Fjarðarpósturinn - 13.12.2007, Qupperneq 2
2 www.fjardarposturinn.is Fimmtudagur 13. desember 2007
Útgefandi: Keilir ehf. kt. 681175-0329
Fjarðarpósturinn, Bæjarhrauni 2, 220 Hafnarfirði
Vinnsla: Hönnunarhúsið ehf., umbrot@fjardarposturinn.is
Ritstjóri og ábm.: Guðni Gíslason
Ritstjórn: 565 4513, 896 4613, ritstjorn@fjardarposturinn.is
Auglýsingar: 565 3066, auglysingar@fjardarposturinn.is
Prentun: Steinmark ehf. Dreifing: Íslandspóstur
ISSN 1670-4169 – Vefútgáfa: ISSN 1670-4193
www.fjardarposturinn.is
Ég man þau jólin
Jólatónleikar í Hamarssal í Flensborg í
kvöld, fimmtudag kl. 20.
Jólatónleikar í anda Frank Sinatra, Bing
Crosby, Tony Bennet, Mahailiu
Jackson, Hauks Morthens, Ellýar
Vilhjálms, Ragga Bjarna ofl.
Lög eins og White Cristmas, Christ -
mas Song /Hvít jól , Have yourself a
merry little Christmas og Ó helga nótt
og mörg fleiri.
Glæsilegir tónleikar með flottu
swing/djass bandi og strengjasveit og
hver veit nema að þjóðþekktur leyni -
gestur reki inn nefið og taki jafnvel
lagið.
Söngvarar: Ólafur Már Svavars son,
Ívar Helgason og Esther Jökuls dóttir.
Hljómsveit: Stefán Örn Gunnlaugsson
(píanó), Andrés Þór Gunnlaugsson
(gítar), Þorgrímur Jónsson (kontra -
bassi), Erik Qvick (trommur), Hildi -
gunnur Rúnarsdóttir (fiðla), Fífa Jóns -
dóttir (fiðla), Stefanía Ólafsdóttir
(víóla), Páll Einarsson (selló).
Jólaþorpið um helgina
Laugardagurinn 15. des. kl. 14:
• Kór Öldutónsskóla
• Stúlkurnar í Nylon syngja
• Forskóli Tónlistarskóla
Hafnarfjarðar syngur
• Grýla mætir á staðinn
• Ásláttarhljómsveit Tónlistarskólans
• Jólalest Víkurverks
Sunnudagurinn 16. des kl. 14:
• Jólaball með Gunna og Felix
• Grýla mætir með syni sínum
• Börn komast á hestbak fyrir 500 kr.
Chaplin í Bæjarbíói
Á laugardaginn kl. 16 sýnir Kvik -
myndasafn Íslands Chaplin myndina
Kóngur í New York (A King in New
York) frá 1957. Þetta er fyrsta mynd
Chaplins eftir að hann fór í útlegð frá
Bandaríkjunum og sú síðasta sem
hann leikur sjálfur aðalhlutverk í.
Þetta er síðasta sýning ársins.
Mozart við kertaljós
Camerarctica heldur sína árlegu
kertaljósatónleika í Hafnarfjarðarkirkju
miðvikudaginn 19. desember kl. 21.
Hópurinn hefur leikið ljúfa tónlist eftir
Mozart í Hafnarfjarðarkirkju í fimmtán
ár og þykir mörgum ómissandi að
koma úr miðri jólaösinni inn í kyrrðina
og kertaljósin í rökkrinu. Í ár færast
tón leikarnir yfir í sal Hafnar fjarðar -
kirkju, Hásali vegna viðgerða í
kirkjunni.
Á efnisskránni í ár eru tveir kvartettar
eftir W. A. Mozart, annar fyrir flautu og
strengi og hinn fyrir klarinettu og
strengi. Einnig verður leikinn Kvartett
fyrir klarinettu og strengi eftir sam -
tíma mann Mozarts, Carl Stamitz. Að
venju lýkur tónleikunum á því að
Camerarctica leikur jólasálminn góða,
Í dag er glatt í döprum hjörtum.
Bjarni Sigurdsson sýnir
leirlist um helgina
Bjarni Sigurdsson leirlistarmaður er
fluttur til Íslands efter 11 ára dvöl í
Danmörku og hefur búsett sig í hinum
fallega Hafnarfjarðarbæ. Býður hann
gestum og gangandi að koma á opið
hús á verkstæði hans að Hrauntungu
20 nú um helgina. Boðið verður upp á
jólakökur og kaffi og einnig eru verk
hans til sýnis og sölu. Opið er kl. 10-
18 laugardag og sunnudag.
Lífið í Chirombo
Skarphéðinn G. Þórisson sýnir ljós -
myndir og muni frá þorpi á strönd
Malavívatns í Nýsishúsinu, Reykja -
víkur vegi 74. Opið er kl. 9-22 og kl.
14-19 um helgina. Hann verður á
staðn um og fræðir gesti um lífið í
Chirombo. Skarphéðinn dvaldi með
fjölskyldu sinni 2004-2006 í þorpinu
Chirombo á strönd Malavívatns og er
sýningin afrakstur þess. Hún er
þakklætisvottur til íbúanna fyrir góðar
móttökur og ánægjulegar stundir með
þeim. Hún er líka til að votta að í Malaví
býr glaðlynt og hjartahlýtt fólk.
Menningar- og ferðamálanefnd segir að
kannanir sýni að Hafnfirðingar séu stoltir af
bókasafni sínu og því fagnar nefndin stækk unar -
áformum á bókasafnsreitnum. Hvenær var spurt
um húsaskost bókasafnsins? Er ekki kominn tími
til að druslast upp úr hokurbúskapnum og byggja
almennilega undir upplýsingamiðstöð bæjarins
sem bókasafnið er og á að vera enn frekar en nú.
Sami hugsanagangur er í húsnæðismálum
Ráðhússins, þar á að tjasla og bæta við, dröslast
upp hálfar hæðir en þorið vantar að byggja glæsilegt ráðhús. Vissir
þú að Ráðhúsið á Strandgötu er fyrsta sérbyggða ráðhús landsins?
Er ekki kominn tími til að Hafnfirðingar sýni stórhug og byggi
glæsilegt og reisulegt „Hús fólksins“ þar sem ráðhús, bókasafn,
upplýsingamiðstöð, sýningarsalur og fleira skemmtilegt gæti verið
til húsa. Hús sem fólkið notaði og hefði áhuga á að gera ferð sína í
án þess að þurfa bara að þrasa yfir skipulagi.
Af hverju eigum við ekki stjórnmálamenn með metnað fyrir hönd
bæjarins í þessum málum? Það kostar óhemju fé að reka bókasafn
á mörgum hæðum og það er dýrt að byggja við húsið þarna og
aðgengi almennings er alls ekki gott, fátt um bílastæði og verður
jafnvel verra. Það er langt síðan að ég lagði til við bæjarstjóra að
gefa bæjarbúum Hellisgerði á ný. Hann sagði að það væri svo
sjálfsagt mál að endurreisa Hellisgerði að það væri ekki rétt
afmælisgjög. Þá lagði ég til „Hús fólksins“ sem ég hef nefnt hér. Við
fáum pínulítinn hluta af Hellisgerði í afmælisgjöf. Gott sem vel er
gert. En ég vildi sjá nú þegar unnið er í fjárhagsáætlunargerð að fé
yrði lagt í könnun á mögulegri staðsetningu á „Húsi fólksins“ í
miðbænum. Það gæti orðið tákn fjölmenningar Hafnfirðinga!
Guðni Gíslason
Víðistaðakirkja
3. sunnudagur í aðventu 16. desember
Fjölskylduhátíð kl. 11:00
Hinn árlegi Helgileikur
í flutningi
Stúlknakórs Víðistaðakirkju
undir stjórn Áslaugar Bergsteinsdóttur,
einsöngvara og hljóðfæraleikara,
fermingarbarna, starfsfólks kirkjunnar,
systrafélagskvenna og sóknarnefndarfólks.
Veitingar verða í safnaðarheimilinu á eftir
í boði Systrafélags Víðistaðakirkju.
Allir velkomnir.
www.vidistadakirkja.is
Bragi J. Ingibergsson,
sóknarprestur
Sunnudaginn 16. nóvember – þriðji sunnudagur í aðventu
Jólavaka við kertaljós
í Hásölum kl. 20
Ræðumaður: Lúðvík Geirsson, bæjarstjóri í Hafnarfirði.
Fjölbreytt tónlistardagskrá. Fram koma barna- og unglingakórar kirkjunnar undir
stjórn Helgu Loftsdóttur og kammerkórinn A Cappella undir stjórn Guðmundar
Sigurðssonar. Anna Magnúsdóttir leikur á píanó.
Einnig koma fram einsöngvararnir Örvar Már Kristinsson, Þóra Björnsdóttir og
Jóhanna Ósk Valsdóttir. Hjörleifur Valsson leikur á Stradivariusfiðlu.
Heitt súkkulaði og smákökur eftir vökuna.
Sunnudagaskólar í Hásölum
og Hvaleyrarskóla kl. 11