Fjarðarpósturinn - 05.12.2002, Qupperneq 3
Fimmtudagur 5. desember 2002
www.fjardarposturinn.is 3
Tilvistarkreppa í
Hafnarfirði
Arndís Einarsdóttir, heimilislaus skrifar og er
óhress með félagsþjónustuna:
Mig langar til að láta nokkur
orð falla um reynslu mína síðast-
liðin 2 ár, en þá var ég í leiguhús-
næði hjá bænum eða félagsmála-
stofhun Hafnarfjarðarbæjar.
Tll að bytja með gekk allt vel,
dóttir mín bjó hjá mér og borgaði
hún helming leigunnar á móti
mér og ég þurfti að vinna lágmark
12 tilló-18 tíma á sólarhring til að
láta enda ná saman og hef alla tíð
unnið mikið til að geta greitt
skuldir mínar, en dóttir mín flutti
og fór að búa. Það fór smám sam-
an að halla undan fæti, ég gat ekki
lengur borgað 53.000 krónur í
leigu, þannig að upp safiiaðist
skuld. Ég flutti úr íbúðinni, og
setti son minn nánast á götuna 17
ára gamlan, eða lét það honum
eftír að sjá sér fyrir húsnæði og
fleira, en það er allt önnur saga.
En ég fékk húsnæði og vinnu í
nágrenni Hafnarfjarðar og af ein-
hveijum ástæðum, flutti ég aldrei
lögheimili mitt, en ætlunin var
alltaf sú að koma afitur, þegar ég
væri búin að laga fjármálin, en
skuldin við húsnæðisnefnd varð
eftir. Áður en ég fór úr íbúðinni,
fór ég og talaði við einhvem sem
ég man því miður ekki hver var,
en viðkomandi sagði mér að hafa
ekki áhyggjur af þessari skuld, ég
væri að gera það sem gera þyrfti,
að koma mínum málum í lag, og
eftir það fæ ég hvorki reikning,
áminningu eða neina ítrekun um
þessa skuld mína og hef aldrei
fengið. Afitur fór að halla undan
fæti, ég fór að missa heilsuna og
núna rúmu ári seinna er ég 75%
öryrki.
Ég þurfti að hætta að vinna og
missti um leið húsnæðið sem
fylgdi vinnunni, og afitur þurftí ég
að taka til í fjármálunum, semja
um skuldir mína til ennþá lengri
tíma í Búnaðarbankanum svo ég
gæti borgað af þeim, það fékkst í
gegn, en samt var mér tjáð það af
starfsmanni þar, að bankinn vasri
að gera mér mikinn greiða. Ég
þurfi samt að borga fyrir þennan
stóra greiða og búin að eiga við-
skiptí við sama bankann í 27 ár.
Áð missa heilsuna er svo sann-
arlega ekkert grín, þrautarganga á
milU lækna og rannsókna og vera
heimihslaus í ofanálag. Ég fór og
talaði við félagsráðgjafa til að
sækja um húsnæði en ég mátti
ekki einu sinni sækja um vegna
þess að ég var skráð með skuld í
tölvunni, var bent á að tala við
fjármálastjóra eða einhvem sem
hefði með þetta að gera. Vil ég
taka ffam að mínum sjúkdómi
fylgir gífurlegt þunglyndi og
hræðsla við allt og alla og oft
hvarflar það að mér að best væri
að ljúka sinni tilvist á þessari jörð.
En ég taldi í mig talsverðan kjark
og fór til fjármálastjóra en hann
nánast sagði sér ekki koma þetta
við og bentí mér að tala við mann
sem vinnur hjá húsnæðisnefnd og
Guðbjöm heitir og áffam hélt
píslargangan. Ég sagði Guðbimi
erindi mitt, en svarið ffá honum
var að hann gætí ekkert gert fyrir
mig. Þá spurði ég hann, hvað ég
ætti tíl bragðs að taka, heimilis-
laus, á vergangi milh vina og ætt-
ingja, þá yppti Guðbjöm öxlum
og sagðist ekki vita það.
En að lokum langar mig til að
minna félagsmálastofnun, fjár-
málastjóra og síðast en ekki síst
Guðbjöm hjá húsnæðisnefnd á
Lög um félagsþjónustu sveitar-
félaga ffá 27. mars 1991, nr. 40.
I. kafli. Markmið laganna.
1. grein. Markmið félagsþjónustu á
vegum sveitarfélaga er að tiyggja fjár-
hagslegt og félagslegt öryggi og
stuðla að velferð íbúa á grundvelli
samhjálpar, það skal gert með því:
Jólaljósin í
Hafnarfjarðarkirkjugarði
Ljósin verða afgreidd frá og með
sunnudeginum 15. desember
til og með mánudeginum 23. desember
Opið frá kl 13 -19 alla daga
Vinsamlega athugið að ekki er hægt að
greiða með debet eða kredit kortum
Lokað aðfangadag
Ingibjörg Jónsdóttir
Sími: 555 4004
a. að bæta lífskjör þeirra sem standa
höllnmfœti.
IV. kafli. Almenn ákvæði um rétt til
félagsþjónustu á vegum sveitarfélaga.
12. grein. Sveitarfélag skal sjá um
að veita íbúum þjónustu og aðstoð
samkvæmt lögum þessum, og jafii-
framt tryggja að þeir geti séð fyrir sér
og sínum.
Aðstoð og þjónusta skal jöfhurn
höndum vera til þess fallin, að bæta úr
vanda og koma í veg fyrir, að ein-
staklingar og fjölskyldur, komist í þá
aðstöðu, að geta ekki ráðið fram úr
málum sínum sjálf.
XH. kafli. Húsnæðismál.
45. grein. Sveitarstjómir skulu, eftir
því sem kostur er og þörf er á, að
tryggja framboð af leiguhúsnæði,
félagslegu kaupleiguhúsnæði og/eða
félagslegum eignaríbúðum, handa
þeim fjölskyldum og einstaklingum
sem ekki em á annan hátt færir um að
sjá sér fyrir húsnæði, sökum lágra
launa, þungrar framfærslubyrðar eða
annarra félagslegra aðstæðna.
46. grein. Félagsmálanefhdir skulu
sjá til þess að veita þeim fjölskyldum
og einstaklingum sem ekki em færir
til þess sjálfir, úrlausn í húsnæðis-
málum, til að leysa úr bráðum vanda,
á meðan unnið er að varanlegri lausn.
Þessi og fleiri réttíndi eru skráð
í lagasafni 1999 og þar sem mér
skilst að húsnæðisnefiid sé félags-
málanefhd þá finnst mér það góð
spuming hvort starfsmenn eða
maður, sé með menntun og rétt-
indi til að starfa í þeirri nefhd.
DESEMBER
T0NLEIKAR
KARLAKORINN ÞRESTIR
LÚÐRASVEIT HAFNARFJARÐAR
SIGURÐUR SKAGFJÖRÐ
KÓR ELDRI ÞRASTA
VIÐISTAÐAKIRKJU
SUNNUDAGINN 8. DESEMBER
KL. 20:00.
Athugift:
Afieins einir tónleikar
fyrir þessi jól.
Miðaverfi kr. 1.500
Fríkirkjan -
Aðventukvöld
Á sunnudagskvöldið, 8.desember verður aðventu-
kvöld Fríkirkjunnar og hefst dagskrá kl. 20.30.
Sérstakir gestir kvöldvökunnar eru Kór Öldutúns-
skóla sem syngur undir stjórn Egils Friðleifssonar.
Að venju verður flutt falleg dagskrá í tali og tónum
og m.a. munu unglingar í æskulýðsstarfi kirkjunnar
flytja dagskrá.
Að lokinni kvöldvöku verður svo boðið upp á heitt
súkkulaði og smákökur í safnaðarheimilinu.
FJÖRUKRÁIN
Fjaran
Hádegisverðartilboð
990 kr.
3ja rétta kvöldverður
1950 kr.
I einu elsta húsi
bœjarins
Fjörugarðurinn
Víkingaveislur
alla daga og dansleikir
allar helgar.
Um helgina spila Hilmar
Sverrisson og Ari
Jónsson.
Munið
Jólahlaðborðið !
Sam-
eining
felld
Sameining iðnfélaga sem sagt
var frá í síðasta blaði var felld í
allsherjaratkvæðagreiðslu.
Félagsmenn Félags byggingar-
iðnaðarmanna í Hafnarfirði sam-
þykktu sameininguna með 86%
atkvæða en félagar í Trésmiða-
félagi Reykjavfkur felldu hana
hins vegar með 60% atkvæða en
skilyrði var að stærstu félögin
TR og Bíliðnafélagið/Félag
blikksmiða samþykktu samein-
inguna. Öll önnur félög sam-
þykktu sameiningu með miklum
meirihluta.
Óvíst er hvað gert verður í
stöðunni þar sem aðrir mögu-
leikar hafa ekki verið ræddir.
Félag byggingariðnaðarmanna
í Hafharfirði er ekki lengur stórt
félag og því mjög hagkvæmt
fyrir það að sameinast öðrum til
að tryggja góða þjónustu við
félagsmenn.
Leiðrétting
Rangt var farið með föðumafh
Katrínar starfsmanns Félags
byggingariðnaðarmanna í Hafn-
arfirði en hún er Ingvarsdóttir. Er
beðist velvirðingar á mistökun-
um.
Búsloóaflutningar
Tek að mér alla almenna flutninga
Benni Ben. - 893 2190