Fjarðarpósturinn - 21.12.1995, Síða 3
FJARÐARPOSTURINN 3
Tillaga bæjarstjóra um álagningu gjalda
Útsvar 1996 verði
óbreytt eða 9,2%
Ingvar Viktorsson bæjarstjóri
hefur lagt fram tillögur sínar um
álagningu sveitarsjóðsgjalda fvrir
næsta ári í bæjarráði og voru þær
ræddar á bæjarstjórnarfundi á
þriðjudagskvöld. Ingvar leggur til
að útsvar verði óbreytt frá í ár eða
9,2%. Einnig er lagt til að önnur
helstu gjöld svo sem fasteigna-
gjald, vatns- og holræsagjald og
lóðarleiga verði einnig óbrevtt frá í
ár.
Hvað fasteignaskattinn varðar er
gert ráð fyrir að hann nemi 0,375%
af fasteignamati íbúðarhúsa en
1,25% af atvinnuhúsnæði. Sérstakur
skattur af skrifstofu- og verslunar-
húsnæði verði 1,25% af fasteigna-
mati og á hesthúsunum í Hlíðarþúf-
um nemi hann 0,5% af fasteigna-
mati.
Undanþágur
frá lóðaleigu
Ingvar leggur til að lóðaleiga
verði áfram 1% af fasteignamati allra
lóða í Hafnarfirði. Jafnframt er lagt
til að fella niður fasteignaskatt ellilíf-
eyrisþega af eigin íbúð. Þannig
greiði einstaklingar með brúttótekjur
í ár allt að 742.000 kr. enga lóða-
leigu, einstaklingar með tekjur allt að
886.000 kr. greiði 30% af lóðaleigu
og einstaklingar með allt að
1.136.000 kr. greiði 70% af lóða-
leigu.
Fyrir hjón sem bæði eru ellilífeyr-
isþegar er lagt til að undanþágur
verði þannig að hjón með brúttótekj-
ur í ár allt að 1.162.000 kr. greiða
ekki lóðaleigu, hjón nteð tekjur allt
að 1.389.000 kr. greiði 30% og hjón
með tekjur allt að 1.574.000 kr.
greiði 70%.
Þá er lagt til að lagt verði sérstakt
sorpeyðingargjald á hverja íbúð á
næsta ári og nemi það 3.000 kr. á
íbúð. Gjaldið er í samræmi við sér-
staka gjaldskrá þar um sem umhverf-
ismálaráðuneytið staðfestir.
Himinn og Jörð, málverkasýning í Fjarðarnesti
Síðastliðinn laugardag 16. des-
ember opnaði PATROH málverka-
sýningu á veitingastaðnum Fjarð-
arnesti að Bæjarhrauni 4.
Þegar blaðamaður Fjarðarpóstsins
leit þar inn til að seðja hungur sitt,
blöstu við þessar líka fallegu myndir
listamannsins. Hughrif þeirra hreyf
þennan blaðamann á vit æðri heima.
Þama virðist einhver himnakraftur
vera á ferðinni. Enda heitir sýningin
„HIMINN OG JÖRÐ." Það er erfm
að lýsa með fáum orðum þessum sér-
stökum liststíl. En eitt er víst, að hafi
fólk almennt áhuga fyrir náttúrinni,
jörðinni, líftnu og heiminum, er þetta
sýning til að skoða og ekki skemmir
það að fá sér góðan kaffibolla eða
heitt kakó og spjalla við þennan fjöl-
hæfa Iistamann PATRÓH og heims-
konu með meiru.
Hvey er svo þessi listamaður
PATRÓH? Hún heitir Patricia Hand
og er sannur Islendingur, þótt hún
komi langt að, eða nánar tiltekið frá
afskekkri sveit í Viktoríu fylki í Astr-
alíu. Faðir hennar var bóndi og móð-
ir hennar sem var kennari, kenndi
henni bæði lestur og skrift áður en
sjálf skólaganga hennar hófst. Pat-
ricia sagði að í bamaskólanum hefðu
verið að meðaltali 5 nemendur. Hún
lagði ung af stað til að skoða heimin
sinn og það eru fá lönd eftir sem hún
hefur ekki heimsótt. Það tók hana t.d.
þrjá mánuði, eitt sinn, að ferðast frá
Indlandi til Englands. Eitt sinn er
hún var stödd í verslun í Skotlandi
kom eigandinn, bláókunnugur maður
til hennar og tjáði henni, heldur
leyndardómsfullur á svipinn, að
aldrei myndi hún aftur búa sunnan
við Skotland. Og reyndist það rétt
því árið 1968 kom Patricia til Islands
og settist hér að. Hún hefur búið í
Vogum á Vatnsleysuströnd síðan
1975 og íslenskur ríkisborgari varð
hún árið 1986.
Patricia er að mestu leyti sjálf-
menntuð í myndlist, en hún nam ol-
íumálun, skúlptúr og Keramik við
Peter Styvesant College í New York
á árunum 1970 - 1971, jafnframt því
sem hún vann á þessum tíma hjá
Sameinuðu Þjóðunum í New York.
Einnig hefur hún sótt námskeið í
Tómstund.
Verk Patriciu á þessari sýningu
eru fjölbreytt en þó aðallega myndir
unnar á silki. Og má segja að mynd-
irnar einkenna allt milli himins og
jarðar.
Hvaðan kemur listamannanafnið
PATRÓH? „Það er ekkert leyndar-
mál,“ segir Patricia. „Þegar ég bjó á
Langholtsveginum, bjuggu þar tvö
böm sem vpru miklir vinir mínir,
Kári og Kolbrún Bergsböm, og gátu
þau ekki sagt nafnið mitt. svo þau
kölluðu mig bara Patróh. Þetta nafn
einhvemveginn festist við mig og
mér finnst bara vænt um það.“ segir
þessi ljúfa, heimskona og listamaður
með meiru, að lokum.
Kylfingar, Kvlíiiigaiv lív lfingaiv
B.S. GOLFVERSLUN í GOLFSKÁLA KEILIS S. 56S 0714
Hjá okkur færðu úrvalið af jólagjöfum kylfingsins. Mikið úrval af vörum
frá ýmsum framleiðendum. Opnunartími í desember er þannig:
VIRKA DAGA FRÁ 15 TIL 18 OG UM HELGAR FRÁ 13 TIL 16