Fjarðarpósturinn - 20.12.2007, Blaðsíða 19
www.fjardarposturinn.is 19Fimmtudagur 20. desember 2007
Brátt munu kirkjuklukkurnar
hringja inn heilaga jólahátíð í
byggðum kristinna manna og
um leið finnum við í hjarta að
há tíðin er gengin í garð. Það er
eitthvað einstakt og ólýsanlegt
við þessa stund á aðfangadag
jóla, þegar hátíðin sjálf hefur
tek ið við af eftirvæntingu að -
vent unnar, þegar friðurinn hefur
tekið við af streitu daganna,
þegar fögnuðurinn verður kvíða,
depurð og sorg yfirsterkari og
þegar ljósið hrekur myrkrið á
burt.
Það er erfitt að lýsa í orðum
því samspili tilfinninga sem við
þá upplifum, er við finnum bet -
ur, en á flestum öðrum stundum,
dýpt þeirra trúartilfinninga sem
bærast í brjósti. Þó veit ég
auðvitað ekki hvort allir kristnir
menn upplifi þessa stund með
þeim hætti, en þykir samt sem
áður líklegt að flestir þeir sem
eiga lifandi trú í hjarta finni hin
sterku hughrif hátíðarinnar
gagntaka sig á þessari stundu.
Fagnaðarboðskapur jólanna
gefur enda tilefni til þess, því
fæðing Frelsarans Jesú Krists í
heiminn snertir líf hvers og eins
persónulega, leggur nýjan grund -
völl, veitir nýja stefnu og gefur
nýtt takmark. Í Kristi er fólginn
kærleikur Guðs, sem ekki gat
horft upp á fallvalt mannkyn
eigra stefnulaust um án nokkurs
markmiðs, og því sendi hann í
heiminn leiðsögumann sem
leiðir rétta leið burt frá glötun til
eilífs lífs.
Þetta er fagnaðarríkur boð -
skap ur sem öllum er hollt að
hug leiða á fæðingarhátíðinni og
leyfa þannig hinum sanna anda
að fylla hug og sál, kærleikanum
að láta ljós sitt skína í samfélagi
fólks og þakklætinu að birtast í
orðum sem beint er til skaparans
og þeirra sem hjarta standa nær.
Aðstæður fólks geta verið
mismunandi og ef till vill ekki
eins og best verður á kosið þegar
hátíðin gengur í garð. Það er
margt sem hrjáir á þessum tíma
sem öðrum, svo sem erfið veik -
indi, sorg og missir, einsemd og
ýmiss konar erfiðleikar aðrir. En
jólin koma samt. Þau ganga í
garð á sama tíma og venjulega ár
hvert og færa heiminum fagnað -
ar boð skapinn hvernig sem ástatt
er.
Þess vegna er svo mikilvægt
að leyfa hinum sterku hrifum
sem hátíðin kallar fram, að fá
útrás í fjölbreytileika tilfinning -
anna og njóta sín í auðmýkt trúar
og þakklætis. Því Kristur kom
sannarlega til þess að vera með
okkur í ólíkum aðstæðum,- og
sérstaklega vill hann veita þeim
styrk og stuðning, hjálp og
hugg un sem búa við þær að -
stæð ur sem enginn sækist eftir
að komast í, en hafa þó orðið
hlut skipti um lengri eða
skemmri tíma. Þá getur Kristur
best veitt lausn, ljós og líf.
Það líður senn að hinni himn -
esku stund er kirkjuklukkurnar
fara að hringja inn heilög jól. Þá
ættum við einnig að láta
kirkjuklukkurnar í helgidómi
hjartans hringja inn hátíð um jól,
til þess að fagna því að frelsarinn
er fæddur og til þess að bjóða
hann velkominn til okkar. Því
það er hann sem kemur með
jólin inn í bústaði hjarta og
heimilis og fyllir af friði og
fögnuði.
Gleðileg jól!
Bragi J. Ingibergsson
Þegar hátíðin gengur í garð
Sr. Bragi J. Ingibergsson, sóknarprestur í Víðistaðakirkju:
Síðastliðin tíu ár hefur verslunin Úr & Gull, í
verslunarmiðstöðinni Firði í Hafnarfirði verslað með
vönduð úr og skartgripi. Fyrir skömmu fór verslunin í
gegnum gagngerar endurbætur þar sem allar
innréttingar búðarinnar voru endurnýjaðar og útliti
búðarinnar gjörbreytt. Þessi breyting hefur gert það
að verkum að búðin er í dag ein glæsilegasta úra- og
skartgripaverslun landsins.
Úrval verslunarinnar er einkar glæsilegt og er þar
meðal annars hægt að fá armbandsúr frá mörgum
þekktum framleiðendum á borð við Raymond Weil,
Seiko, Pulsar, DKNY, Fossil, Kenneth Cole, D&G,
Armani og Diesel. Enn fremur skartgripi frá Morellato,
Zoppini, Miss Sixty, Molecole, Manuel Zed, Rochet,
Sector, glæsilega demantsskartgripi og mikið úrval af
skartgripum úr gulli og silfri. Íslenskt handverk og
hönnun frá gullsmiðunum Sigurð Inga Bjarnasyni með
hönnun sína Sign of Iceland, Dýrfinnu Torfadóttur og
Elínu Guðbjartsdóttur.
Stórglæsileg
úra- og skartgripaverslun
KOMIÐ • SJÁIÐ • SANNFÆRIST
L
j
ó
s
m
.
:
B
r
a
g
i
J
.
I
n
g
i
m
a
r
s
s
o
n