Fjarðarpósturinn - 23.04.2008, Page 9
www.fjardarposturinn.is 9Miðvikudagur 23. apríl 2008
HUGMYNDASAMKEPPNI
MEÐAL BÆJARBÚA Í HAFNARFIRÐI
HVERNIG FINNST ÞÉR AÐ
ÓLA RUN TÚNIÐ
EIGI AÐ VERA?
S
V
Æ
Ð
IÐ
V
E
R
Ð
LA
U
N
IN
S
A
M
K
E
P
P
N
IN
Samkeppnin er opin hugmyndasamkeppni meðal bæjarbúa í Hafnarfi rði.
Markmið samkeppninnar er að kalla fram hugmyndaauðgi bæjarbúa og fá fram
sem fjölbreyttastar hugmyndir um notkun á Óla Run túninu – hugmyndir sem
veita innblástur til frekara skipulags svæðisins.
Ekki er til staðlað innsendingarform. Hugmyndunum skal skilað á því formi sem
þátttakendur kjósa og þeir telja að þjóni hugmyndinni sem best.
Innsendingar skulu merktar með dulnefni. Nafn þátttakanda ásamt heimilisfangi
og símanúmeri og/eða netfangi, skal fylgja með í lokuðu umslagi sem merkt er
dulnefninu.
Allar innsendingar verða ljósmyndaðar og sýndar á nýjum þjónustuvef
fyrir Hafnfi rðinga, Íbúagáttinni. Allar innsendingar verða sýndar undir nafni
þátttakanda.
Veitt verða verðlaun fyrir þrjár athyglisverðustu hugmyndirnar sem hér segir:
1. verðlaun: 100.000 kr.
2. verðlaun: 50.000 kr.
3. verðlaun: 25.000 kr.
Að auki verða veitt verðlaun sem koma á óvart fyrir óvenjulegustu hugmyndina.
Svæðið er skilgreint sem opið svæði –„grænt svæði“. Það á að nýtast
öllum bæjarbúum, ungum sem öldnum, og vera Hafnarfi rði til sóma.
NOKKUR ATRIÐI UM SAMKEPPNINA
Sendu okkur teikningu, ljóð, sögur, sendibréf, líkan, útsaum, leirmynd,
tréskurð, myndband, ljósmynd, frumsamið lag
– hvaðeina sem lýsir þinni hugmynd um það hvernig Óla Run tún eigi að vera.
VERÐLAUN
Verðlaun verða veitt fyrir
þrjár athyglisverðustu hugmyndirnar,
svo og óvenjulegustu hugmyndina.
ÖLLUM ER HEIMIL ÞÁTTTAKA
Hugmyndasamkeppnin er opin öllum
íbúum Hafnarfjarðar – á öllum aldri.
Ekki eru gerðar kröfur um þekkingu á
skipulagi eða landslagshönnun.
VEFSÝNING Á INNSENDINGUM
Haldin verður sýning á innsendum
hugmyndum á nýjum þjónustuvef fyrir
Hafnfi rðinga, Íbúagáttinni.
Allar innsendingar verða sýndar
undir nafni þátttakenda.
Nánari upplýsingar um
hugmyndasamkeppnina má fi nna á
www.hafnarfjordur.is
Hugmyndum skal skilað í síðasta lagi 20. maí 2008
í Þjónustuver Hafnarfjarðarbæjar,
Strandgötu 6, 220 Hafnarfi rði