Fjarðarpósturinn - 13.12.2007, Blaðsíða 4
4 www.fjardarposturinn.is Fimmtudagur 13. desember 2007
Ný gerð korta
Gjafakort
Kaupþings
Kaupþing hefur hafið útgáfu
á nýrri tegund gjafakorts, sem
er þeim kosti búið, að hægt er
að nota það nánast hvar sem.
Ekki eingöngu á Íslandi, heldur
einnig í útlöndum.
Nýja kortið er svipað hefð -
bundnu kreditkorti, sem búið
er að greiða inná fyrirfram. Því
fylgir kreditkortanúmer og því
hægt að nota það til viðskipta á
netinu.
Kortið gildir í a.m.k. ár frá
út gáfudegi og þar sem það er
ekki bundið við eina verslun, er
hægt að nota það í öllum
verslunum sem tengdar eru
beinlínu teng ingu við
greiðslukerfi Vísa. Ekki er
hægt að eyða meiru en greitt er
inn á kortið.
Fyrst um sinn verða kortin
að eins afgreidd í útibúum
Kaup þings, en innan skamms
verður einn ig hægt að kaupa
þau á net inu. Þá verður hægt að
velja um fjölda mynda til að
setja á kortin og líka má koma
með eigin myndir til að setja á
þau. Þetta kemur fram í
tilkyninningu frá Kaupþingi.
Ég á heima
á Hlælandi
Heimilisfangalistinn minn á www.postur.is
gerir þér kleift að vera alltaf með rétt
heimilisföng vina og vandamanna
H
V
ÍT
A
H
Ú
S
IÐ
/
S
ÍA
0
7
-
1
5
3
5
www.postur.is
Fjölmenni var við formlega
opnun á nýrri stöð World Class á
Dalshrauni 1 á laugardaginn. Þar
hefur verið komið fyrir tækjasal í
glæsilegu húsnæði þar sem menn
geta m.a. horft til Bessastaða á
meðan hlaupið er á brettum.
Eigandi World Class er Þrek
ehf. og þar eru hjónin Björn
Leifsson og Hafdís Jónsdóttir í
forystu, Björn er fram kvæmda -
stjóri og Hafdís aðstoðar fram -
kvæmdastjóri.
Meðal gesta við opnunina voru
Róbert Westman, forstjóri Acta -
vis sem var einn áhrifavalda að
því að stöðin var opnuð í Acta -
vis húsinu og Lúðvík Geirsson,
bæjarstjóri en þeir ásamt Birni
Leifssyni tóku fyrstu sprettina á
hlaupabrettum. Strákurinn í
Róberti var ekki langt undan er
hann teygði sig í tækið sem Lúð -
vík hljóp á og jók hraðann hjá
honum, enda vanur að hlaupa hjá
World Class. Bæjarstjórinn
brosti breitt og hlóp bara hraðar.
Í samtali við Fjarðarpóstinn
segir Hafdís Jónsdóttir mjög
gaman að vera komin í Hafnar -
fjörðinn þó tilviljanir hafi ráðið
að stöð var opnuð þar. Hafdís er
fæddur Hafnfirðingur en fluttist
með foreldrum sínum rétt út fyrir
bæjarmörkin á Hraunsholtið í
Garðabæ. Þrátt fyrir það var hún
að eigin sögn mikið í Hafnarfirði
enda rak faðir hannar Jón Boði
Björnsson verslun á Sjónarhóli,
Boðabúð, en í því húsi bjuggu afi
Dísu og amma. Hún var að sjálf -
sögðu tekin með á alla
handbolta leiki með FH ekki síst
þegar föðurbróðir hennar Birgir
lék með liðinu. Hún segist enn
eiga góð tengsl í Hafnarfjörð og
segir að Fríkirkjan í Hafnarfirði
sé hennar kirkja. Hún segir að
stefnan hafi aldrei verið að fara
út fyrir Reykjavík en svo hafi
málin bara þróast þannig að nú
verði opnað í Mosfellsbæ,
Seltjarn ar nesi, Kópavogi auk
Hafn arfjarðar.
Öll aðstaða til líkamsræktunar
á þeim fjölmörgu tækjum sem í
boði eru, er hin glæsilegasta. Í
stöðinni er fullkominn tækja -
salur, búningsherbergi með
gufu baði, barnahorn og veitinga -
sala. Þetta telst lítil vinaleg stöð,
„aðeins“ um 700 m² og aðeins
tækjastöð. Hafdís sagði við -
tökurnar hafi verið mjög góðar
og fyrsti viðskiptavinurinn hafi
beðið við dyrnar þegar opnað
var. Boðið er upp á frían prufu -
tíma í desember og því ætti
engum að vera að vanbúnaði að
líta við og prófa nýju stöðina.
Glæsileg heilsuræktarstöð opnuð
Dísa í World Class á ættir að rekja á Sjónarhól
Hafdís Jónsdóttir ávarpar gesti við opnunina.
L
j
ó
s
m
.
:
G
u
ð
n
i
G
í
s
l
a
s
o
n
Róbert Wessman kitlar pinnann á hlaupabretti bæjarstjórans.
Jón Boði Björnsson og tengdsonurinn Björn Leifsson.
L
j
ó
s
m
.
:
G
u
ð
n
i
G
í
s
l
a
s
o
n
L
j
ó
s
m
.
:
G
u
ð
n
i
G
í
s
l
a
s
o
n
L
j
ó
s
m
.
:
G
u
ð
n
i
G
í
s
l
a
s
o
n
Stekkjarstaur og Giljagaur eru nú báðir komnir til byggða. Hér náðust þeir á mynd ofan Hafnarfjarðar.
Komnir til byggða