Fjarðarpósturinn - 23.04.2008, Qupperneq 6
Þriðja Landsbankamót Hesta -
mannafélagsins Sörla var haldið
um helgina á Sörlastöðum.
Þátttaka var mikil og var keppt í
tíu flokkum barna og fullorð -
inna.
Knaparnir léku við hvern sinn
fingur og hestarnir við hvurn
sinn fót enda var hestakostur
mikill.
Dagur Brynjólfsson, áhuga -
ljósmyndari var á staðnum og
tók þessar skemmtilegu myndir.
6 www.fjardarposturinn.is Miðvikudagur 23. apríl 2008
Síðasta vetrardag, 23. apríl kl. 20 að Flatahrauni 29
Lokahóf
Stangaveiðifélagsins
Nú er komið að því að enda veturinn með stæl,
Dagskráin verður með hefðbundnu sniði.
Dr. Jónas kemur í heimsókn með kynningu á
alþekktum flugum sínum ásamt fyrirlestri um
sleppingu stórlaxa.
Einnig verður happadrættið á sínum stað með
glæsilegum vinningum.
Hvetjum veiðimenn og konur til þess að mæta!
Húsið opnað kl. 20 — Frítt inn!
Stangaveiðifélag Hafnarfjarðarwww.svh.is
Orlofsnefnd húsmæðra
í Hafnarfirði
Í sumar verður farið á
Vesturland
20. - 24. ágúst
Kynningar- og skráningarfundur verður í Álfafelli,
Íþróttahúsinu Strandgötu
mánudaginn 28. apríl kl. 20.30
Athugið
Við ætlum líka að hafa þetta myndakvöld og eru þær konur sem eiga myndir
úr fyrri ferðum beðnar um að koma með þær á kynningarfundinn.
Rétt til þess að sækja um þessa ferð hefur sérhver kona sem veitir eða hefur veitt
heimili forstöðu án launagreiðslu fyrir það starf.
Orlofsnefndin
Ilmurinn sem barst úr þremur
kennslu eldhúsum Mennta skól -
ans í Kópavogi rétt upp úr klukk -
an ellefu á laugardaginn var
magnaður. Keppendur frá 16
grunn skólum söxuðu, steiktu,
hrærðu og bökuðu og báru svo
fram lystilega eldaða og fram -
reidda rétti.
Niðurstaða dómnefndar var að
rétturinn „Á brokki“, hrossalund
með humarhölum, sem Aðal -
steinn Bjarni Sigurðsson, Ágústa
Sólveig Sigurðardóttir og Björg
Jósepsdóttir elduðu væri sá lang
besti. Þau koma úr Hval eyrar -
skóla í Hafnarfirði og munu
ásamt kennara sínum, Helgu
Gunnarsdóttur fara í sælkeraferð
til London í lok maí. Ferðin er
gefin af styrktaraðilum keppn -
innar, Hagkaupum, Innnes og
Flugleiðum. Þau fengu líka eign -
ar bikar og farandbikar til varð -
veislu í ár eða þar til keppnin
verður haldin að nýju og nýr
skóli tekur við titlinum grunn -
skólameistari Íslands í mat -
reiðslu.
Hamraskóli varð í öðru sæti
með réttinn „lostæti hrepp stjór -
ans“, innbakaða nautalund með
parmaskinku. Í þriðja sæti með
„grillaðan hlýra með tómatsultu
og hvítlaukskremi“ varð svo
Engjaskóli.
Heilbrigðisráðherra sagði við
afhendingu verðlauna að það
væri gaman að sjá að réttirnir
sem krakkarnir elduðu væru ekki
bara glæsilegir og girnilegir
heldur líka hollir.
Myndir frá keppninni má sjá á
www.kokkakeppni.is
Hrossalund með
humarhölum
Hvaleyrarskóli sigraði í Kokkakeppni grunnskólanna
Helga Gunnarsdóttir, kennari ásamt sigurliðinu, þeim Björgu
Jósepsdóttur, Aðal steini Bjarna Sigurðssyni og Ágústu Sólveigu
Sigurðardóttur.
Fyrirtækið P. Ólafsson hefur
flutt sig af Trönuhrauninu í
stærra húsnæði að Bæjarhrauni 8
og hefur um leið skipt um nafn
og heitir nú Altis ehf. en
stofnand inn, Páll Ólafsson hefur
selt allan hlut sinn í fyrirtækinu.
Í dag eru eigendurnir þrír, Theo -
dór Sigurðsson, fram kvæmda -
stjóri, Einar Sigurðsson og
Jóhannes Guðmundsson.
Altis selur tæki, áhöld og leik -
föng fyrir íþróttahús og leikskóla
auk þess heilsuræktarvöur, spil,
útileiktæki, íþróttavörur, púls -
mæla og fl. en þarna má finna
fjölbreytt úrval leiktækja tilvalin
í sumarbústaðinn.
P. Ólafsson verður Altis
og flytur á Bæjarhraunið
Stærri verslun með enn meira úrval
Einar Sigurðsson og Theodór Sigurðsson brosmildir við opnunina.
Glæsilegt Landsbankamót Sörla
Haldið í blíðskaparveðri á Sörlastöðum