Fjarðarpósturinn


Fjarðarpósturinn - 23.04.2008, Blaðsíða 10

Fjarðarpósturinn - 23.04.2008, Blaðsíða 10
10 www.fjardarposturinn.is Miðvikudagur 23. apríl 2008 gjafir fríar prufur Elma s. 846 6447 – 555 4750 www.betralif.am Ný stjórn var kjörin á aðalfundi Félags eldri borgar í Hafnarfriði á aðalfundi þess fyrir skömmu. Nýju stjórnina skipa: Jón Kr.Óskarsson formaður, aðr - ir stjórnarmenn eru Hjördís Guðbjörnsdóttir, Erna Fríða Berg, Gunnar Hólmsteinsson, Alm ar Grímsson, Martha Ingi - mars dóttir, Kristinn Guðnason varamenn Sveinn Guðbjartsson, Margrét Guðmundsdóttir. Síðan hefur stjórnin skipt með sér verkum þannig, vara for - maður er Hjördís Guðbjörns - dóttir, ritari er Erna Friða Berg, gjald keri er Gunnar Hólm - steinsson. Meðstjórnendur eru Almar Grímsson, Martha Ingi - mars dóttir og Kristinn Guðna - son. Varamenn í stjórn eru Sveinn Guð bjartsson og Margrét Guð - mundsdóttir. Á aðalfundinum var fráfarandi formanni, Sigurði Hallgrímssyni þökkuð góð störf sem og Margréti Guðnadóttur sem ekki gaf kost á sér og voru þau leyst út með blómvöndum. Innan félagsins eru starfandi samtals níu nefndir, margir koma að starfi félagsins, sem mun kappkosta að vera með öflugt starf í félags- og baráttu málum eldri borgara. Jón Kr. sagði eitt af áherslumálum nýrrar stjórnar vera að fjölga félögum. Skv. tölum Hagstofunnar eru 3230 einstaklingar 60 ára og eldri búsettir í Hafnarfirði. Jón Kr. Óskarsson nýr formaður FEBH Vill fjölga félagsmönnum Sokkabuxur, leggings og sokkar í flottum sumarlegum litum fyrir káta krakka á öllum aldri. Fæst í flestum apótekum. Aftari röð f.v.: Kristinn Guðnason, Sveinn Guðbjartsson, Hjördís Guðbjörnsdóttir, Almar Grímsson, Martha Ingimarsdóttir og Gunnar Hólmsteinsson. Fremst f.v. eru Erna Fríða Berg, Jón Kr. Óskarsson og Margrét Guðmundsdóttir. Áslandsskóli styrkti ABC hjálparstarf um 190 þúsund krónur í síðustu viku. Pening - arnir eru til komnir í kjölfar menningar hátíðar skólans en þar starfræktu elstu nemendur skól - ans kaffihús og nemendur í 5. og 6. spiluðu ágóðaknattspyrnu. Áslandsskóli styrkir ABC árlega en fjármagnið rennur til heimila „Litlu ljósanna“ á Indlandi. Þar er nú til að mynda verið að byggja bakarí. Nemendur styrktu ABC hjálparstarf Leifur Garðarsson, skólastjóri afhendir fulltrúa ABC styrkinn. Sl. fimmtudag var undirritaður þjónustusamningur á milli Hafn - ar fjarðarbæjar og Bjarga leik - skóla ehf um leikskólastarf og rekst ur ungbarnaleikskóla í Hafnar firði sem mun heita Leik - skól inn Bjarmi. Í þjónustusamn - ingnum felst að bærinn leggur til húsnæði og rekstrarfé til að börn í Hafnarfirði geti dvalið á leik - skólanum með sama tilkostnaði og í leikskólum reknum á vegum bæjarins en Bjargir leikskólar ehf annast framkvæmdina. Leik - skólinn mun taka til starfa í byrj - un næsta skólaárs. Eigendur Bjarga leikskóla ehf eru leikskólakennararnir Helga Björg Axelsdóttir og Svava Björg Mörk en þær starfa nú í leikskólanum Stekkjarási. Leikskólinn Bjarmi er 24 barna leikskóli sem mun sérhæfa sig í starfi með börnum á aldr - inum 9-18 mánaða. Skólinn mun starfa eftir starfsaðferðum Reggio Emilia þar sem áhersla er á mikilvægi þess að sjá kosti, styrk og hæfileika hvers barns og veita því fjölbreytta möguleika. Fyrsta skólaárið verður unnið þróunarstarf með áherslu á nám og umhyggju yngstu barna í leikskólum. Skólastjórnendur eru Helga Björg Axelsdóttir og Svava Björg Mörk. Leikskólinn verður staðsettur á Smyrlahrauni, við hliðina á Bjark ar húsinu. Samið um ungbarnaleikskóla 9-18 mánaða börn á leikskólanum Bjarma við Smyrlahraun F.v.: Magnús Baldursson, fræðslustjóri, Helga Björg Axelsdóttir og Svava Björg Mörk frá Bjarma, Lúðvík Geirsson, bæjarstjóri og Ellý Erlingsdóttir, formaður fræðsluráðs.

x

Fjarðarpósturinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fjarðarpósturinn
https://timarit.is/publication/945

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.