Fjarðarpósturinn - 02.06.1988, Qupperneq 4
FMRDflfi
póstunm
Ritstjóri og ábm.: Fríða Proppé
Auglýsingastjóri: Gunnar Sveinbjörnsson
Framkvæmdastjóri: Sigurður Sverrisson
Ljósmyndir: Fjarðarpósturinn og Róbert Ágústsson
Setning, umbrot, filmuvinna og prentun: Borgarprent
Útiit: Fjarðarpósturinn
Útgefandi: Árangur hf. - almannatengsl og útgáfustarfsemi. Skrif-
stofa Fjarðarpóstsins er að Reykjavíkurvegi 72 og er opin alla virka
daga frá kl. 10-17. Símar 651745 og 651945 (símsvari eftir lokun skrif-
stofu).
Kaupstaður á tímamótum
Það má með sanni segja, að Hafnarfjarðarkaupstaður
fagni 80 ára afmæli kaupstaðarréttinda sinna á nokkrum
tímamótum. Uppgangur í byggð og atvinnulífi hefur sjaldan
verið eins mikill, og á sama tíma og velflest sveitarfélög
landsins kveina yfir lélegri fjárhagsstöðu skilar Hafnarfjarð-
arbær af sér til íbúanna hverri stórframkvæmdinni á fætur
annarri.
Fagrar menningar-, lista- og félagsmiðstöðvar eru þó lít-
ils virði, eins og annar veraldlegur auður, ef íbúarnir una
ekki glaðir við sitt hlutskipti. f tilefni af afmælinu leitaði
Fjarðarpósturinn því álits nokkurra Hafnfirðinga og spurði
þá álits á afmælisbarninu og vistinni hjá því. f þessum við-
tölum má greina nokkurn þverskurð af skoðunum fólks og
líðan.
Viðmælendur voru allir sammála um að Hafnarfjöður
væri einna fegurstur bæja hérlendis og þótt vfðar væri leit-
að. Til viðbótar var fólki tíðrætt um veðursæld og gróður-
sæld. Hafnarfjörður er einnig rótgróinn bær og hefur sinn
fasta kjarna, þ.e. höfnina og miðbæinn og Ásdís Konráðs-
dóttir sagði m.a., að hér sé allt við hendina; hægt sé að
ganga eftir allri þjónustu og því alls ekki nauðsynlegt að
eiga bíl.
Forseti bæjarstjórnar, Jóna Ósk Guðjónsdóttir, segir
aðspurð um fyrirsjáanlega þenslu í bænum, að Hafnar-
fjörður sé betur í stakk búinn að taka á móti henni en önnur
sveitarfélög. Hún varar þó við því, að menn sofni á verðin-
um og segir mikilvægt, að skipulag byggðar sé æt íð svol ítið
á undan, þannig að ekki sigli í óefni, þegar þenslutímabil
skella á.
Sigurður Þorleifsson segir, að Hafnarfjörður geti tekið við
allri aukningu byggðar á höfuðborgarsvæðinu. Landsvæði
sé nægt og bestu lóðirnar á svæðinu séu hér, bæði hvað
varðar veðursæld og útsýni. Hann bendir á nauðsyn þess
að stjórnvöld hafi á hverjum tíma upp á aö bjóða allar gerðir
lóða, þannig að sá fjöldi, sem hér vill byggja sér bústað,
komi ekki að lokuðum dyrum.
Viðmælendur Fjarðarpóstsins fundu helst að því, að of
margt þurfi að sækja og sé sótt til Reykjavíkur. Bæjarstarfs-
mennirnir Dóra, Kristjana og Þórunn, sem eru 16 og 17 ára,
kvörtuðu yfir því að þurfa að sækja allar skemmtanir og
félagslíf til Reykjavíkur. Þær sækja einnig allar framhalds-
skóla þar og kvörtuðu sáran yfir lélegri almenningsvagna-
þjónustu. Kristín Árnadóttir sagði Hafnfirðinga einnig
sækja alltof mikið þjónustu til Reykjavíkur og oftast að
óþörfu.
Þegar umsagnir þessar eru teknar saman, hlýtur afmælis-
barnið fleiri jákvæða þunkta en neikvæða. Auðvitaö þykir
velflestum vænt um bæinn sinn og þar að auki er Hafnar-
fjörður áreiðanlega rótgrónara sveitarfélag en önnur ná-
grannasveitarfélög Reykjavíkur, eins og forseti bæjar-
stjórnar bendir á.
Máltækið segir, að það þurfi sterk bein til að þola með-
læti, og oft reynist meðlætið erfiðara en mótlæti. Sigurður
Kristjánsson segir, að ósk sín til handa afmælisbarninu sé
sú, að hér verði áframhaldandi gott mannlíf. Allar ytri
aðstæður gefa tilefni til að sú ósk geti rætst.
Hugsanir barna virðast oft einfaldar, en gefa því oftar
tilefni til þess að skoða hlutina í nýju Ijósi. Næstyngsti við-
mælandinn okkar í viðtölum, sem hér hefur verið vitnað til,
Gunnar Hendrik 4 ára, var spurður, af hverju honum þætti
svo gott að búa í Hafnarfirði. Svarið vafðist ekki fyrir
honum. Það var einfaldlega vegna þess að hér eru engin
tígrisdýr, eins og í Afríku.
Frá ráðstefnunni norrœnu, sem haldin var í Holiday-Inn.
FulKrúi grænlensku heimastjómarinnan
Þjónustan í Hafnarfirði
er mun betri en á ísafirði
Á norrænni ráðstefnu sem Tunisassiorfíat, meðal ræðum-
haldin var í Reykjavík nýverið um anna. Kalallit Tunisassiorfiat er
samgöngur milli Islands, Græn- heiti á stofnun grænlensku heima-
lands og Færeyja, var Erik Hess- stjórnarinar, sem annast stjórnun
elbjerg, skipulagsstjóri Kalaallit á allri sjávarútvegsframleiðslu þar
Óskum Hafnarfjarðarbæ og
bæjarbúum öllum til
hamingju með 80 ára afmæli
Hafnarfjarðarbæjar
Viðbyggjumá
traustumgrunni
^BVGGÐAVERKHE
Reykavikurvegi 60 Hafnarfirði. Simi: 546 44
Frá Skipstjóra- og stýri-
mannafélaginu Kára
Þeir félagar sem hafa áhuga á að nýta sér or-
lofsheimili félagsins í Hraunborgum í sumar hafi
samband við umsjónarmann orlofsheimilanna,
Steingrím Benediktsson, í síma 51400 (heima),
99-6414 (félagsheimih Hraunborga) eða bíla-
síma 985-27263. Einnig geta menn snúið sér til
Guðmundar Ólafssonar í síma 51391. Vinsam-
legast pantið í tíma.
í landi. Hann sagði m.a. í ræðu
sinni að reynsla Grænlendinga af
löndunum rækjuskipa í Hafnar-
firði hefði gefið mjög góða raun.
Fjarðarpósturinn hitti Erik
Hesselbjerg að máli í lok ráð-
stefnunnar. Hann var m.a. spurð-
ur um ástæðu þess að Grænlend-
ingar hefðu kosið að flytja starf-
semi sína hingað frá Isafirði.
Hann sagði: „Við höfum átt mjög
góða samvinnu við Hafnfirðinga.
Við seljum rækjuna meðal annars
á Japansmarkað og með aukinni
kröfugerð höfum við tekið upp
blandaðar pakkningar. Af þeirri
ástæðu meðal annars teljum við
meiri hagræðingu í að hafa þjón-
ustu við skipin á einum stað. Þar
sem þjónustan í Hafnarfirði er
mun betri en á ísafirði höfum við
tekið þá ákvörðun að halda þjón-
ustunni þar framvegis."
Aðspurður um, hvort íslensk
stjómvöld hefðu haft samband
við Grænlendinga vegna þessa
máls, sagði Erik Hesselbjerg:
„Nei, við höfum ekki heyrt neitt
frá þeim.“
Erik Hesselbjerg í rœðustóli.
4