Fjarðarpósturinn - 20.09.2007, Blaðsíða 12
12 www.fjardarposturinn.is Fimmtudagur 20. september 2007
Í lok marsmánaðar sl. keypti
eignarhaldsfélagið Reynimelur
ehf. fyrirtækið Kynnisferðir ehf.
af FL Group hf. Reynimelur er
félag sem stofnað var vegna
þessara kaupa á Kynnisferðum
m.a. af hópferðafyrirtækjunum
SBA-Norðurleið ehf. og Hag -
vögnum/Hópbílum hf. Kaup in
voru tilkynnt til Sam keppnis -
eftirlitsins í maímánuði sem
samruni.
Kynnisferðir, SBA-Norðurleið
og Hagvagnar/Hópbílar hafa um
margra ára skeið verið um -
fangsmikil í fólksflutningum hér
á landi, s.s. á sviði hópferða og
sk. dagsferða. Auk þess hafa
Kynnis ferðir verið lang umsvifa -
mesta fyrirtæki landsins í sér -
leyfisakstri, t.d. á leiðinni milli
Reykjavíkur og Leifs stöðvar. Þá
stunda félögin akstur fyrir
sveitarfélög á strætisvagna leið -
um.
Það er mat Samkeppnis eftir -
litsins að hefði samruninn verið
lát inn óátalinn hefði orðið til
mark aðs ráðandi staða á þeim
mark aði sem þessi fyrirtæki
starfa á, en samanlögð mark aðs -
hlutdeild þeirra er tæplega 60%.
Til samanburðar nemur hlutdeild
annarra einstakra keppinauta
mest 5-10% af markaðnum. Að
mati Samkeppniseftirlitsins
hindr ar samruninn virka sam -
keppni á umræddum markaði
fyrir fólksflutninga og vinnur því
gegn markmiði samkeppnislaga.
Af þeim sökum hefur Sam -
keppniseftirlitið ógilt samruna
félaganna með vísan til heim -
ildar í 17. gr. samkeppnislaga
Fá ekki að kaupa
Kynnisferðir
Samkeppniseftirlitið bannar fyrirtæki í eigu Hóp -
bíla og SBA-Norðurleiðar að kaupa Kynnisferðir
Laus störf í Flensborgarskólanum
Flensborgarskólinn leitar eftir starfsmönnum í eftirtalin störf:
• Stuðningsfulltrúi á starfsbraut 100% staða
• Þjónustuliði í dagræstingu 100% staða
Í bæði störfin kemur minna starfshlutfall vel til greina.
Launakjör fara eftir kjarasamningi fjármálaráðherra og SFR
skv. nánari útfærslu í stofnanasamningi.
Umsóknarfrestur er til 11. október n.k.
Æskilegt að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst.
Ekki þarf að sækja um á sérstökum umsóknareyðublöðum. Umsókn skal
senda til Flensborgarskólans í Hafnarfirði, Póshólf 240, 222 Hafnarfirði,
merkt starfsumsókn eða í tölvupósti á netfangið flensborg@flensborg.is .
Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu hefur verið tekin.
Nánari upplýsingar gefur Einar Birgir Steinþórsson skólameistari í síma
5650400 en einnig er hægt að fá upplýsingar með fyrirspurn á netfangið
flensborg@flensborg.is .
Ýmsar upplýsingar um skólann og starfsemi hans er að finna
á heimasíðu hans www.flensborg.is .
Skólameistari
Hádegistónleikarnir sem
Anton ía Hevesi hefur staðið fyrir
í samstarfi við Hafnarborg
undan farin ár hafa notið gífur -
lega vinsælda og hefur ávallt
verið þéttsetinn salurinn.
Fyrstu tónleikar vetrarins
verða 4. október en þá hefur
Antonía fengið með sér Hönnu
Björk Guðjónsdóttur, spópran -
söngkonu sem víða hefur komið
fram sem einsöngvari, einkum
við kirkjulegar athafnir og með
kórum. Yfirskrift þessara fyrstu
tónleika er „Íslenskt - já takk!“
Elínu Ósk Óskarsdóttur er
óþarft að kynna, þessi ástsæli
söngvari Hafnfirðinga verður
með Antoníu 1. október og flytja
þær stöllur þýska dagskrá.
Þann 6. desember fær Antonía
Ingveldi Ýr Jónsdóttur, messó -
sópransöngkonu sem syngur sem
sópransöngkona á tónleikum
sem hefur yfirskriftina „Sópran
út úr skápnum“.
Tónleikarnir eru á fimmtu dög -
um og hefjast kl. 12.
Hádegistónleikarnir
hefjast á ný 4. október
Hanna Björk, Elín Ósk og Ingveldur Ýr
Hanna Björk Guðjónsdóttir
Antonía Hevesi
Ingveldur Ýr JónsdóttirElín Ósk Óskarsdóttir
Bæjarfulltrúar Sjálfstæðis -
flokksins lögðu til á bæjar -
stjórnar fundi í byrjun mánaðar -
ins að hlutur Hafnarfjarðarbæjar
í Hitaveitu Suðurnesja
verði seldur til Orku -
veitu Reykjavíkur í
sam ræmi við sam -
komulag þar um frá í
sum ar. Meirihluti bæj -
ar stjórnar vísaði tillög -
unni frá.
Þegar íslenska ríkið
ákvað sl. vetur að selja
hlut sinn í Hitaveitu
Suð ur nesja kom í ljós
að í félaginu fólust
gríðar leg verðmæti. Ráðgjafar -
fyrirtækið Capacent Gallup mat
þá hlutinn í Hitaveitu Suðurnesja
á genginu 3,1 en tilboð Orku -
veit unnar í hluti Hafnarfjarðar
frá í sumar, er á genginu 7, sem
þýðir að hlutur Hafnarfjarðar í
fyrirtækinu er um 8 milljarða
króna virði.
Svigrúm til að lækka skatta í
Hafnarfirði
Það er mat okkar bæjarfulltrúa
Sjálfstæðisflokksins að verð -
matið sé það hátt að
ganga beri frá sölunni
sem fyrst. Sam komu -
lag Hafnar fjarðar -
bæjar og OR gildir til
næstu áramóta en í
hverjum mánuði sem
líður verð ur Hafnar -
fjarðar bær af um 100
milljón um króna í
vexti af þeim 8 millj -
örð um sem fengj ust
fyrir söluna. Söluand -
virðið kæmi bæjarsjóði afar vel
nú til að greiða niður skuldir
bæjar félags ins og skapa þann ig
svigrúm til að lækka útsvar og
fasteigna gjöld bæjarbúa.
Ljóst er að með breyttu eignar -
haldi á Hita veitu Suðurnesja hafa
skapast aðstæður þar sem rekstur
fyrir tækisins verður að teljast
áhættusamari en áður og er það
ekki hlutverk sveitarfélags eins
og Hafnarfjarðar að standa í
rekstri af því tagi. Útsvars greið -
endur í Hafnarfirði gera kröfu til
þess að gætilega sé farið með
sameiginlega fjármuni þeirra.
Þess ber þó að geta að með söl -
unni á hlut Hafnfirðinga í
Hitaveitu Suðurnesja er ekki
verið að afsala sér jarðhita -
réttindum í landi Hafnarfjarðar.
Heilladrjúgt skref að sameina
Einnig er vert að rifja upp
hversu heilladrjúgt skref það var
þegar ákveðið var að sameina
Rafveitu Hafnarfjarðar Hitaveitu
Suðurnesja en Hafnarfjarðarbær
eignaðist þá 16,6% hlut í HS. Sú
ákvörðun var tekin árið 2000
undir forystu Sjálfstæðismanna í
bæjarstjórn Hafnarfjarðar og er
nú að koma í ljós hve mikil
verðmætasköpun í því fólst.
Þessi verðmæti ber að innleysa
sem fyrst á meðan svo hátt verð
býðst í hlutinn.
Höfundur er bæjarfulltrúi.
Mikil verðmæti fyrir Hafnfirðinga
Rósa
Guðbjartsdóttir
Auglýsing í Fjarðarpóstinum borgar sig!
Auglýsingasíminn er 565 3066