Fjarðarpósturinn - 13.12.2007, Side 12
12 www.fjardarposturinn.is Fimmtudagur 13. desember 2007
Foreldrar barna í vímuefnavanda
stuðningur og ráðgjöf
Percy Stefánsson, ráðgjafi starfar á
mánudögum kl. 12-15 í Gamla bókasafninu
á vegum Foreldrahúss.
Hann veitir foreldrum barna í vímuefnaneyslu
ráðgjöf og stuðning.
Hægt er að panta viðtal í síma 511 6161 og fá þar
nánari upplýsingar, einnig í vimulaus@vimulaus.is
SjálfstæÝisfólk!
Vegna sölu Sjálfstæðishússins að
Strandgötu 29 bjóða sjálfstæðisfélögin í
Hafnarfirði öllu sjálfstæðisfólki í opið hús
laugardaginn 15. des frá kl. 17-19.
Komum - eigum stund saman og kveðjum húsið.
Þorgrímur Þráinsson les úr bók sinni
og félagar úr Stefni spila létta tónlist.
Léttar veitingar í boði.
Bergur Ólafsson bæjarfulltrúi
hefur látið vinna deiliskipu lags til -
lögur sem gera ráð fyrir að hótel
rísi við Suðurgötu með aðkomu
frá Víkingagötunni. Í tillögunni er
gert ráð fyrir að lóðin að
Suðurgötu 18 stækki úr 229 m² í
713,5 m² og að saman lagður
gólfflötur byggingarinnar verði
1700 m² á fjórum hæðum og
nýtingarhlutfall lóðarinnar verði
2,38. Núverandi stærð er 453 m².
Tillagan var kynnt á forstigs
kynningarfundi fyrir skömmu og
komu fram fjölmargar athuga -
semdir frá íbúum í nágrenninu
og rekstraraðilum. Helst var
gagnrýnt að svæðið þyldi ekki þá
auknu umferð sem af rekstri
hótels yrði, bílastæðum fækkar
frá því sem nú er og að bygging -
in verði allt of há. Vegghæð
hússins hækkar nokkuð að
Suðurgötu og mænishæð hækkar
um 90 cm auk þess sem lyftuturn
verður nokkru hærri.
Íbúar í nágrenninu, sérstaklega
á Suðurgötu 24 og 28 töldu
ámælisvert að ekki hafi verið
brugðist við athugasemdum
sínum um lagfæringu á aðkomu
og töldu hótel skerða enn frekar
aðkomu að sínum húsum.
Bergur Ólafsson sagðist skilja
sjónarmið íbúa en taldi að
vandamálið ykist ekki við
tilkomu hótels og benti á að hægt
væri að breyta húsinu í íbúðir án
nokkurra skipulagsbreytinga
sem þó kallaði á fjölgun bíla.
Á heimasíðu Hótels Kiljan
segir að hótelið verði opnað 17.
maí nk. og þar sé m.a. í boði
„free parking space“ eða frí bíla -
stæði.
Vill tvöfalda stærð gömlu
Prentsmiðjunnar og breyta í hótel
Íbúar í nágrenninu afhenda bæjarstjóra mótmæli
Skipulagið kynnt á opnum forstigskynningarfundi.
L
j
ó
s
m
.
:
G
u
ð
n
i
G
í
s
l
a
s
o
n
Núverandi
mænishæð
Lenging húss
Núgildandi skipulag Tillaga að nýju skipulagi
28
28
Áttan
Trönuhrauni 10 — Ekkert *** kjaftæði!
OD-Avenue á Áttunni í kvöld, fimmtudag
Frítt inn, kaldur á 350 og 2 fyrir einn á skotum
Byrjum kl. 22
Sunnudagur 16. desember:
Liverpool - Manchestur United kl. 13.30
Arsenal - Chelsea kl. 16
Borgari, franskar og gos á 1000 kr.
— með öli á 1200 kr.
Úr jólaþorpinu
Það var ágæt stemmning í
jólaþorpinu í snjónum á laugar -
daginn og tónlistaratriði frá
Félags miðstöðinni Ásnum vakti
athygli enda spiluðu þarna ungir
og efnilegir drengir.
Jólaþorpið verður opið um
helgina kl. 12-18 og skemmti -
dagskrá er frá kl. 14.
F
j
a
r
ð
a
r
p
ó
s
t
u
r
i
n
n
0
6
0
8
–
©
H
ö
n
n
u
n
a
r
h
ú
s
i
ð
e
h
f
.