Fjarðarpósturinn


Fjarðarpósturinn - 29.05.2008, Page 14

Fjarðarpósturinn - 29.05.2008, Page 14
Á laugardaginn kemur frá klukkan 17 til 23 verða haldnir spennandi tónleikar á Víði staða - túni. Skemmtunin verður í tilefni af 100 ára afmæli Hafnarfjarðar. Simmi og Jói eru kynnar og sjá þeir um að halda uppi réttu stemmninguni og stjórna dag - skránni með sinni kímnigáfu. Tónleikararnir verða án efa hin besta skemmtun þar sem einir bestu tónlistarmenn landsins koma fram og má nefna Nafla - kusk, Vicky Pollard, Bermúda, Ingó og veðurguðina, Megas og Senuþjófana, Eurobandið, Bagga lút, Stórsveit Samma, Sprengjuhöllina, Sálina og Björg vin Halldórsson og gesti. Allir ætti því að geta fundið tónlist við sitt hæfi á þessum tón - leikum sem Hafnarfjörður býður uppá. Aðstæður mun vera hinar bestu og boðið verður upp á veit - ingarsölu en einnig verður hægt að koma með kjöt á grillið og grilla á svæðinu á grillum sem þar verða. Góða skemmtun. Þessi frétt er unnin af Söru Rós Péturs dóttur, 14 ára, nemanda í Hraun - valla skóla sem var í starfskynningu á Fjarðarpóstinum. 14 www.fjardarposturinn.is Fimmtudagur 29. maí 2008 Fornmunauppboð á laugardaginn kl. 14 100 munir boðnir upp, stórir og smáir! Strandgötu 24 • sími 533 1556 • opið mán. - lau. kl. 12-18 stóllinn hans „Bubba“ Tvö svona ljón verða boðin upp! Jónas R. Halldórsson uppboðshaldari ... stýri ... glæsilegur kross ... kista frá 1852 o.m.fl. F j a r ð a r p ó s t u r i n n 0 8 0 5 – © H ö n n u n a r h ú s i ð e h f . Allir árgangar í Öldutúnsskóla hafa unnið að upprifjun á sögu og menningu Hafnarfjarðar - kaup staðar nú á vorönninni. Verkefni sem tekin eru fyrir eru saga, náttúra, list, menning, álfar, tröll og þjóðsögur, stofn anir og fyrirtæki í bænum, merkar bygg - ingar, sjávarþorpið Hafnarfjörð - ur, hafnfirskir barna bóka höf - undar, frægir Hafn firðingar og áhrif þeirra á þróun og sögu bæjar ins. Síðast en ekki síst eru Hafnarfjarðarbrandarar teknir fyrir. Afmælishátíð - uppskerudagur er 2. júní Þann dag verða verk nemenda til sýnis í skólanum, allar kennslu stofur opnar frá klukkan 13 til 16 og nemendur túlka verkefni sín með ýmsum hætti; í myndlist, dansi, söng, upplestri, kvikmyndum og ljósmyndum. Klukkan 15.30 hefst dagskrá á sal skólans með ávarpi skóla - stjóra, Erlu Guðjónsdóttur og söng Kórs Öldutúnsskóla. Hið árlega víðavangshlaup Öldu - túnsskóla er klukkan 16. Einnig verður danssýning og fjöltefli og umhverfisbásinn okkar verður settur upp að vanda. Níundi bekkur sér um vöfflu - sölu og grillaðar verða pylsur. Dagskrá lýkur um klukkan 18. Kvöldvaka verður síðan fyrir unglingadeild skólans í Öldunni. Starfsfólk skólans og félags - miðstöðvar Öldunnar, ásamt stjórn Foreldrafélags Öldutúns - skóla hafa sameiginlega unnið að þeirri veglegu dagskrá sem verður þennan dag. Íbúar eru hvatt ir til að heimsækja skólann og njóta þess sem þar er í boði. Vorhátíð í Öldutúnsskóla Hafnarfjarðarsýning, víðavangshlaup, dans, vöfflusala og kvöldvaka Eitt af afmælisverkefnum nemenda Öldutúnsskóla. Hafnarfjörður rokkar á laugardaginn Frá Norðurbakkatónleikum 2003. L j ó s m . : g u ð n a s o n . i s Breytt vinnuaðstaða á bryggjunni Á þeim 60-70 árum sem liðin eru síðan Herdís Guðmundsdóttir tók þessa mynd hefur margt breyst við uppskipun í Hafnarfirði. Bryggjan var þá líflegur en erfiður vinnustaður.

x

Fjarðarpósturinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fjarðarpósturinn
https://timarit.is/publication/945

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.