Fjarðarpósturinn - 20.12.2007, Qupperneq 6
6 www.fjardarposturinn.is Fimmtudagur 20. desember 2007
Hafðu samband og fáðu frekari upplýsingar um Hafnarfjörð og
margvíslega starfsemi á vegum sveitarfélagsins hjá þjónustuveri
bæjarins í síma 585 5500 og á heimasíðunni www.hafnarfjordur.is
VELKOMIN TIL HAFNARFJARÐAR!
Tillaga að breytingu á deiliskipulagi
Hvaleyrarholt suð-austur,
Gróðurstöð Þorlákstúni
Bæjarstjórn Hafnarfjarðar, samþykkti á fundi sínum þann 11. des em -
ber 2007 að auglýsa tillögu að breyttu deiliskipulagi Hvaleyrarholt
suð-austur, Gróðurstöð Þorlákstúni í Hafnarfirði, í samræmi við 25. gr.
skipulags- og byggingarlaga nr. 73/1997 m.s.br.
Breytingin felst í að núgildandi byggingarreitur fyrir gróðurhús næst
Suðurbraut er færður innar á lóðina, inn fyrir núverandi göngustíg.
Byggingarreit fyrir áhaldahús er snúið. Nýr byggingarreitur kemur
austan við innkeyrslu á lóð, við mót Lyng- og Móabarðs, fyrir aðflutt
hús á einni hæð sem hvíli á steyptum sökkli með skriðkjallara.
Hæðarkóti mænis fari ekki yfir 42 m. Byggingarreitir fyrir gróðurhús
eru sameinaðir og akstursleiðir innan lóðar breytast. Mön meðfram
Reykjanesbrautinni verður hluti af uppfyllingu svæðisins.
Deiliskipulagið verður til sýnis í þjónustuveri Hafnarfjarðarbæjar,
Strandgötu 6, frá 20. desember 2007 – 22. janúar 2008. Nánari
upplýsingar eru veittar á skipulags- og byggingarsviði.
Þeim sem telja sig hagsmuna eiga að gæta er gefinn kostur á að gera
athugasemdir við breytinguna og skal þeim skilað skriflega til
skipulags- og byggingarsviðs Hafnarfjarðarbæjar, eigi síðar en 5.
febrúar 2008. Þeir sem ekki gera athugasemd við breytinguna teljast
samþykkir henni.
Skipulags- og byggingarsvið Hafnarfjarðar.
Auglýsing um skipulag
– Hafnarfjarðarbær
Á fundi bæjarstjórnar Hafnarfjarðar á þriðjudaginn 11. desember var
deiliskipulagstillaga fyrir lóðirnar Strandgata 26 - 30 samþykkt.
Málinu er því lokið og verður það sent Skipulagsstofnun til yfirferðar
samkvæmt 26. grein skipulags- og byggingarlaga nr. 73/1997.
Til að koma til móts við athugasemdir verður byggingin mest sjö
hæðir en var níu í þeirri tillögu sem auglýst var.
Allir þeir sem gerðu athugasemdir við auglýsta tillögu fá send svör frá
Skipulags- og byggingarsviði.
Skipulags- og byggingarsvið Hafnarfjarðar.
Strandgata 26 -30
Söngkeppni Öldunnar í Öldu -
túnsskóla var haldin á mánu dag -
inn. Keppendur völdu sér lag til
flutnings og voru lögin fjöl -
breytt.
Þær Elín, Valgerður og Eygló
sigruðu í keppninni er þær sungu
lagið Escape sem Enrique Igles -
ias samdi og gerði frægt. Þær
vöktu hrifningu með skemmti -
legri sviðsframkomu en ekki er
alltaf auðvelt að stíga á svið og
syngja fyrir félaga sína.
Í öðru sæti varð Sandra Björk
fyrir glæstan söng á Janis Joplin
laginu Mercedes Bens sem hún
söng án undirleiks.
Sungu Escape til sigurs
Söngkeppni Öldunnar var á mánudag
Sandra Björk.
L
j
ó
s
m
.
:
G
u
ð
n
i
G
í
s
l
a
s
o
n
Elín, Valgerður og Eygló á sviði.
L
j
ó
s
m
.
:
G
u
ð
n
i
G
í
s
l
a
s
o
n
Nemendur í Hraunvallaskóla í
samstarfi við Foreldrafélag skól -
ans, hafa unnið að gerð jóla búta -
saumsteppa síðastliðinn vetur og
var lokið við gerð þeirra nú fyrir
jólin.
Teppin eru sjö talsins, eitt
teppi fyrir hvern árgang í skól -
anum. Hvert teppi inniheldur
mynd af hverj um árgangi ásamt
bútum sem allir nemendur skól -
ans hönnuðu.
Teppin prýða nú veggi mat -
salarins sem gefa honum jólalegt
yfirbragð.
Nemendur saumuðu
jólabútasaumsteppi
Teppin skreyta nú matsal Hraunvallaskóla
Jólabútasaumsteppin á veggjum Hraunvallaskóla.
Kæru foreldrar!
Tökum höndum saman um að gera gamlárskvöld
og áramót að ánægjulegri upplifun sem skilur
eftir góðar minningar.
Rannsóknir sýna að samvera unglinga með
fjölskyldum sínum dregur úr neyslu áfengis og
annarra vímuefna.
Gerum okkar til að minnka líkur á að börnin okkar
lendi í aðstæðum sem þau ráða ekki við.
Verum börnum okkar góðar fyrirmyndir
og njótum áramótanna saman.
Verslum í Hafnarfirði!
. . . og komumst í jó laskap!