Fjarðarpósturinn - 12.03.1987, Blaðsíða 6
6
FJARÐARPÓSTURINN
Albert Már Steingrímsson skrifar:
„Tjaldaðstaða fyrir ferða-
menn strax í vor"
„Þetta er nú sú mesta vitleysa
sem ég hef heyrt, að gera Hafnar-
fjörð að ferðamannabæ“, sagði
einn gamall Hafnfirðingur við mig
eftir að tillaga Þórarins Jóns Magn-
ússonar, um að skipuð yrði ferða-
málancfnd hér í Firðinum hafði
verið samþykkt í bæjarstjórn.
Því miður hefur hugsunarháttur
allt of margra hér í bænum ein-
kennst af þessu líku. Því ef við
lítum raunhæft á málin sjáum við
strax að okkar fagri bær ætti miklu
fremur að draga að sér innlenda
sem erlenda ferðalanga, en margir
ónefndir bæir víðs vegar um land.
En hver er þá ástæðan fyrir þvi að
hér sést varla, allt sumarið, bíll með
utanbæjar- eða að ég tali nú ekki
um með erlendu númeri?
Ein ástæðan er sú að við erum
ekki í hinum hefðbundna hringvegi
landsins sem útlendingar fara og
margur landinn ekur á hverju ári.
Önnur er sú að gistiaðstaða á
tjaldstæðum eða á hótelum er engin
hér í bænum og sú þriðja er að við
höfum hreinlega ekki vakið athygli
samlanda okkar og að ég tali nú
ekki um útlendinga á þessum fagra
bæ.
En nú skal þetta breytast. Ferða-
málanefnd hefur fengið fremstu
menn í ferðamálum hér innanlands
á fundi sína og í framhaldi af því
gert forgangslista yfir þau verkefni
sem mest eru aðkallandi. Eitt þess-
ara verkefna er tjaldstæði með lág-
marksþjónustu, það er að segja
vatns- og salernisaðstöðu. Hefur
undirritaður af því tilefni og til að
flýta fyrir málinu fengið sendar
teikningar og verklýsingar frá
Blönduóshreppi þar sem nýlega
hefur verið komið upp hugguleg-
asta tjaldstæði á bökkum Blöndu.
Hafa teikningar þessar verið
afhentar bæjaryfirvöldum og ætti
því strax í sumar að vera hægt að
bjóða ferðamönnum upp á sóma-
samlegt tjaldstæði á Víðistaðatún-
inu skammt fyrir ofan gömlu sund-
laugina okkar.
En hvað höfum við upp á að
bjóða fyrir ferðamenn spyrja
kannski einhverjir sem enn efast?
Því má ef til vill svara með annarri
spurningu. Hvað skoðar þú þegar
leið þín og fjölskyldu þinnar liggur
um landið? Og það má bæta fleiri
spurningum við. Hefur þú kynnt
þér hvað Hafnarfjörður hefur upp
á að bjóða? Hefurðu skoðað Sjó-
minjasafnið, Póst- og símaminja-
safnið, kynnt þér útsýnisskífuna á
Hamrinum o.fl. o.fl.?
En þó að til séu efasemdarmenn
vitum við að fjölmargir aðilar hér i
Hafnarfirði hafa einlægan áhuga á
að laða að ferðamenn. Einn þeirra
er Lovísa Christiansen sem sendi
ferðamálanefndinni fjölmargar til-
lögur um hvernig staðið skyldi að
málum og hvaða verkefnum mætti
vinna að, en Lovísa hefur mikla
reynslu á þessu sviði og hefur starf-
að sem leiðsögumaður í mörg ár.
Nefndin vill heyra fleiri slíkar
raddir og ætlar því í samvinnu við
FJARÐARPÓSTINN að hleypa af
stað hugmyndasamkeppni um alla
þá þætti sem vinna þarf að til að
laða að og þjóna ferðamönnum.
Með vorinu tekur til starfa fyrsta
gistiheimilið hér í bænum. Þar er að
verki hinn mikli framkvæmda-
maður Sigurður Sigurjónsson í
Byggðaverki og annar athafna-
maður Jóhann Bergþórsson í
Hagvirki ætlar að reisa módel ofan
Hvamma. Með tilkomu þessarar
gistiaðstöðu, margra góðra sala í
skólum og í eigu einstaklinga ætti
Hafnarfjörður að vera orðinn eins
eftirsóttur ráðstefnubær og þeir
sem hæst tróna í dag, hér innan-
lands.
Og svona að lokum í gamni og
alvöru má benda á það að allir vita
að Akranes er mikill knattspyrnu-
bær og þangað flykkist fólk þess
vegna. í Hafnarfirði er vagga
íslensks handbolta og héðan hafa
fjölmargir af bestu handbolta-
mönnum landins komið, er þarna
ekki þáttur sem við eigum að sinna
meira en gert hefur verið? Gera
Hafnarfjörð að Mekka íslenskra
handboltastráka og stelpna.
Lífsmark frá gömlum gripum
Fimmtudaginn 26. feb. síðastlið-
inn barst Byggðarsafni Hafnar-
fjarðar skemmtileg gjöf. Hún lætur
ekki mikið yfir sér og kostur er það,
eins og allt er í pottinn búið, að hún
tekur ekki mikið pláss. Þetta er
tóbaksbaukur úr lausnarsteini.
Baukurinn sem Byggðarsafninu
barst er með einum stút, en hægt
mun vera að skrúfa hann af, þegar
fylla á baukinn. Oft þarf að gera
það, ef að eigandinn er einhver nef-
tóbaksmaður að ráði, því að ekki
má ílátið minna vera. Það er
kringlótt, um 5,5 cm í þvermál og
þykkt þess eða belgvídd að utan-
máli er rúml. tveir cm þar sem mest
er, en það er að sjálfs. nokkurn
veginn um miðjuna.
Gunnar Hjaltasson gullsmiður
silfurbjó lausnarsteininn, þ.e. setti á
hann stút og einnig er úr silfri tapp-
inn og keðja sem hann er í og fest er
við silfurplötu sem er umhverfis
stútinn. Öðrum megin stútsins
stendur á plötunni Boggi, en hinum
megin frá Söru.
Ýmsa Hafnfirðinga rennir strax
grun í hverja átt er við, en það eru
þau Borgþór Sigfússon og síðari
kona hans, Sara Magnúsdóttir. Og
þá er að víkja að því hvað lausnar-
steinn raunverulega er.
Sara mun hafa fundið þennan
sjórekinn, enda bárust þeir ævin-
lega hingað þá leið, en nánast mátu-
lega sjaldan til þess, að þetta urðu
hálfgerðir þjóðsagnahlutir. Nafn
þeirra kemur af því, að ef barns-
fæðing gekk illa þá flýtti það fyrir
lausninni að láta þennan “stein“ i
rúm sængurkonunnar. Eins og
nafnið bendir til, var álitið að þessi
hlutur væri úr steinaríkinu, en það
er misskilningur, enda þótti alltaf
undarlegt að annar minni “steinn“
hringlaði innaní hinum. Auðvitað
varð fyrst að ná honum innanúr, ef
gera átti þetta að tóbaksíláti.
En sannleikurinn er sá, að þetta
er úr jurtaríkinu. Það er aldini eða
fræ mímósunnar sem vex í Mið-
Ameríku og á eyjunum þar hjá og
það berst hingað með Golfstraum-
num.
Baukinn er að sjálfsögðu hægt
að fá að sjá í húsi Bjarna Sívertsen,
en það er m.a. opið á laugardögum
og sunnudögum kl. 14-18. Borgþór
hafði sjálfur lagt svo fyrir, að þessi
hlutur rynni til Byggðarsafnsins
eftir sinn dag.
E.TH.MATHIESEN H.F.
BÆJARHRAUN 10 - HAFNARFIRÐI - SÍMI 651000
# Reiknivélar # Ritvélar
og allar tilheyrandi rekstrarvörur
FAGLEG ÞJÓNUSTA
Sendibfíastöð
Hafnarfjaróar
OPIÐ kl. 8 • 18
1111
SKUTLUBÍLAR
FYRIR SMÆRRI
SENDINGAR