Fjarðarpósturinn


Fjarðarpósturinn - 29.05.2008, Qupperneq 7

Fjarðarpósturinn - 29.05.2008, Qupperneq 7
Fjarðarpósturinn tók Ellý Erlingsdóttur forseta bæjar - stjórn ar og formann afmælis - nefndar tali, en í dag hefjast fjög - urra daga hátíðarhöld í tilefni af 100 ára kaupstaðar afmæli Hafnar fjarðarbæjar. Það var merkis dagur þegar Hafnar - fjörður fékk kaupstaðarréttindi, var það ekki svo? „Jú, nú styttist verulega í þennan merkisdag 1. júní og það er vert að minnast þess að forverar okkar náðu þessum áfanga ekki á einum degi. Það tók nokkrar tilraunir á Alþingi að ná því fram að Hafnarfjörður fengi kaup staðaréttindi. Síðan þá hefur bær inn okkar vaxið jafnt og þétt, taldi rúmlega 1400 íbúa árið 1908 en nú stöndum við í 25.306 íbúum, 100 árum seinna og við bætast nýir íbúar nánast á hverjum degi. En að dagskrá helgarinnar, verður ekki nóg um að vera? Það eiga allir sem á annað borð hafa áhuga á að gera sér glaðan dag að geta fundið eitthvað við sitt hæfi. Hátíðarhöldin bera yfirskriftina „Heimboð í Hafnar - fjörð“ og þess sjást merki strax í dag, fimmtudag, þegar fjöldi hafn firskra listamanna býður heim annaðhvort í gallerí eða á vinnustofur sínar í heimahúsum. Kaupmenn bjóða uppá langan fimmtudag og ýmsar uppá kom - ur. Fyrri partur fimmtudagsins er helgaður yngri kynslóðinni með leik- og grunnskólahátíð á Thors plani og Latabæjardagskrá sem Glitnir stendur fyrir við Hafnarfjarðarkirkju. Tvö gömul hús sem eiga sér merka sögu hér í Hafnarfirði hafa verið endurbyggð en það eru Bungalowið að Vesturgötu 32 og Beggubúð sem nú stendur við Byggðasafnið. Í Bunga - lowinu verður sögu erlendu út - gerðarinnar á upphafi 20. aldar gerð skil og í Beggubúð verður verslunarminjasýning. Í Hafnar - borg verður opnuð sýning sem nefnist Hundrað og er samansafn af texta- og myndbrotum úr langri og merkilegria sögu bæjar ins. Mikið fjör verður í Strandgötu við Thorsplan á morgun, föstu - dag. Þá verður opnuð Víkinga - gata við Fjörukrána, bílabíó við Flensborg og mið næturdjass í Hafnarborg. Er búist við að fólk leggi leið sína í Hafnarfjörð um helgina? Já, við gerum fastlega ráð fyrir því að margt verði um manninn bæði á laugardag og sunnudag sem er sjálfur afmælisdagurinn og að auki sjómannadagurinn. Karni valstemning verður í Strand götunni og barnadagskrá á Thorsplani, Þjóðahátíð Alþjóða - húss í íþróttahúsinu við Strand - götu, þrautabraut við Fjörð þar sem FH og Haukar takast á. Skemmtidagskrá í Hellisgerði, tónleikar í kirkjum bæjarins með þekktum listamönnum eins og Ragnheiði Gröndal, Lay Low, Magga Kjartans, Ellen Kristjáns og margir fleiri. Stórtónleikarnir Hafnarfjörður rokkar verða svo á Víðistaðatúni frá kl. 17-23 á laugardagskvöld, þar troða upp margar góðar sveitir og til að nefna einhverjar get ég nefnt Sprengju höllina, Eurobandið, Meg as, Sálina, Baggalút, Bo, Bermúd o.fl. Ég hvet fjölskyldur til að mæta á túnið og hafa með sér á grillið en einnig verður hægt að kaupa léttar og ferskar veitingar á staðnum. Fiskiveisla verður við Suður - höfnina á sjómannadaginn og leikland fyrir börnin, sjóræn - ingja göngur, siglingar og Lúdó og Stefán slá upp bryggjuballi kl. 13. Heljarinnar útikaffiboð þar sem boðið verður uppá 100 m langa afmælistertu verður í Strand götunni og skemmtiatriði á Thorsplani. Jónsi tekur lagið, einnig Harasystur og svo mætti lengi telja. Stórglæsilegir hátíðartónleikar með Kammersveit Hafnarfjarðar og Sinfóníuhljómsveit Norður - lands auk 700 manna afmælis - kórs Hafnarfjarðar verða að Ásvöllum kl 16.30 á afmælis - daginn. Verður ekki erfitt að komast á milli staða og að vita hvar viðburðir eru? Skutlur standa gestum til boða svo það er óþarfi að fara allra sinna ferða á einkabílum enda ekki gert ráð fyrir því, allar upplýsingar um hátíðarhöldin og allt sem þeim viðkemur verður dreift í hús í Hafnarfirði og auglýst í blöðum og öðrum miðlum. Hvernig leggst svo afmælishelgin í þig? „Bara þrælvel, ég hlakka til helgarinnar óska Hafnfirðingum til hamingju með tímamótin og góðrar skemmtunar næstu daga,“ segir Ellý Erlingsdóttir forseti bæjarstjórnar. www.fjardarposturinn.is 7Fimmtudagur 29. maí 2008 Hlakkar til afmælishelgarinnar Ellý Erlingsdóttir, forseti bæjarstjórnar og formaður afmælisnefndar í spjalli Ellý Erlingsdóttir, formaður afmælisnefndar Hafnarfjarðarbæjar. Sjór og saga Ljóð ort í tilefni af 100 ára afmæli Hafnarfjarðarkaup - staðar og sjómannadags Hundrað ára Hafnarfjarðarsaga hefur borið með sér líf og þrótt. Kaupstað fylgdi framsókn nýrra daga fram á miðin var af krafti sótt. Togaraútgerð efldi hag og gengi, áhrif hafði á svipmót lífs og brag, fiskverkun gaf tón og taktinn lengi, tilveran var fjörlegt sjómannslag Þilskip höfðu fyrrum siglt úr Firði framtak vottað Bjarna Sivertsen. Riddarasóknin reyndist mikils virði, ráð og verslun uppörvuðu menn. Danir vildu viðskiptunum ráða, vikið höfðu þýskum landi frá. Sóknin fram til sjálfstæðis og dáða sýndi að hægt var takmarki að ná. Kirkjur upp á Hól og Hamri undir horfðu yfir byggð og fram á sjó, seltuðu líf og lýstu haf og grundir ljósi Guðs sem innra fyrir bjó. Halaveðrið Helyerskipi sökkti, hörð var kreppan Göflurunum mjög Von og ótti voru mjög á flökti, vógust á er ríktu stríðsins lög (stytt útgáfa) Gunnþór Þ. Ingason 85 Hafnfirðingar eiga afmæli 1. júní og hefur Eiríksína Kr. Ásgrímsdóttir boðið þeim öllum í afmælisboð í og við heimili sitt, Kirkjuveg 5, bak við Byggðasafn Hafnar fjarðar, á sunnudaginn kl. 12 á hádegi. Eiríksína bendir á að Marilyn Monroe hafi átt afmæli á þessum degi og yrði 81 eins árs, hefði hún farið betur með sig. Hún hafði yndi af afmælum og afmælissöngnum og hann ætla afmælisbörnin að syngja á sunnudaginn og aðrir bæjarbúar eru velkomnir líka. Eiríksína vill nefna hið nýja torg við Beggu - búð 1. júnítorg til heiðurs afmæl - isbörnunum og að sjálfsögðu Hafnarfjarðarbæ. Yngsta afmælisbarnið verður ársgamalt og elsta 86 ára. Flest afmælisbörnin eiga heima í Ás - landinu. Börnin tvö sem verða tíu ára eiga heima við sömu götu. Tveir verða sextugir og aðrir tveir fylla fimmta tuginn. Ein úr hópnum verður áttræð og ein þrítug. Afmælisbörn 1. júní Eiríksína býður afmælisbörnunum í afmæli Hafbjörgu GK 7 hleypt af stokkunum 1946 úr Skipasmíðastöð Hafnarfjarðar, neðan við ráðhúsið. L j ó s m . : L j ó s m y n d a s t o f a H e r d í s a r o g G u ð b j a r t s L j ó s m . : G u ð n i G í s l a s o n

x

Fjarðarpósturinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fjarðarpósturinn
https://timarit.is/publication/945

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.