Fjarðarpósturinn - 20.12.2007, Side 4
4 www.fjardarposturinn.is Fimmtudagur 20. desember 2007
Sendum
félagsmönnum,
fjölskyldum þeirra og
landsmönnum öllum
hugheilar jóla- og
nýárskveðjur
Félag iðn- og tæknigreina
Síðustu daga hafa veður verið
válynd hér á landi. Oftar en ekki
hafa björgunarsveitir landsins
verði í miðdepli fjölmiðlanna
vegna þess mikla
starfs sem þær vinna.
Á dögum sem þessum
þykir okkur sjálfsagt
að menn og konur
innan hreyfingarinnar
hjálpi okkur hinum.
Það er hinsvegar þann -
ig að þrátt fyrir góðan
vilja þeirra sem í
hreyfingunni starfa að
þá er alltaf erfiðara og
erfiðara að halda úti starf sem -
inni. Tækjakostur er dýr og fjár -
magn af skornum skammti þó að
ýmsir hlaupi undir bagga. Það er
því á þessum tímum, tímum
vályndra veðra, sem ég hvet
bæjarbúa að hugsa til Björg unar -
sveitar Hafnarfjarðar.
Björgunarsveitin stendur í
stór ræðum, er að byggja nýjar
starfs stöðvar við Hvaleyrarlón,
auk þess sem Slysavarnarfélagið
Lands björg er að byggja glæsi -
legustu og öruggustu flugelda -
geymslu á landinu á Hellna -
hraun ssvæðinu hér í bæ.
Björgunar sveitin byggir á göml -
um grunni, grunni Slysavarnar -
félagsins Fiskakletts og Hjálpar -
sveitar skáta í Hafnarfirði.
Það er því ekki að ósekju að ég
hvet bæjarbúa að hugsa til
Björg unarsveitarinnar nú um
hátíðarnar. Ég vill ekki gera upp
á milli þeirra og Skógræktar -
félags Hafnarfjarðar í jólatré -
sölunni, enda vilja sumir ein -
göngu hafnfirsk jóla -
tré. Hins vegar er það
flugelda salan sem
skiptir Björg unar -
sveit ina mestu – Hafn -
firðingar hugsið til
þeirra þegar kemur að
flugelda kaupum. Það
er okkur mikil vægt að
hafa öfluga liðsmenn í
okk ar sveit og stuðn -
ingur bæjarbúa skiptir
miklu. Munum að það leggja
margir á sig ótrúlegar fórnir
okkur til handa við björgunar -
störf – fórnfýsi er þeirra auð -
kenni. Slysavarnarfélagið Lands -
björg verður 80 ára í janú ar n.k.
það segir okkur allt um það
mikla starf sem unnið hefur verið
að.
Um leið og ég óska bæjar -
búum gleðilegrar hátíðar og
gæfuríks komandi árs vona ég að
bæjarbúar sinni verslunum í
heimabyggð, því þessi tími er
þeim mikilvægur – margir
byggja afkomu sína á þessum
stutta tíma – munum þó að
mikil vægi jólahátíðarinnar má
ekki hverfa í kaupgleði eða
efnishyggju. Gleðilega jólahátíð.
Höfundur er bæjarfulltrúi og
alþingismaður.
Björgunarsveit Hafnarfjarðar
– Stöndum með okkar fólki
Gunnar
Svavarsson
í síðustu viku bárust neyðar -
línunni alls 112 foktil kynningar í
Hafnarfirði. Mikill erill hefur
verið hjá lögreglu og björgunar -
sveit um þessa óveðursdaga.
„Starf björgunarsveitamanna
hef ur verið ómetanlegt þegar
hemja hefur þurft, allt frá lausa -
munum uppí heilu húsþökin,“
segir Sævar Guðmundsson,
aðal varðstjóri á lögreglustöðinni
í Hafnarfirði.Mikið tjón hefur
orðið þessa daga, á bifreiðum og
húsum auk annarra muna sem
hafa fokið og skemmst.
Í óveðrinu sem gekk yfir fauk
15 metra langt ljósa auglýs -
ingarskilti sem var fast framan á
hús Pitstop við Helluhraun.
Starfsmenn fundu skiltið eftir
langa leit fyrir framan bif reiða -
verkstæði Högna við Hjalla -
hraun. Segja starfsmenn hjá
Pitstop með ólíkindum að enginn
bíll hafi orðið fyrir skemmdum
því það séu ekkert nema bíla -
tengd fyrirtæki í húsa lengjunni
og því nokkrir tugir bíla allt um
kring.
112 tilkynningar
Mikill erill hjá lögreglu og björgunarsveitarfólki
Húsið á þessum sendibíl splundraðist í rokinu á Flatahrauni.
Ástjarnarkirkja
Aðfangadagur jóla - 24. desember
Aftansöngur kl. 18
Hátíðartón sr. Bjarna Þorsteinssonar. Prestur sr. Bára Friðriksdóttir,
tónlistarstjóri Helga Þórdís Guðmundsdóttir. Einsöngur Eyjólfur
Eyjólfsson og spilar hann einnig á þverflautu, undirleikur Andri
Eyjólfsson. Kirkjukórinn leiðir safnaðarsöng.
Annar í jólum - 26. desember
Fjölskylduguðsþjónusta kl. 11
Útvarpsguðsþjónusta. Prestur sr. Bára Friðriksdóttir, tónlistarstjóri Helga
Þórdís Guðmundsdóttir. Ingibjörg Sigurrós Gunnarsdóttir leikur á
þverflautu. Lesin jólasaga og fallegu jólasálmarnir sungnir.
Barnafjölskyldur sértaklega velkomnar.
Gamlársdagur - 31. desember
Aftansöngur kl. 16
Hátíðartón sr. Bjarna Þorsteinssonar. Prestur sr. Bára Friðriksdóttir,
tónlistarstjóri Helga Þórdís Guðmundsdóttir.
Einsöng flytur Áslaug Fjóla Magnúsdóttir. Það er góð leið til að ljúka
árinu og taka á móti nýju í Guðs húsi.
www.astjarnarkirkja.is
Leikskólabörn í jólagleði í boði
Kaupþings í Firði
L
j
ó
s
m
.
:
G
u
ð
n
i
G
í
s
l
a
s
o
n