Fjarðarpósturinn


Fjarðarpósturinn - 02.06.1988, Síða 11

Fjarðarpósturinn - 02.06.1988, Síða 11
Sjómannadagurínn 50 ára: Hátíðahöldin sameiginleg með Reykvíkingum Sjómenn fagna 50 ára afmæli Sjómannadagsins að þessu sinni, en sjómannadagurinn er samkvæmt venju fyrsta sunn- udag í júní. I tilefni af þessu merkisafmæli verða hátíðarhöldin sameiginleg fyrir Hafnarfjörð og Reykjavík, en svo var einnig fyrstu 15 árin í starfi Sjómannadags. I tilefni afmælisins afhend- ir Hafnarfjarðarbær Hrafnistu í Hafnarfirði fánastöng að gjöf, einnig heimsækir forseti Islands, Vigdís Finnbogadóttir, heim- ilisfólk á Hrafnistu í Hafnarfirði. Það var í morgun, fimmtudags- morgun, sem fánastöngin var afhent. Á morgun, föstudag, heimsækir forseti íslands Hrafn- istu í Hafnarfirði og síðan Hrafn- istu í Reykjavík og heilsar upp á heimilisfólk. Að lokinni heim- sókninni verður hátíðarfundur kl. 17 í Háskólabíói. Þar ávarpar Pét- ur Sigurðsson formaður Sjómanna- dagsráðs fundinn, ennfremur forsætisráðherra. Á laugardaginn verða undan- rásir í róðrakeppni, sem Slysa- varnarfélag íslands annast, en það fagnar nú 60 ára afmæli sínu. Á sjómannadaginn sjálfan, sunnudag, hefjast hátíðarhöldin kl. 9 með hátíðarathöfn við Foss- vogskirkju þar sem helgað verður minnismerki um óþekkta sjó- manninn. Þar verður flutt nýtt lag Sigfúsar Halldórssonar sem nefn- ist Þakkargjörð og lagður verður blómsveigur að minnismerkinu. Heiðursvörð við athöfnina standa menn frá Landhelgisgæslunni og frá dönsku varðskipi, sem er í Rey kj avíkurhöfn. Hátíðarhöldunum verður síðan fram haldið fyrir framan Hafnar- húsið við Reykjavíkurhöfn. Þar flytja fulltrúar útgerðarmanna og sjómanna ræður, ennfremur Steingrímur Hermannsson, sem nú gegnir störfum sjávarútvegs- ráðherra í fjarveru Halldórs Ásgrímssonar. Hafnfirskir og reykvískir sjómenn verða heiðr- aðir og þrír menn hljóta gull- merki. Afmælisveisla Glæsileg afmælisveisla fyrir hafnfirsk börn í tilefni af 80 ára afmæli bæjarins föstudaginn 3. júní (á morgun) kl. 16-19 við Miðvang. Bjóðum upp á grillaðar Öndvegis-pylsur, íspinna frá Kjörís og nýtt appelsín frá Sanitas. Gerum okkur glaðan dag! uMMmmm VÖRUMARKAÐUR Sjómannadagurinn 50 ára LAUGARDAGURINN 4. JÓNÍ1988 Kl. 10.00 Fulltrúar Sjómannadagsráðs heimsækja höfuðstöðvar Slysavamafé- lags íslands í tilefni af 60 ára afmæli félagsins og 50 ára afmæli Sjómanna- dagsins. Kl. 10.00-12.00 Keppni á seglskútum frá Fossvogi til Reykjavíkur. Kl. 13.00 ForkeppniíkappróðriíReykja- víkurhöfn. Margar sveitir keppa. Kl. 13.00 Sýning og kynning á skipum og búnaði í Reykjavíkurhöfn. Kl. 14.00 Sýningaratriði björgunar- sveita Slysavarnafélags íslands. Fjöl- breytt sýningaratriði með hinum marg- víslega útbúnaði Slysavamasveitanna, ásamt Þyrlu Landhelgisgæslunnar. Kl. 16.00 Forkeppni í kappróðri haldið áfram og stefnt að því að því verði lokið umkl. 17.00. SÖLUBÖRN ATHUGIÐ Sjómannadagsblaðið og merki dagsins verða afhent í sölugámum við Reykjavíkurhöfn. HRAFNISTA REYKJAVÍK Kl. 13.30 Sýningáhandavinnuvistfólks Hrafnistu í föndursal á 4. hæð C-álmu. Sýningin er opin bæði á laugar- og sunnudag kl. 13.30 til 17.00. Kl. 14.00-17.00 Kaffisala í borð-og sam- komusal Hrafnistu Reykjavík. Allur ágóði rennur til velferðarmála heimil- ismanna Hrafnistu Reykjavik. Dagskrá 51. sjómanna dagsins í Reykjavík og Hafnarfirði 4. og 5. júní HRAFNISTA HAFNARFIRÐI Kl. 10.00 Lúðrasveit Hafnarfjarðar leik- ur létt sjómannalög við Hrafnistu Hafn- arfirði. Kl. 11.00 Sjómannamessa í Víðistaða- kirkju i Hafnarfirði. Prestur er séra Sigurður Helgi Guðmundsson. Kór Víði- staðakirkju syngur. Kl. 14.00 Kaffisala í borð- og samkomu- sal. Jafnframt verður sýning og sala á handavinnu vistfólks. Allur ágóði rennur til ferða- og skemmtisjóðs Hrafnistu Hafnarfirði. SJÓMENN OG VELUNNAR- AR SJÓMANNADAGSINS Sjómannahóf verður haldið að Hótel íslandi sunnudaginn 5. júni og hefst kl. 19.00. Miðaverð á hófið er kr. 1.900.- Miða- og borðapantanir eru í anddyri Hótels íslands frá kl. 11.00 laugardag og sunnu- dag. SUNNUDAGURINN 5. JÓNÍ1988 Kl. 09.00 Nýr minnisvarði um Óþekkta sjómanninn vígður í Fossvogskirkju- garði. Sr. Ólafur Skúlason, vígslubiskup vigir minnisvarðann. Kór undir stjórn Guðna Þ. Guðmundssonar og undirleiks Guðrúnar Guðmundsdóttur flytur sjó- mannasálm og tónverk Sigfúsar Hall- dórssonar. Þakkargjörð við ljóð sr. Sigurðar Helga Guðmundssonar. Full- trúar frá Landhelgisgæslu íslands standa heiðursvörð, einnig frá danska gæsluskipinu Hvidbjörn. kl. 11.00 Minningarguðsþjónusta í Dómkirkjunni í Reykjavík. Sr. Ólafur Skúlason, vígslubiskup predikar. Sr. Hjalti Guðmundsson, dómkirkjuprestur þjónar fyrir altari. Sjómenn aðstoða við messuna. Dómkórinn syngur undir stjórn Marteins H. Friðrikssonar. Kl. 11.00-12.30 Baujurall á vegum Snar- fara og Siglingasambands íslands út af Kirkjusandi og Skúlagötu. Kl. 13.00 Skemmtisigling um sundin við Reykjavík með Hvalbátum og hafrann- sóknarskipum, fyrir þþa sem keypt hafa merki Sjómannadagsins. Börn yngri en 12 ára þurfa þó að vera í fylgd með full- orðnum. Farið verður frá Faxagarði í Reykjavíkurhöfn. Siglingar hefjast kl. 13.00 og siðasta ferð verður farin kl. 16.00. Sérstök athygli fólks er vakin á því að vera í hlýjum fötum. Bátar frá Snarfara munu fylgja skipunum. Ferðir geta fallið niður ef veður verður mjög slæmt. Kl. 13.30 Lúðrasveit Reykjavíkur leikur létt sjómannalög, stjómandi Kl. 14.00 SAMKOMAN SETT. Þulur og kynnir dagsins er Hannes Þ. Hafstein, framkvæmdastjóri S.V.F.Í. ÁVÖRP: A: Fulltrúi rfldsstjómarinnar, Stein- grimur Hermannsson, utanrikisráðherra í fjarveru sjávarútvegsráðherra. B: Fulltrúi útgerðarmanna, Brynjólfur Bjarnason, forstjóri Granda hf. C: Fufltrúi sjómanna, Pétur Sigurðsson, formaður Sjómannadagsráðs. D: Garðar Þorsteinsson, framkvæmda- stjóri Sjómannadagsins heiðrar aldraða sjómenn með heiðursmerki Sjómanna- dagsins. SKEMMTANIR DAGSINS Kl. 15.00 Kappróður í Reykjavíkurhöfn. Úrslitakeppni karla- og kvennasveita, sem kepptu í forkeppni á laugardag. Koddaslagur fer fram á ekjubrú Akra- borgar. Þátttakendur gefi sig fram á staðnum. Björn Thoroddsen, flugstjóri mun sýna listflug yfir Reykjavíkurhöfn. Danska seglskipið Georg Stage og fær- eysku skipin Johanna og Westward Ho verða til sýnis, bæði á laugar- og sunnu- dag mifli kl. 13.00 og 17.00. Veitingar verða til sölu á hafnarsvæðum á vegum björgunarsveitarinnar Ingólfs. Einnig fer fram sala á merki dagsins og Sjómannadagsblaðinu. 11

x

Fjarðarpósturinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fjarðarpósturinn
https://timarit.is/publication/945

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.