Fjarðarpósturinn - 20.12.2007, Síða 17
www.fjardarposturinn.is 17Fimmtudagur 20. desember 2007
Enn á ný leitar aftur á hugans mið
ómur sálma og ljóða.
Jólin koma með tilhlökkun, fögnuð og frið,
flytjandi trú á hið góða.
Hafnarfjörður í logandi ljósadýrð,
lýsir upp myrkrið svarta.
Jólastemning, á blað hvorki skráð né skýrð,
en skrifuð í hvers manns hjarta.
Hörður Zóphaníasson.
„Á helgum jólum biðjum við
fyr ir þeim sem eru fjarri ást -
vinum um þessi jól, þeim sem
sakna heimilis, ástvina, fjöl -
skyldu. Lát þau finna að þú yfir -
gefur þau ekki. Minnstu sérstak -
lega þeirra sem sorgin sækir
heim mitt í gleði aðventu og
jóla. Guð, láttu ekki jólagleði
okk ar verða sjálflæga og sjálfs -
elska. Hjálpa okkur að tendra
ljós þar sem þess er þörf, í
skugga og myrkri.“
Þessi fallega bæn minnir okk -
ur á að staldra við í erli jóla -
undir búnings, horfa í kringum
okkur, huga að náunganum og
minnast þess að skugga getur
brugðið á hátíð ljóss og friðar
hjá þeim sem sorgin sækir heim.
Mitt í undirbúningi jólanna er
líka gott að hugleiða trúna og
rækta hana. „Rækta trúna með
því að stökkva af rökbrettinu,
svífa í loftinu og vona að það sé
vatn í guðslauginni.“ Eins og
bent er á í bókinni Gæfuspor,
gildin í lífinu. Þeir sem trúa á
Guð opna hjarta sitt og treysta
því að vatn sé í guðslauginni. Á
aðventu er hollt að velta fyrir sér
gildum lífsins og í fyrrnefndri
bók eru settir fram vegvísar á
lífsins göngu og vil ég hér vitna
til nokkurra þeirra:
– Elska til að lifa: Elskið hvert
annað. „Eins og ég hef elskað
yður skuluð þér einnig elska
hver annan.“ Ást er dýrmæti.
– Gefa – því gjöfin er leynd -
ardómur velgengni og rósemdar
hjartans. Gjöfin er uppspretta
gæfu og gleði, aðeins sá sem
getur gefið getur öðlast. Guð
elskar glaðan gjafara. Sá sem
gefur með sér verður ríkur.
Aðeins þarf að grípa tækifærin
sem gefast, skynja þörfina og
uppfylla hana. Það er aukaatriði
hvort ástæða gjafarinnar er
hrein umhyggja eða bara
löngun til að bæta eigin líðan,
eða bæði. Gjafir bera ríkulegan
ávöxt.
– Fyrirgefa, því fyrirgefningin
er mótefni sálarinnar gegn
hatri, reiði og gremju. Sá sem
getur fyrirgefið losnar undan
þrúgandi tilfinningum og hann
vonar að iðrun þess sem vann
honum tjón beri ávöxt. Fyrir -
gefningin er aldrei sjálfsögð
heldur er hún gjöf sem er á valdi
þess sem hlotið hefur skaða.
– Muna að hamingjan er ekki
annars staðar. Hún er spunnin
úr aðstæðum sérhvers manns og
kjarki til að taka ákvarðanir um
líf sitt. Hamingjan er hamur.
Hún er ekki óljós tilfinning. Hún
er ekki stundin sem líður, ekki
gleðin sjálf, hún er hamurinn
sem fólk íklæðist. Hamingjan er
ekki annars staðar eða í öðrum,
hún er hér.
– Vera glaður því ekkert undir
sólinni er betra en að snæða,
svala þorsta og vera glaður.
Gleðin er kát sem kið og frísk
sem fiskur, hún fer ekki í mann -
greinarálit og sprettur fram eins
og fugl af hreiðri sínu. Hún er
björtust í litrófi mann legra
tilfinninga. Það albesta við
gleð ina er þó löngunin til að
deila henni með öðrum og að
gefa með gleði.
– Rækta vináttuna – því vinur
eru ekki á hverju strái og fá -
gætur er víst góður vinur.
– Hugsa um dauðann því án
hans hefði lífið ekki gildi.
Já, sannarlega atriði sem vekja
okkur til umhugsunar og vísa
veginn þeim sem bæta vilja líf
sitt.
Á nýju ári gleðjumst við
Hafnfirðingar og fögnum 100
ára afmæli. Þann 1. júní 2008
eru 100 ár liðin frá því að Hafn -
arfjörður fékk kaupstaðar -
réttindi. Afmælisári verður fagn -
að með margvíslegum hætti og
boðið verður upp á fjölda
viðburða allt afmælisárið. Há -
marki ná hátíðarhöldin afmælis -
helgina 29. maí – 1. júní. Ég vil
hvetja Hafnfirðinga og gesti
þeirra til að taka virkan þátt og
njóta þess sem í boði verður á
afmælisári og leggjast á eitt í að
skapa afmælisstemningu
„sem á blað hvorki skráð né skýrð,
en skrifuð í hvers manns hjarta.“
Eins og okkar ágæti Hörður
Zóphaníasson yrkir um jóla -
stemningu hér að framan.
Jólin helg og há,
hlý og ógnarsterk.
Lýsa byggð og ból,
boða kraftaverk.
Drottins dýrðar frið
dreymir þreytta jörð.
Kærleiksstjarna Krists
kyssir Hafnarfjörð.
Hörður Zóphaníasson
Guð veri með ykkur og megi
jólahátíðin færa okkur öllum
birtu og yl og veita þeim styrk
sem misst hafa ástvini eða eiga
um sárt að binda.
Gleðileg jól
Ellý Erlingsdóttir
Jólahugvekja
Ellý Erlingsdóttir, forseti bæjarstjórnar Hafnarfjarðar
Gleðileg
jól
„Guð, láttu ekki jólagleði
okkar verða sjálflæga og
sjálfselska. Hjálpa okkur að
tendra ljós þar sem þess er
þörf, í skugga og myrkri.“