- skeið sem trúlega yrði ofan á. í framhjáhlaupi spurðum við Helga hvernig honum litist á til- Iögur þær sem fram hefðu komið um breytingar á vaktafyrirkomu- lagi á slökkvistöðinni. Sagði hann að þetta yrði algjör bylting ef úr yrði. Algjör nauðsyn hefði verið orðin á að fjölga á vöktum og ef þessi sérstaka tillaga um 7 manna aukningu næði fram að ganga án verulegs kostnaðarauka ykist mannafli á vakt um 66%. Fjarðarpósturinn óskar Helga til hamingju með heiðurslaunin og er þess fullviss að þetta verður bruna- varnarmálum í Hafnarfirði til framdráttar. ✓ Bflastöð Hafnartjarðar augtýsir: Hafhfirðingar Garðbæingar Alftnesingar ★ ★ ★ ★ Erum með bfla í Hafnarfirði og Garðabæ. Erum með bfla á öllu Reykjavíkursvæðinu. Innanbæjargjöld á öllu Stór-Reykjavíkursvæðinu. Áratuga þjónusta við Hafnarfjörð, Garðabæ og Álftanes. Verslið við eigin bflastöð sem er opin allan sólarhringinn. Símar: 51666 og 50888.

x

Fjarðarpósturinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fjarðarpósturinn
https://timarit.is/publication/945

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.