Fjarðarpósturinn - 23.04.2008, Blaðsíða 2
Skátamessa í Hafnarfjarðar -
kirkju og skrúðganga
Skátamessa verður í Hafnar fjarðar -
kirkju á sumardaginn fyrsta kl. 13.
Prestur er sr. Þórhallur Heim is son og
ræðumaður er skátinn Gunnar Svav -
ars son, þingmaður og bæjar fulltrúi.
Skrúðganga undir forystu Skáta -
félagsins Hraunbúa verður frá Hafnar -
fjarðarkirkju kl. 13.45. Gengið upp
Lækjargötu, Sólvangsveg, vestur
Álfaskeið, Arnarhraun, niður Reykja -
víkur veg, Strandgötu og að Thors plani
þar sem verður vegleg dagskrá í
umsjón skátafélagsins, kassaklifur,
andlitsmálun, sumarleikir og fl.
Kaffisala, kleinur og fl.
kl. 14.15 spila félagar úr Lúðrasveitinni
kl. 14.30 syngja nemendur Sönglistar
og dansa. Kl. 14.40 dansa nemendur
Listdansskóla Hafnarfjarðar atriði úr
Mary Poppins. Kl. 14.50: Dýrin í
Hálsaskógi. Kl. 15.10 Pollaönk og kl.
15.30 leikur hljómsveitin Vichy Pollard.
Víðavangshlaup kl. 11
Víðavangshlaup Hafnarfjarðar verður
að venju á sumardaginn fyrsta og er í
umsjón FH. Það hefst kl. 11 en keppt
er í 7 flokkum, sá yngsti er fyrir 6 ára
og yngri.
Sænsk og spænsk í Bæjarbíói
Á laugardaginn kl. 16 sýnir Kvik -
myndasafn Íslands spænsku dans -
myndina Flamenco (1995) eftir
Carlos Saura. Myndin sýnir 13 mis -
munandi flam enco dansa án nokkurra
truflana frá flóknum hreyf ingum
myndavélar eða sögu þræði.
Á þriðjudaginn kl. 20 verður sýnd
ítalska kvikmyndin Umberto D frá
1952 í leikstjórn Vittorio de Sica.
Myndin er ein af þekktari kvikmyndum
ítölsku nýraunsæisstefnunnar, við -
fangsefnið enda mjög í hennar anda.
Ellilífeyrisþeginn Umberto Domenico
Ferrari er einstæðingur sem berst fyrir
lífi sínu í köldu umhverfi stór borgar -
innar á vályndum tímum eftir stríðs -
áranna.
Hafnarfjarðarmeistaramót í
sundi í Sundhöllinni
Bæjarbúum er boðið að koma og
horfa á sundmenn SH keppa í
Hafnarfjarðarmeistaramótinu í sundi
sem fram fer í Sundhöll Hafnarfjarðar
á laugardaginn og hefst keppni kl. 9
og stendur fram eftir degi.
Rafn Hafnfjörð sýnir
ljósmyndir í Start Art
Hafnfirski ljósmyndarinn með
rammhafnfirska nafnið, Rafn Hafnfjörð
sýnir ljósmyndir í listamannahúsinu
Start art á Laugavegi 12b í Reykjavík.
Sýningin ber nafnið Dverghamrar og er
þar að geyma ljósmyndir frá
Dverghömrum á Síðu. Rafn fæddist í
Hafnarfirði 1928 og ólst upp við
Hamarinn sem var hans griðarstaður
og töfraheimur og hefur síðan heillast
af náttúrunni.
Víðistaðatún – deiliskipulag
kynningarfundur
Miðvikudaginn 30. apríl kl. 17.30
verður haldinn kynn ingarfundur á
tillögu að breyttu deiliskipulagi Víði -
staðasvæðisins þar sem gert er ráð
fyrir hjólabrettagarði, þjónustu húsi
fyrir tjaldsvæði, svæði fyirr strandblak
og brennustæði.
Fundurinn verður haldinn í fyrir lestra -
sal Víðistaðaskóla.
2 www.fjardarposturinn.is Miðvikudagur 23. apríl 2008
Útgefandi: Keilir ehf. útgáfufélag, kt. 480307-0380
Fjarðarpósturinn, Bæjarhrauni 2, 220 Hafnarfirði
Vinnsla: Hönnunarhúsið ehf., umbrot@fjardarposturinn.is
Ritstjóri og ábm.: Guðni Gíslason
Ritstjórn: 565 4513, 896 4613, ritstjorn@fjardarposturinn.is
Auglýsingar: 565 3066, auglysingar@fjardarposturinn.is
Prentun: Steinmark ehf. Dreifing: Íslandspóstur
ISSN 1670-4169 – Vefútgáfa: ISSN 1670-4193
www.fjardarposturinn.is
Nú er sumar að ganga í garð. Bæjarbúar fjöl -
menna í skrúðgöngu um götur bæjarins, skemmti -
legur siður þó ég sakni íbúanna á hliðarlínunum
með kökur og nammi til að bjóða krökkunum í
göngunni. Kannski það komi seinna.
En nú erum við í vondum málum með hlut okk -
ar í Hitaveitu Suðurnesja - eða hvað? Alla vega
mun Orkuveita Reykjavíkur eiga erfitt með að
kaupa hlutinn eftir úrskurð Samkeppnis stofn unar
og enn höfum við ekki fengið neitt ann að tilboð
svo við verðum bara að gráta vaxtatapið. Það er greini lega málið að
hrökkva eða stökkva í pólitík.
Hvenær verður Reykjanesbrautin færð og tvöfölduð við álverið?
Ekki alveg strax ef marka má fréttir frá Vegagerðinni. Þar telja menn
óvissu um hver eigi að bera kostnaðinn við færsluna þar sem íbúar
samþykktu ekki álversstækkun. Lúðvík bæjarstjóri sagði í samtali að
búið sé að samþykkja aðalskipulag sem geri ráð fyrir nýrri
staðsetningu svo ekki sé eftir neinu að bíða en nefnir ekki hvort átök
séu um kostnaðarskiptingu. Það er annars ótrúlegt hvað við hér í bæ
höfum verið ósamstíga í óskum okkar um afdrif Reykjanes braut -
arinnar. Enn tala menn um ofanbyggðaveg sem verður ósköp lítið
ofan byggða og verður brátt jafn umdeildur og Reykjanesbrautin.
Það þarf alltaf að gera ráð fyrir að stofnæðir fái aukna nýtingu og því
þarf að gera ráðstafanir strax. Við viljum komast greiðlega til og frá
vinnu og þrengingar á stofnæðum hjálpa okkur ekki við það. Það þarf
að fórna plássi og kosta mótvægisaðgerðir til þess að hægt sé að
koma fyrir mislægum gatnamótum í stað hringtorga sem eru ekki alls
staðar heppileg. Spáð er góðu sumri. Tökum fram hjólin og hjálmana
og hjólum eða göngum eins mikið og við getum. Gleðilegt sumar!
Guðni Gíslason
www.hafnarfjardarkirkja.is
24. apríl - Sumardagurinn fyrsti:
Skátaguðsþjónusta kl. 13
Prestur: sr. Þórhallur Heimisson
Ræðumaður: Gunnar Svavarsson, bæjarfulltrúi og þingmaður
Organisti: Guðmundur Sigurðsson. Skátar leiða söng
Sunnudagurinn 27. apríl, Bænadagur Þjóðkirkjunnar:
Messa kl. 11
Prestur: sr. Gunnþór Þ. Ingason
50, 60 og 70 ára fermingarbörn heimsækja kirkjuna
Kantor: Guðmundur Sigurðsson. Barbörukórinn í Hafnarfirði syngur
Veisla eldri fermingarbarna í Hásölum
Víðistaðakirkja
Sumardaginn fyrsta, 24. apríl
Blómamessa kl. 13
á sumardaginn fyrsta kl. 13.00
Stúlknakór Víðistaðakirkju syngur
undir stjórn Áslaugar Bergsteinsdóttur.
Organisti: Arngerður María Árnadóttir.
Ferming fer fram í messunni.
Sunnudagurinn 27. apríl
Barnaguðsþjónusta kl. 11
Fjölbreytt stund fyrir alla fjölskylduna
www.vidistadakirkja.is
Verið velkomin!
Bragi J. Ingibergsson,
sóknarprestur
Pípulagnir
Kristófér
Íslandsmeistari
Kristófer Þorgeirsson frá Iðn -
skólanum í Hafnarfirði varð
Íslandsmeistari í pípulögnum á
Íslandsmóti í iðngreinum sem
fram fór í Laugardalslaug. Alls
var keppt í 13 iðngreinum auk
þess sem fleiri greinar voru
kynntar.
Norðurlandameistari í pípu -
lögnum 2007, Árni Már Heimis -
son afhenti verðlaunin.
Alcan tekur
upp merki Rio
Tinto Alcan
Verksmiðjuheitið
áfram ÍSAL
Alcan á Íslandi hf., sem rekur
álverið í Straumsvík, mun fram -
vegis starfa undir merkjum Rio
Tinto Alcan. Íslenska fyrirtækið
heitir enn Alcan á Íslandi hf. og
verksmiðjuheitið innan Rio Tinto
Alcan samsteypunnar er áfram
ISAL.
Rio Tinto er alþjóðlegt leiðandi
námafélag sem keypti Alcan
Inc., móðurfélag Alcan á Íslandi,
seint á síðasta ári og er
álframleiðsla fyrirtækisins rekin
undir sameinuðum nöfnum
félaganna.
Hans Adolf og
Svanberg
skólaskák -
meistarar
Hafnarfjarðar
Metþátttaka var á Skóla -
skákmóti Hafnarfjarðar en um
130 manns tóku þátt. Svanberg
Már Pálsson, Hvaleyararskóla
sigraði í eldri flokki en Hans
Adolf Linnet, Setbergsskóla í
yngri flokki
Tefldar voru fjórar umferðir en
síðan tefldu efstu menn um efstu
sætin. Það voru Svanberg Már
Páls son, Hvaleyrarskóla, og
Aron Singh Helgason, Víði -
staðaskóla, sem urðu í efstu
tveimur sætum eldri flokks og
fara því á kjördæmamót í næstu
viku. Hið sama gera þeir Hans
Adolf Linnet og Jón Hákon
Richter, Öldutúnsskóla sem varð
í öðru sæti.
Nýja merki fyrirtækisins.
Svanberg og Hans Adolf.
L
j
ó
s
m
.
:
G
u
ð
n
i
G
í
s
l
a
s
o
n